Fréttir

true

Úrskurðarnefnd hafnar kröfu Útvarps Sögu

Með úrskurði 2. desember sl. hafnaði úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála kröfu Útvarps Sögu um frestun réttaráhrifa ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 15/2016. Þar var hafnað umsókn Útvarps Sögu um úthlutun á aukatíðni fyrir höfuðborgarsvæðið og lagði fyrir stöðina að hætta notkun á tíðninni 102,1 MHz þar sem tímabundin heimild til prófana á tíðninni var löngu…Lesa meira

true

Snæfell vann góðan sigur á Haukum

Snæfell tók á móti Haukum í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik síðastliðinn laugardag. Snæfellskonur höfðu heldur yfirhöndina allan leikinn en gestirnir úr Hafnarfirði létu þær engu að síður hafa fyrir hlutunum. Í síðari hálfleik náðu þær betri tökum á leiknum eftir því sem leið á og að lokum fór svo að Snæfell sigraði með tólf…Lesa meira

true

Ólafía Þórunn skrifar nýjan kafla í golfsögu landans

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir kylfingur úr GR skrifaði nýjan kafla í golfsögu Íslands í gær þegar hún varð önnur á lokaúrtökumótinu fyrir LGPA mótaröðina, keppni fremstu atvinnukylfinga heims. Ólafía lék lokahringinn á einum yfir pari, eða 73 höggum, en Jaye Marie Green frá Bandaríkjunum tryggði sér sigur með því að fá fugl á lokaholunni.  Alls komast…Lesa meira

true

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar á afmælisdaginn

Skallagrímur tók á móti toppliði Keflavíkur í Domino‘s deild kvenna á eitt hundrað ára afmæli félagsins sem fagnað var með pompi og prakt síðastliðinn laugardag. Liðið náði þó ekki að sækja sigur gegn toppliðinu á afmælisdaginn. Eftir góðan fyrri hálfleik Skallagríms tóku gestirnir af Suðurnesjunum öll völd á vellinum í síðari hálfleik og sigruðu að…Lesa meira

true

Straumlaust um tíma í gærkvöldi

Rafmagnslaust varð á ellefta tímanum í gærkvöldi í Stykkishólmi og nærsveitum. Bilun varð á háspennudreifikerfi Rarik í Stykkishólmi í um hálfa klukkustund. Starfsmenn Rarik voru fljótir að komast fyrir bilunina og var rafmagn komið á aftur um hálftíma síðar.Lesa meira

true

Íslandsmeistaramótið í línuklifri fór fram um helgina

Íslandsmeistarmótið í línuklifri fór fram í Björkinni í Hafnarfirði um helgina en keppt var í þremur aldursflokkum. Klifurfélag ÍA sendi fjóra klifrara til þátttöku og er þetta í fyrsta sinn sem ÍA tekur þátt í slíku móti. Mótið fór þannig fram að klifrarar fara allir tvær leiðir og fjórir efstu í hverjum flokki fara áfram…Lesa meira

true

Fullveldisdagsins minnst á fyrirlestri í Snorrastofu

Þriðjudaginn 6. desember næstkomandi flytur Magnús K. Hannesson fyrirlestur í Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti. Fyrirlesturinn nefnir hann Konungsríkið Ísland 1918-1944. Magnús, sem bæði er lögfræðingur og sagnfræðingur að mennt, gerir grein fyrir þeim breytingum sem urðu á stjórnskipun Íslands frá og með 1. desember 1918 í kjölfar þess að Danmörk viðurkenndi Ísland frjálst og fullvalda…Lesa meira

true

Víkingur Ó semur við sjö efnilega leikmenn

Knattspyrnudeild Víkings Ó hefur gert þriggja ára samninga við sjö unga og efnilega leikmenn, en samningarnir gilda út keppnistímabilið 2019. Samið var við þá Pétur Steinar Jóhannsson, Konráð Ragnarsson, Sumarliði Kristmundsson, Sigurjón Kristinsson, Brynjar Vilhjálmsson, Sanjin Horoz og Hilmar Björnsson. Jónas Gestur Jónasson formaður félagsins fagnar þessum áfanga enda eru þetta allt góðir leikmenn sem…Lesa meira

true

Annir þyrlusveitar við erfiðar aðstæður

Mikið annríki var hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar síðasta hálfa sólahringinn. TF-GNÁ fór í tvö sjúkraflug á þeim tíma. Fyrra útkallið fólst í að sækja alvarlega veikan einstakling til Ísafjarðar. Veður var slæmt og komst því ekki sjúkraflugvél Mýflugs frá Ísafirði. Mikil ókyrrð var í ferðinni, slæmt veður og ísing. Lent var á Ísafirði og sjúklingurinn sóttur…Lesa meira

true

Snæfellsbær keppir í Útsvari í kvöld

Lið Snæfellsbæjar hefur leik í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV, í kvöld kl. 20:00. Liðið etur kappi við lið Þingeyjarsveitar. Snæfellsbær keppti einnig í Útsvari á síðasta vetri og komst alla leið í átta liða úrslit en varð þar að játa sig sigrað gegn liði Fljótsdalshéraðs, sem stóð síðan uppi sem sigurvegari í keppninni. Árangur Snæfellsbæjar…Lesa meira