Fréttir

true

Risin eru þrjú smáhýsi á Oddsstöðum í Lundarreykjadal

Á Oddsstöðum I í Lundarreykjadal í Borgarfirði hafa hjónin Sigurður Oddur Ragnarsson og Guðbjörg Ólafsdóttir um árabil rekið hestatengda ferðaþjónustu. Þar hefur ferðamönnum og hestaáhugafólki verið boðið upp á allt frá reiðtúrum og -námskeiðum til lengri hestaferða. Nú hafa hjónin á Oddsstöðum reist þrjú smáhýsi og geta allt að 18 manns gist í þeim.  „Með…Lesa meira

true

Vopnað rán framið í Ólafsvík

Klukkan 17:43 í dag fékk Lögreglan á Vesturlandi tilkynningu um að verið væri að fremja vopnað ráð í Apóteki Ólafsvíkur við Ólafsbraut 24. Þar hótaði maður starfsfólki með hnífi. Náði hann að taka lyf en hljóp eftir það út og ók á brott á bíl. Kallað var eftir aðstoð lögreglu annarsstaðar úr lögregluumdæminu og náðist…Lesa meira

true

Gengið gegn einelti í Borgarnesi

Nemendur og starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi gengu í morgun fylktu liði frá skólanum og enduðu á stuttri samkomu í Skallagrímsgarði, Var markmiðið með göngunni að vekja athygli á því að einelti er dauðans alvara sem hvergi á að þrífast.  Lesa meira

true

Fuglaskítur í lykilhlutverki í nýrri rannsókn – doktorsvörn við LbhÍ

Niki I. W. Leblans mun mánudaginn 14. nóvember kl. 13:00 verja doktorsverkefni sitt  við Auðlinda- og Umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Verkefnið ber heitið „Náttúrulegir stiglar í jarðvegshita og köfnunarefnisákomu : Ísland býr yfir einstökum náttúrulegum aðstæðum til rannsókna á áhrifum hnattrænna umhverfisbreytinga á kolefnishringrás vistkerfa“.  Í verkefni hennar kemur meðal annars við sögu fuglaskítur,…Lesa meira

true

Nýsköpunarfyrirtæki vinnur að frumsmíði þangskurðarvélar

Asco Harvester ehf. er ungt fjölskyldufyrirtæki á sviði nýsköpunar og starfrækt í húsnæði fyrrum mjólkursamlags við Engjaás í Borgarnesi. Fyrirtækið var stofnað í byrjun þessa árs af þremur systkinum og fjölskyldum þeirra. Þetta eru þau Ómar Arndal, Ingvar Arndal og Anna Ólöf Kristjánsbörn. Hjá Asco Harvester er unnið að þróun þangskurðarvélar. Vélin hefur fengið nafnið…Lesa meira

true

Bilun á kaldavatnslögn í Búðardal

Leki er á neysluvatnslög í Búðardal og flæðir vatn upp úr á einum stað við aðkeyrsluna að húsnæði Vegagerðarinnar við Vesturbraut.  Um leið og lekans varð vart hófst vinna við bilanaleit og viðgerðir. Ekki liggur fyrir hvenær henni lýkur. Gæti orðið stopult með neysluvatn í Búðardal í dag meðan unnið er að viðgerðum.Lesa meira

true

Borgnesingur er sögupersóna í nýrri glæpasögu

Hildur Sif Thorarensen er verkfræðingur sem stundar um þessar mundir læknisfræðinám við Oslóarháskóla. Hún var að gefa út sína fyrstu skáldsögu, spennusögu sem nefnist Einfari. Svo skemmtilega vill til að hugmyndin að bókinni fæddist þegar Hildur Sif spjallaði við vin sinn úr Borgarnesi í gegnum Facabook. Ekki nóg með það, samtalið varð til þess að…Lesa meira

true

Hálkublettir á hæstu heiðum

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að nú er hálka á Bröttubrekku og hálkublettir á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru á Þröskuldum, en hálka á Steingrímsfjarðarheiði, snjóþekja er á Dynjandisheiði og Hálfdáni. Hálkublettir eru sömuleiðis á Hellisheiði. Greiðfært er í öðrum landshlutum.Lesa meira

true

Fimm Vestlendingar í landsliðshópnum

Framundan eru tveir síðustu landsleikirnir í undankeppni EM, EuroBasket kvenna 2017, hjá kvennalandsliðinu í körfuknattleik. Ívar Ásgrímsson þjálfari og Bjarni Magnússon aðstoðarþjálfari hafa valið 15 manna æfingahóp sem kemur fyrst saman þann 13. nóvember til æfinga. Af þeim eru fimm konur af Vesturlandi. Það eru systurnar Berglind og Gunnhildur Gunnarsdóttir og Pálína María Gunnlaugsdóttir frá…Lesa meira

true

Styttist í að stærra hótelrými verði tekið í notkun í Langaholti

Framkvæmdir við stækkun gistihússins að Langaholti í Staðarsveit á Snæfellsnesi ganga vel. Þegar þeim lýkur tvöfaldast herbergjatalan, fer úr 20 í 40. Nýju herbergin eru öll tveggja manna með baði. Einnig verður tekin í notkun ný móttaka og mun gamli inngangurinn leggjast af þegar nýi hlutinn verður kominn í gagnið. Þorkell Símonarson, Keli vert, er…Lesa meira