Fréttir

true

Hálkublettir á hæstu heiðum

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að nú er hálka á Bröttubrekku og hálkublettir á Holtavörðuheiði. Hálkublettir eru á Þröskuldum, en hálka á Steingrímsfjarðarheiði, snjóþekja er á Dynjandisheiði og Hálfdáni. Hálkublettir eru sömuleiðis á Hellisheiði. Greiðfært er í öðrum landshlutum.Lesa meira

true

Fimm Vestlendingar í landsliðshópnum

Framundan eru tveir síðustu landsleikirnir í undankeppni EM, EuroBasket kvenna 2017, hjá kvennalandsliðinu í körfuknattleik. Ívar Ásgrímsson þjálfari og Bjarni Magnússon aðstoðarþjálfari hafa valið 15 manna æfingahóp sem kemur fyrst saman þann 13. nóvember til æfinga. Af þeim eru fimm konur af Vesturlandi. Það eru systurnar Berglind og Gunnhildur Gunnarsdóttir og Pálína María Gunnlaugsdóttir frá…Lesa meira

true

Styttist í að stærra hótelrými verði tekið í notkun í Langaholti

Framkvæmdir við stækkun gistihússins að Langaholti í Staðarsveit á Snæfellsnesi ganga vel. Þegar þeim lýkur tvöfaldast herbergjatalan, fer úr 20 í 40. Nýju herbergin eru öll tveggja manna með baði. Einnig verður tekin í notkun ný móttaka og mun gamli inngangurinn leggjast af þegar nýi hlutinn verður kominn í gagnið. Þorkell Símonarson, Keli vert, er…Lesa meira

true

Skotveiðimenn segja öryggi veiðimanna ógnað

Stjórn Skotveiðifélags Íslands lýsir þungum áhyggjum yfir því sinnuleysi sem umhverfisráðherra hefur sýnt gagnvart þeirri hættu sem ákvörðun veiðitímabils rjúpu skapar veiðimönnum. Á þetta hefur félagið ítrekað bent og Umhverfisstofnun hefur gert hið sama. „Ekki mátti tæpara standa um síðastliðna helgi þegar tveir veiðimenn voru mjög hætt komnir eftir að hafa villst í þoku. Því…Lesa meira

true

Tveir ungir Skagamenn til æfinga með Norrköping

Tveir ungir og efnilegir knattspyrnumenn frá Akranesi, þeir Stefán Teitur Þórðarson og Arnór Sigurðsson, leikmenn ÍA, halda í dag út til Svíþjóðar og munu æfa í fimm daga með liði Norrköping. Stefán er fæddur árið 1998 og Arnór er árinu yngri, fæddur 1999 og báðir eru þeir því enn gjaldgengir með 2. flokki. Þrátt fyrir…Lesa meira

true

Oddfellowstúkur á Akranesi gáfu HVE nýtt ómskoðunartæki

Við athöfn síðdegis í gær var kvennadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi færð rausnarleg gjöf. Það voru tvær stúkur í Oddfellow sem sameiginlega stóðu að því að gefa HVE nýtt og fullkomið ómskoðunartæki til notkunar á deildinni. Verðmæti gjafarinnar er tæplega sex milljónir króna. Tækið leysir af hólmi eldra tæki sem komið var á tíma enda…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í tvígang í Hvalfjarðarsveit á morgun

Rafmagnslaust verður í Hvalfjarðarsveit vegna vinnu við háspennukerfi á morgun, miðvikudaginn 9. nóvember. Tvisvar verður rafmagnslaust hjá notendum Melasveitarlínu frá Brennimel að Höfn, fyrst frá kl. 12:00 til 12:15 og síðan aftur frá kl. 16:15 til 16:30. Rafmagnslaust verður frá Miðfelli að Hurðarbaki frá kl. 12:00 til 16: 30. „Rarik biðst velvirðingar á óþægindum sem…Lesa meira

true

Bjóða upp á ókeypis heilsufarsmælingu

SÍBS, Hjartaheill og Heilbrigðisstofnun Vesturlands standa saman að því að bjóða íbúum Akraness, Borgarness og nærsveita upp á ókeypis heilsufarsmælingar í Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum á Akranesi miðvikudaginn 9. nóvember og í Íþróttamiðstöðinni Þorsteinsgötu í Borganesi fimmtudaginn 10. nóvember. Á báðum stöðum verður opið frá klukkan 17 til 20. „Við bjóðum sérstaklega velkomna alla þá sem ekki…Lesa meira

true

Námskeið og keppni í járningum

Dagana 11. og 12. nóvember næstkomandi fer fram á Mið-Fossum í Borgarfirði námskeið í jafnvægisjárningum hrossa, formbreytingu á skeifum og farið verður yfir sjúkrajárningar. Auk þess verður haldið Íslandsmót í járningum. Námskeið verður á föstudeginum þar sem Lars Andersson kennir frá klukkan 13-18. Á laugardeginum verður opinn dagur járninga þar sem Lars kynnir fyrir þátttakendum…Lesa meira

true

Fiskvinnsla hlutdeildarfyrirtæki HB Granda í Síle eldri að bráð

Í nótt kom upp eldur í fiskvinnslu hlutdeildarfélags HB Granda í Puerto Chacabuco í Síle. Bolfisksvinnsla félagsins eyðilagðist að mestu og aðstaða til vinnslu á eldislaxi gjöreyðilagðist í eldsvoðanum en engin slys urðu á fólki. Tryggingaverðmæti eignanna er 12 milljónir dollara. Eldsupptök eru ókunn. Í frétt HB Granda segir að leitað verði til fyrirtækisins Marine…Lesa meira