Fréttir

true

Spilarar hittast í kvöld

Borgfirskir briddsspilarar hittust að vanda síðastliðið mánudagskvöld í Logalandi. “Heimtur eru heldur betur að lagast enda langt liðið á október. Til leiks mættu 13 pör og þar af eitt nýliðapar,” segir í tilkynningu frá Briddsfélagi Borgarfjarðar.  “Spiluð voru forgefin spil til að undirbúa menn fyrir aðaltvímenninginn. Fóru leikar svo að Sveinbjörn og Lárus fóru með…Lesa meira

true

Snæfell gerði út um leikinn í fyrsta leikhluta

Snæfell tók á móti Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn. Bæði lið höfðu þrjá sigra úr fyrstu fjórum leikjum vetrarins en það var ekki að sjá á leik liðanna á laugardag. Snæfell gerði út um leikinn strax í fyrsta leikhluta og unnu að lokum öruggan sigur, 70-50. Gunnhildur Gunnarsdóttir fyrirliði gaf tóninn…Lesa meira

true

Unnið að eflingu menntunar í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu

Þegar Samband sveitarfélaga á Vesturlandi kynnti Sóknaráætlun Vesturlands 2015-2016 á síðasta ári var efling menntunar í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu eitt af áherslumálum áætlunarinnar. Meginmarkmið verkefnisins er að bjóða þeim sem vinna við ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu á Vesturlandi upp á tækifæri til menntunar og með aukinni menntun verði þekkingarstig innan atvinnugreinarinnar hækkað. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi…Lesa meira

true

Hálkublettir á fjallvegum og næturlokun í Hvalfjarðargöngum

Nú er éljagangur og krapi á Hellisheiði og hálkublettir á fjallvegum á Snæfellsnesi. Hálkublettir eru einnig á Hálfdán og Steingrímsfjarðarheiði en aðrir vegir á landinu eru greiðfærir, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.   Næturlokanir framundan í Hvalfjarðargöngum Hvalfjarðargöng verða lokuð í þrjár nætur í þessari viku vegna árlegra haustverka við þrif og viðhald. Lokað verður…Lesa meira

true

Segja óþolandi að lagðir séu stofnstrengir án þess að tengja byggðina

Á fundi byggðarráðs Dalabyggðar 13. október var lagður fram tölvupóstur frá Orkufjarskiptum, dagsettur 19. september síðastliðinn. Þar er sveitarfélaginu tilkynnt af stjórn fyrirtækisins að það hafni tilboði Dalabyggðar um kaup á heimtaugum ljósleiðara á Skógarströnd og Hörðudal, en fyrirtækið lagði sem kunnugt er stofnstreng ljósleiðara um Skógarströnd að fengnum stuðningi frá Fjarskiptasjóði. „Byggðarráð harmar ákvörðun…Lesa meira

true

Stofnun fjallskilasjóðs undirbúin í Reykhólahreppi

Á fundi fjallskilanefndar Reykhólahrepps nýverið var farið yfir stöðu mála varðandi fjallskil í Múlasveit í vestanverðum hreppnum. Þar kom fram að mikil vinna hafi farið í leitir í Múlasveit og enn ekki tekist að fara á öll svæði. Þegar hafi verið lögð til 15 dagsverk af leitarstjóra og hans mönnum vegna fjallskila í Múlasveit, 30…Lesa meira

true

Umfjöllun í Snorrastofu um 800 ára vefnaðarsögu Íslands

Snorrastofa í Reykholti býður til fyrsta fyrirlestrar vetrarins þriðjudaginn 25. október næstkomandi undir heitinu „Vinna kvenna í 800 ár. Hefðir og vinnubrögð við íslenskan vefnað frá landnámi“. Það er fornleifafræðingurinn Michèle Hayeur Smith, sem flytur fyrirlesturinn á ensku en hún hefur lengi rannsakað vefnaðarsögu Íslands og eins og hún birtist í fornleifum. Þrátt fyrir erlenda…Lesa meira

true

Íbúafundir um ljósleiðaramál í Borgarbyggð

Tveir íbúafundir verða haldnir eftir helgi um undirbúning að ljósleiðaravæðingu í Borgarbyggð. Þeir verða haldnir í Brúarási mánudaginn 24. október nk. og í Lyngbrekku þriðjudaginn 25. október. Báðir fundirnir hefjast kl. 20:00. Á fundinn mætir Guðmundur Daníelsson ráðgjafi sem hefur verið ráðinn til að vinna að frumhönnun og gerð kostnaðarmats fyrir ljósleiðarakerfi í Borgarbyggð. Hann…Lesa meira

true

Gengur vel að steypa bílaplanið við Bjarnarfoss

Þorkell Gunnar Þorkelsson múrarameistari í Grundarfirði hefur undanfarnar tvær vikur unnið ásamt sínum mönnum við steypa bílaplan við Bjarnarfoss í Staðarsveit. „Þetta er búið að ganga alveg ágætlega hjá okkur, þessi framkvæmd. Veðrið hefur reyndar aðeins verið að stríða okkur því það hefur rignt á stundum. Hitinn vinnur með okkur en það er búið að…Lesa meira

true

Hvalfjarðargöng lokuð í þrjár nætur

Hvalfjarðargöng verða lokuð þrjár nætur í næstu viku vegna árlegra þrifa og viðhalds. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Næturnar sem um ræðir eru aðfaranótt þriðjudagsins 25., miðvikudagsins 26. og fimmtudagsins 27. október næstkomandi. Lokunin stendur yfir frá miðnætti og verða göngin lokuð til klukkan sex að morgni.Lesa meira