
Parið sem björgunarsveitir Landsbjargar leitaði að í gær við sunnanverðan Langjökul fannst upp úr klukkan hálf níu í gærkvöldi. Voru þau bæði heil á húfi en orðin köld þegar þau fundust skammt frá Skálpanesi. Var þeim komið í hlýjan björgunarsveitarbíl þar sem heitir drykkir biðu þeirra, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu.…Lesa meira







