Fréttir

true

Mikið um að vera hjá Skíðaráði Snæfellsness

Skíðaráð Snæfellsness stendur í ströngu þessa dagana og er mikið um að vera hjá félaginu. Á dögunum fjárfesti félagið til að mynda í Pisten Bully 200D snjótroðara. Mikið hefur verið um sjálfboðaliða sem hafa verið að vinna við skíðalyftu og skíðaskála félagsins. Búið er að endurnýja nánast alla skíðalyftuna en skipt var um vír, diska…Lesa meira

true

Grátlegt eins stigs tap Skagamanna

Skagamenn tóku á móti Fjölni í 1. deild karla í körfuknattleik í gær. Var þetta önnur viðureign liðanna á stuttum tíma, en Fjölnismenn slógu ÍA með nokkuð sannfærandi hætti út úr bikarkeppninni á dögunum. Annað var uppi á teningnum í gær og heldur meiri spenna í leiknum og sérstaklega í síðari hálfleik. Fór að lokum…Lesa meira

true

Vara við tínslu á kræklingi við núverandi aðstæður

Að gefnu tilefni vill Matvælastofnun koma á framfæri athugasemdum við grein sem birtist í Fréttatímanum í dag, í frétt sem ber heitið: „Gott um helgina: Tína krækling.“ Matvælastofnun varar við tínslu kræklings í Hvalfirði þar sem fyrirliggjandi niðurstöður á sjósýnum úr firðinum benda til að DSP eitur eða niðurgangseitur geti verið yfir viðmiðunarmörkum. „Mælingar á…Lesa meira

true

Skólakerfið verður rjúkandi rúst ef ekki verður komið til móts við kennara

Grunnskólakennarar í Borgarbyggð afhentu sveitarstjórn í dag yfirlýsingu vegna kjaradeilu kennara og viðsemjenda þeirra: „Nú er svo komið að kjaradeilu grunnskólakennara og sveitarfélaga hefur verið vísað til ríkissáttasemjara og eru viðræður hafnar. Ef mið er tekið af viðbrögðum og afstöðu sveitarfélaga í launaviðræðum þann tíma sem samningar hafa verið lausir ríkir ekki mikil bjartsýni um…Lesa meira

true

Samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga

Í samræmi við ákvæði nýrra búvörulaga er samráðshópur um endurskoðun búvörusamninga nú fullskipaður. Í hópnum eru sex karlar og sex konur og skal hópurinn hafa lokið störfum fyrir lok árs 2018. Í samráðshópnum eiga sæti: Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir formaður, skipuð af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti Róbert Farestveit, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands Helga Jónsdóttir, tilnefnd af Bandalagi…Lesa meira

true

Skallagrímur marði sigur á Snæfelli í tvíframlengdum Vesturlandsslag

Snæfell tók á móti Skallagrími í Vesturlandsslag Domino‘s deildar karla í körfuknattleik í gær. Fyrir leikinn höfðu Skallagrímsmenn unnið tvo leiki í deildinni en Snæfell var án sigurs. Liðin hafa marga hildina háð í gegnum tíðina og leikurinn í gær var engin undantekning þar á. Eftir að Skallagrímur hafði haft yfirhöndina í fyrri hálfleik og…Lesa meira

true

Ævar Þór verðlaunaður fyrir lestrarátak barna

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra veitti Sigurði Pálssyni rithöfundi Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2016 við hátíðlega athöfn fyrr í vikunni. Verðlaunin eru sem fyrr veitt í tilefni af degi íslenskrar tungu. Þá veitti ráðherra Ævari vísindamanni, Ævari Þór Benediktssyni, sérstaka viðurkenningu. Ævar Þór er landsþekktur fyrir hugsjónastarf í þágu barna og unglinga, t.d. vísindaþætti í útvarpi…Lesa meira

true

Enginn fundargesta mótfallinn vegaframkvæmdunum

Þriðjudaginn 8. nóvember boðaði Vegagerðin til kynningarfundar á Reykhólum. Þar kynntu fulltrúar stofnunarinnar frummatsskýrslu vegna lagningar nýs Vestfjarðarvegar milli Bjarkalundar og Skálaness, hvað í henni felst varðandi leiðarval og mat á umhverfisáhrifum. Sem kunnugt er leggur Vegagerðin til í skýrslunni að farin verði svokölluð Þ-H leið; um Teigsskóg í Þorskafirði og með þverunum yfir Djúpafjörð…Lesa meira

true

Ófært á Bröttubrekku

Því er spáð að norðanátt haldi áfram í dag, en að hún verði ekki jafn hvöss og hún var í gær. Skafrenningur og blinda á vegum ræðst af vindstyrknum, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Á Vesturlandi er víðast hálka eða snjóþekja. Ófært er á Bröttubrekku. Á fjallvegum norðan- og norðvestantil er að sjá sem að…Lesa meira

true

Feðgar á ferð á tveimur DVD diskum

Feðgar á ferð eru safndiskur sem kominn er út með þáttum af Stöð 2 sem sýndir voru í sumar og fyrrasumar, alls tuttugu þættir. Í þáttunum heimsækja þeir feðgar, Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður á Selfossi og Fannar Freyr Magnússon, jákvætt og skemmtilegt fólk á Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Fólkið er á öllum aldrei…Lesa meira