Fréttir

true

Fimmtánda Árbók Akurnesinga er komin út

Árbók Akurnesinga fagnar 15 ára útgáfuafmæli um þessar mundi því fimmtánda bindi Árbókarinnar er nú komið út. Árbókin er fastur punktur í tilveru Skagamanna og bókarinnar jafnan beðið með töluverðri eftirvæntingu. Meðal efnis að þessu sinni er langt og ítarlegt viðtal Önnu Láru Steindal við Svein Kristinsson; Strandastákinn sem varð formaður Rauða krossins á Íslandi.…Lesa meira

true

Göngin lokuð næstu tvær nætur

Hvalfjarðargöngum er lokað í þrjár nætur í þessari viku vegna árlegra haustverka við þrif og viðhald. Lokað var síðustu nótt og svo á ný næstu og þarnæstu nótt, aðfararnætur miðvikudags og fimmtudags frá miðnætti til klukkan sex að morgni.Lesa meira

true

Hrútasýning á Mýrunum

Hrútasýning fjárræktarfélaganna á Mýrum var haldin að Lækjarbug sunnudaginn 23. október. Sýndir voru 36 lambhrútar sem er sami fjöldi og árið áður. Veittar voru viðurkenningar fyrir þrjá bestu hrútana í þremur flokkum. Dómarar voru Jón Viðar Jómundsson og Kristbjörn Haukur Steinarsson. Í flokki kollótra var talinn bestur hrútur nr. 58 frá Lækjarbug, faðir Serkur 13-941.…Lesa meira

true

Mótmæltu kynbundnum launamun

Í gær efndu konur víða um land til samstöðufunda í tilefni af kvennafrídeginum. Krafan er skýr; jöfn laun fyrir sömu vinnu, óháð kyni. Dagurinn var upphaflega haldinn 24. október árið 1975. Nú hafa mælingar sýnt að með óbreyttri þróun launa muni það taka yfir fimmtíu ár að konur fái greidd sömu laun og karlar fyrir…Lesa meira

true

Sextán hrossaræktarbú tilnefnd sem ræktunarbú ársins

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau bú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands sem ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 71 bús sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu og í ljósi afar magnaðs árangurs hjá mörgum búum var ákveðið að tilnefna 16 bú í ár. Einnig var ákveðið að breyta reiknireglu þeirri…Lesa meira

true

Viðreisn býður til fundar á Akranesi í kvöld

Viðreisn heldur opinn fund á Akranesi í kvöld, mánudaginn 24. október kl. 20:00, í Gamla Kaupfélaginu, Kirkjubraut 11. Frambjóðendur flokksins munu halda örerindi um sín kærustu hugðarefni: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir oddviti í Suðvesturkjördæmi. Þorsteinn Víglundsson oddviti í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hanna Katrín Friðriksson oddviti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Gylfi Ólafsson oddviti í Norðvesturkjördæmi. Jóhannes Finnur Halldórsson sem…Lesa meira

true

Hafdís Fjóla ráðin verkefnastjóri Símenntunar

Hafdís Fjóla Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri á starfsstöð Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands á Akranesi, en hún var valin úr hópi 32 umsækjenda. Hafdís Fjóla er með mastersgráðu í uppeldis- og menntunarfræðum með áherslu á sérkennslufræði og hefur starfað síðustu ár við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hún kemur til starfa í byrjun næsta árs. „Um leið og við bjóðum…Lesa meira

true

Kynning á nýrri bók um fornleifauppgröft í Reykholti

Á árunum 2002-2007 fór fram fornleifarannsókn á gamla kirkjustæðinu í Reykholti í Borgarfirði. Niðurstöður þeirrar rannsóknar birtast nú í bókinni „Reykholt, The Church Excavations,“ eftir Guðrúnu Sveinbjarnardóttur fornleifafræðing. Bókin er gefin út af Þjóðminjasafni Íslands í samvinnu við menningar- og miðaldasetrið Snorrastofu í Reykholti og Háskólaútgáfuna. Á morgun, þriðjudaginn 25. október kl. 15 mun Guðrún…Lesa meira

true

ÍA tapaði naumlega í botnslag 1. deildar

ÍA tók á móti Vestra í botnslag 1. deildar karla í körfuknattleik í gær. Hvorugt lið hafði sigrað leik í vetur og því tækifæri fyrir Skagamenn að krækja í fyrstu stig tímabilsins. En svo varð ekki, því eftir góðan fyrri hálfleik náðu gestirnir að kroppa í forystuna allan síðari hálfleikinn. Þeir komust að lokum yfir og…Lesa meira

true

Rammasamningur undirritaður um þjónustu hjúkrunarheimila

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra staðfestu í liðinni viku rammasamning um rekstur og þjónustu hjúkrunarheimila í landinu. Samningsaðilar eru Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu og Samband íslenskra sveitarfélaga. Þetta er stærsti samningur um heilbrigðisþjónustu sem Sjúkratryggingar Íslands hafa gert, en þess er vænst að alls 46 hjúkrunarheimili gerist aðilar að samningnum…Lesa meira