Fréttir

true

Stórgýti féll á veginn í Gilsfirði

Kolbrún Ingólfsdóttir og Hermann Jóhannesson frá Kleifum óku að þessu myndarlega grjóti á veginum inn Gilsfjörðinn þegar þau voru þar á ferðinni fyrir rúmri viku síðan. Samkvæmt þeirra heimildum hafði hrunið úr hlíðinni einhverjum dögum áður. Þau settu sig í  samband við Vegagerðina sem brást skjótt við og sá um að hreinsa veginn með hjálp…Lesa meira

true

Skagamenn steinlágu gegn Breiðabliki

ÍA heimsótti Breiðablik í 1. deild karla í körfuknattleik að kvöldi síðasta föstudags. Leikurinn var jafn framan af fyrsta leikhluta en eftir það tóku heimamenn öll völd á vellinum og unnu að lokum mjög stóran sigur, 102-62. Skagamenn höfðu raunar yfirhöndina í upphafsfjórðungnum. Leiddu að jafnaði með nokkrum stigum þar til undir lok leikhlutans þegar…Lesa meira

true

Félög sjómanna með ólíka sýn á samningagerðina

Tvö félög sjómanna skrifuðu ekki undir nýjan kjarasamning í nótt. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og Sjómannasamband Íslands undirrituðu nýjan kjarasamning og gildir hann til næstu tveggja ára. Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur, eitt aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands, tók samningsumboð sambandsins hins vegar til baka undir kvöld í gær og það félag stendur því utan við gerðan…Lesa meira

true

Bílvelta á Holtavörðuheiði

Ung kona var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann seint í gærkvöldi eftir bílveltu á Holtavörðuheiði. Mbl.is greinir frá. Haft er eftir lögreglunni á Blönduósi að meiðsli konunnar hafi ekki verið eins alvarleg og í fyrstu hafi verið talið. Farþegi í bílnum slapp án meiðsla. Hálkublettir voru á heiðinni þegar slysið varð og hvasst í…Lesa meira

true

Stefna á að Borgarbyggð verði heilsueflandi samfélag

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum í liðinni viku að hefja undirbúning að því að öðlast viðurkenningu sem heilsueflandi sveitarfélag í samvinnu við Landlæknisembættið. Stýrihópur mun taka til starfa í janúar á næsta ári og verður hann skipaður fulltrúum frá leik- og grunnskólum, Menntaskóla Borgarfjarðar, heilsugæslu, lögreglu, UMSB, eldri borgurum, atvinnulífinu, forvarnarfulltrúa, fulltrúa umhverfis-…Lesa meira

true

Norræna bókasafnavikan og Dagur íslenskrar tungu í Snorrastofu

Boðið verður til fjölbreyttrar dagskrár á vegum Snorrastofu í þessari viku sem Samband norrænu félaganna hafa valið til að kynna bókmenntir og frásagnarhefð á Norðurlöndum og nágrenni, Norrænu bókasafnavikunni. Svo heppilega vill til að Dagur íslenskrar tungu fellur í þessa viku nú sem oftar og spillir það ekki áhrifamætti þessa framtaks. Ef efni vikunnar er…Lesa meira

true

Andlát: Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður

Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður er látinn, 86 ára að aldri. Páll fæddist í Vestmannaeyjum 25. júlí 1930. Hann einbeitti sér að heimildamyndum og þótti afar hæfur á sínu sviði og einn af merkari kvikmyndagerðarmönnum hér á landi. Páls er minnst á Eyjar.net. Þar segir að hann hafi lært bókmenntir, líffræði og myndlist erlendis og lagt einnig…Lesa meira

true

Fresta launahækkunum sveitarstjórnarfulltrúa

Laun kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum taka mið af þingfararkaupi, en eins og kunnugt er tók Kjararáð ákvörðun um að hækka laun æðstu embættismanna og þingmanna um 20-44%. Sú ákvörðun var tekin á kjördag, 29. október sl. og hefur vakið mikla umræðu í þjóðfélaginu. Nú hafa bæði sveitarstjórn Borgarbyggðar og bæjarstjórn Akraneskaupstaðar tekið ákvörðun um að…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Glæstir taktar sáust á Árgangamóti

Líkt og áður var líf og fjör á Árgangamóti ÍA sem haldið var í Akraneshöllinni á laugardaginn. Til leiks voru skráð 25 lið, 19 karlalið og sex kvennalið. Af meðfylgjandi myndum að dæma höfðu menn engu gleymt. Góðir taktar sáust og menn lögðu mikið á sig, jafnvel meira en stirðir vöðvar og liðir þoldu. Hins…Lesa meira