Fréttir

true

Lokasmölun hrossa úr Akranesflóa á gamlársdag

Félagar í hestamannafélaginu Dreyra stefna að hefja smölun hrossa úr Akranesflóa klukkan 12 á gamlársdag og vera komin með hrossin í Æðarodda um klukkustund síðar. Félagsheimilið verður opið milli klukkan 12 og 14 og verður þar í boði heitt kakó og vöfflur með rjóma. „Allir eru velkomnir til að fylgjast með hrossahópnum koma niður í…Lesa meira

true

Enn er óveður á hæstu fjallvegum

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni eru nú hálkublettir á flestum leiðum á Vesturlandi, en hálka og óveður er á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Mjög hvasst er einnig á Fróðárheiði og á norðanverðu Snæfellsnesi.Lesa meira

true

Flugeldasala björgunarsveitanna er víða hafin

Nú þegar árið er senn að renna sitt skeið á enda er hin árvissa flugeldasala björgunarsveitanna víða komin af stað. Um er að ræða mikilvægustu fjáröflun sveitanna og síðustu daga hafa björgunarsveitarmenn um land allt unnið af kappi við undirbúning og uppsetningu flugeldasölunnar. Víða hófst flugeldasala í gær, 28. desember og á flestum stöðum mun…Lesa meira

true

Borgarfjarðardætur með jólatónleika í kvöld

Sönghópurinn Borgarfjarðardætur mun halda jólatónleika í kvöld í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Sönghópinn skipa fimm ungar og efnilegar tónlistardömur úr Borgarfjarðarsveit, sem allar eru menntaðar í klassískum söng eða píanóleik. Þær eru Birna Kristín Ásbjörnsdóttir frá Ásbjarnarstöðum í Stafholtstungum, Ásta Marý Stefánsdóttir frá Skipanesi í Melasveit, Anna Þórhildur Gunnarsdóttir frá Brekku í…Lesa meira

true

Stækkaður kirkjugarður tekinn í notkun

Nýr hluti Stykkishólmskirkjugarðs hefur verið vígður og tekinn í notkun, en eldri hluti garðsins er fullnýttur. Í eldri hluta Stykkishólmskirkjugarðs eru 692 þekktar grafir, sú elsta frá árinu 1921, en gert er ráð fyrir því að í nýja hluta garðsins geti rúmast allt að 300 grafir. Stykkishólmspósturinn greinir frá. Þá er einnig gert ráð fyrir…Lesa meira

true

Fjárhúsþak varð undan að láta í rokinu

Mikið óveður gekk yfir landið í gær og síðustu nótt og olli þónokkru tjóni. Þak rifnaði af fjárhúsum á bænum Kolgröfum við Kolgrafafjörð í gær. Björgunarsveitin Klakkur í Grundarfirði var kölluð til og náði að bjarga því sem bjargað varð en stór hluti af þakinu fauk út í veður og vind. Nú er beðið eftir…Lesa meira

true

Byggingarleyfi ógilt fyrir hótelbyggingu í Borgarnesi

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (ÚUA) kvað á Þorláksmessu upp úrskurð þar sem byggingarleyfi er fellt úr gildi fyrir hótelbyggingu á lóðinni Borgarbraut 59 í Borgarnesi. Framvæmdir hófust fyrr á þessu ári á lóðinni og er búið að reisa hálfa aðra hæð úr forsteyptum einingum ofan á jarðahæð hússins. Framkvæmdir hafa þegar stöðvast af þessum sökum.…Lesa meira

true

Þriggja stiga keppni og stjörnuleikur á Jólagleði Skallagríms

Körfuknattleiksdeild Skallagríms boðar til jólagleði í íþróttahúsinu í Borgarnesi annað kvöld, fimmtudaginn 29. desember. Á dagskrá eru knattþrautir þar sem leikmenn yngri flokka Skallagríms munu leika listir sínar og þriggja stiga skotkeppni þar sem valinkunnar kempur munu reyna sig. Þá mun við blandað lið meistaraflokka Skallagríms etja kappi við stjórnir og ráð félagsins í sannkölluðum…Lesa meira

true

Ferð Baldurs féll niður í dag

Vegna slæms veðurútlits var ferð Baldurs yfir Breiðafjörð í dag frestað.  Þá hefur þurft að fresta viðburðum og athöfnum sem fara áttu fram á Snæfellsnesi í dag og á morgun. Þannig greinir Stykkishólmspósturinn frá því að búið sé að fresta Jólamóti HSH í frjálsum íþróttum sem halda átti í dag fram í janúar og verði…Lesa meira

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

52 nemendur voru brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands 21. desember síðastliðinn. Við athöfnina flutti Dröfn Viðarsdóttir annál, Elínborg Egilsdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og Sævar Freyr Þráinsson fyrrum nemandi skólans flutti ávarp. Hrefna Berg Pétursdóttir hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2016. Við athöfnina fluttu útskriftarnemarnir Hjördís Tinna Pálmadóttir, Hrefna…Lesa meira