Fréttir

true

Oddviti Dögunar kallar eftir sanngjarnara samfélagi

Sigurjón Þórðarson er oddviti Dögunar í Norðvesturkjördæmi. Á sætunum næst á eftir honum sitja Pálmey Gísladóttir, Þórður A Júlíusson, Pétur Guðmundsson og Guðjón Arnar Kristjánsson. Sigurjón er ættaður af Snæfellsnesi en býr í dag á Sauðárkróki þar sem hann er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðvesturlands og í hlutastarfi sem líffræðikennari í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Hann…Lesa meira

true

Slæmt fjarskiptasamband var björgunarsveitarmönnum til trafala

Í fyrrakvöld fékk Björgunarsveitin Heiðar í Borgarfirði útkall vegna ferðamanna sem höfðu fest bíl sinn við vaðið yfir Mjódalsá inn af Langavatnsdal. Þegar þangað var komið beið björgunarsveitarmanna hins vegar aðeins harðlæstur bíllinn en engir ferðamenn. Ákveðið var að kalla eftir aðstoð Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi, fá þá til að fara inn Grenjadal og hitta…Lesa meira

true

Tillögur sveitarfélaganna um Samgönguáætlun Vesturlands 2017-2029

Á haustþingi SSV í fyrra var þeirri hugmynd skotið á loft að sveitarfélögin á Vesturlandi skyldu setja sér sameiginleg markmið í samgöngumálum, til að geta betur þrýst á framkvæmdavaldið. Settur var á fót vinnuhópur sem fékk það hlutverk að gera heildstæða úttekt í samgöngumálum landshlutans. „Skipaðir í þennan starfshóp voru sjö vörpulegir miðaldra karlar sem…Lesa meira

true

Stoltir nemendur með fjörutíu kílóa uppskeru

Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar á Hellissandi nýttu sér góða veðrið í lok september til að sinna haustverkum en í vor settu þau niður kartöflur í matjurtargarð skólans. Verkefnið er hluti af átthagafræðinámi skólans en þau létu kartöflurnar spíra í vor og með aðstoð kennara og starfsfólks stungu þau upp garðinn og settu kartöflurnar…Lesa meira

true

Samið við Jón Þór um áframhaldandi þjálfun hjá KFÍA

Knattspyrnufélags ÍA mun áfram njóta krafta Jón Þórs Haukssonar yfirþjálfara yngri flokka og afreksstarfs og sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Jón Þór hefur skrifað undir áframhaldandi samning við Knattspyrnufélag ÍA (KFÍA). Hann hefur starfað hjá félaginu sem þjálfari undanfarin átta ár, tók við starfi yfirþjálfara haustið 2013 en hann hefur síðan þá einnig verið aðstoðarþjálfari mfl.…Lesa meira

true

Þúsund manns sátu ráðstefnu um björgunarmál í Hörpu

Rétt rúmlega þúsund manns sátu um helgina alþjóðlegu ráðstefnuna Björgun16 sem Slysavarnafélagið Landsbjörg stóð fyrir í Hörpu í Reykjavík. Fjöldi innlendra- og erlendra sérfræðinga á sviði björgunarmála fluttu um 60 fyrirlestra á ráðstefnunni. Samhliða ráðstefnunni er haldin vörusýning fyrir fagaðila og á sýningasvæðinu utan Hörpu var sett upp ljósmyndasýning sem endurspeglar störf viðbragðsaðila á Íslandi…Lesa meira

true

Spila í Logalandi öll mánudagskvöld

Borgfirskir briddsspilarar eru búnir að dusta rykið af spilastokkunum og farnir að spila vikulega í Logalandi, fyrsta spilakvöldið var 27. september. Þá voru það Sveinbjörn Eyjólfsson og Anna Heiða Baldursdóttir sem skoruðu langmest, eða 72%. Næst var spilað 3. október og þá voru það Jón Einarsson og Ingimundur Jónsson sem skoruðu mest, eða 70%. Mánudaginn…Lesa meira

true

Nesballið var haldið í Klifi þetta árið

Um síðustu helgi var Nesballið haldið en það er árleg skemmtun eldri borgara á Snæfellsnesi. Skipst er á að halda ballið í Stykkishólmi, Grundarfirði og Snæfellsbæ. Var hún haldin félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Þegar skemtunin er haldin í Snæfellsbæ sjá félagasamtök í bæjarfélaginu um hana og eru það Lionsklúbbur Ólafsvíkur, Lionsklúbburinn Rán og Lionsklúbburinn Þerna…Lesa meira

true

Hefja undirbúning að stækkun Fosshótels í Reykholti

Verulegar framkvæmdir eru framundan við Fosshótel Reykholti. Til stendur að stækka hótelið umtalsvert,bæta við 28 herbergjum við þau 53 sem fyrir eru. Þá á að gera miklar endurbætur á eldri hluta hótelsins, svo sem að endurnýja öll eldri herbergin, stækka móttöku og fara í framkvæmdir í kjallaranum „Við erum byrjaðir að moka fyrir grunninum á…Lesa meira

true

Flokkur fólksins birtir framboðslista í NV-kjördæmi

Flokkur fólksins, sem býður fram undir listabókstafnum F, hefur birt framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Listinn er þannig skipaður: 1. Ólafur Snævar Ögmundsson vélstjóri Hafnarfirði 2. Hjördís Heiða Ásmundsdóttir húsmóðir Borgarbyggð 3. Bjarki Þór Aðalsteinsson kersmiður Akranesi 4. Þröstur Ólafsson vélstjóri Reykjavík 5. Þorbergur Þórðarson smiður Akranesi 6. Eva Lind Smáradóttir afgreiðslustúlka Hafnarfirði…Lesa meira