Fréttir

true

Tíu flokkar skiluðu inn framboðslistum í Norðvesturkjördæmi

Tíu stjórnmálaflokkar skiluðu inn framboðslistum í Norðvesturkjördæmi, en frestur til að skila inn framboði vegna Alþingiskosninga 29. október næstkomandi rann út á hádegi í dag. Þau framboð sem skiluðu inn listum og hyggjast bjóða fram í kjördæminu eru, í stafrófsröð: Björt Framtíð, Dögun, Flokkur Fólksins, Framsóknarflokkurinn, Íslenska þjóðfylkingin, Píratar, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Vinstrihreyfingin grænt framboð. Lágmarksfjöldi…Lesa meira

true

Fjórir hafa slasast eftir að skemmdarverk voru unnin á reiðhjólum þeirra

Skemmdarverk hafa á undanförnum vikum verið unnin á reiðhjólum nemenda við Grundaskóla á Akranesi. Losað hefur verið um festingar á framdekkjum hjólanna og átt við bremsubúnað með alvarlegum afleiðingum. Þetta hefur meðal annars leitt til að a.m.k fjórir nemendur hafa slasast við það að falla af hjólum sínum. Í tilkynningu sem skólinn hefur sent aðstandendum…Lesa meira

true

Stúdentafélög allra háskóla vilja að menntamál verði sett á oddinn

Stúdentafélög allra sjö háskóla á Íslandi hafa hleypt af stokkunum undirskriftasöfnun á www.haskolarnir.is þar sem þess er krafist að stjórnvöld setji menntamál í forgang og fylgi settri stefnu um fjármögnun háskólakerfisins. „Alltof lengi hafa nemendur þurft að búa við undirfjármögnun háskólanna sem bitnar meðal annars á kennslu og aðstöðu í háskólunum og ekki síður framþróun…Lesa meira

true

Veltuaukning í allri tegund verslunar

„Mikil veltuaukning í smásöluverslun í síðasta mánuði sýnir greinileg merki um kaupmáttaraukningu frá sama mánuði í fyrra. Í sumum vöruflokkum jókst veltan um fjórðung frá því í fyrra. Má þar nefna húsgögn, byggingavöru og snjallsíma. Matur og drykkur var heldur ekki skorinn við nögl því velta dagvöruverslana var 9,1% meiri en í september í fyrra…Lesa meira

true

Bleiki dagurinn er í dag

Októbermánuður hefur um nokkurra ára skeið verið tileinkaður vitundarvakningu um krabbamein í konum. Bleika slaufan hefur verið boðin til sölu sem hluti af árverkniátaki Krabbameinsfélagsins og til styrktar félaginu, eins og landsmenn þekkja. Í ár er kastljósinu beint að brjóstakrabbameini, sem er algengasta tegund krabbameins meðal íslenskra kvenna. Áætlað er að á 40 klukkustunda fresti greinist…Lesa meira

true

Íslandsmeistararnir of stór biti fyrir Skallagrím

Í gær tók Skallagrímur á móti Íslands- og bikarmeisturum KR síðasta fimmtudag í annarri umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik. Íslandsmeistararnir höfðu yfirhöndina meira og minna allan leikinn en nýliðar Skallagríms gerðu vel í að standa í þeim á köflum. Þeir urðu þó að játa sig sigraða að leikslokum, 76-90. Leikurinn fór fremur hægt af stað.…Lesa meira

true

Aðalbjörg ráðin útibússtjóri á Snæfellsnesi

Aðalbjörg A. Gunnarsdóttir sem gegnt hefur starfi þjónustustjóra Arion banka í Grundarfirði hefur verið ráðin útibússtjóri bankans á Snæfellsnesi í stað Kjartans Páls Einarssonar sem látið hefur af störfum. „Aðalbjörg mun jafnframt taka við stjórnun útibúsins í Búðardal og verður hún því útibússtjóri þriggja útibúa bankans á Vesturlandi, í Grundarfirði, Búðardal og Stykkishólmi. Aðalbjörg hefur…Lesa meira

true

Gestirnir stungu af rétt fyrir hálfleik

Önnur umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik hófst í gær. Snæfell tók á móti Njarðvík og máttu Hólmarar játa sig sigraða með 83 stig gegn 104 stigum gestanna. Leikurinn var nokkuð jafn framan af fyrsta leikhluta en eftir hann miðjan tóku Njarðvíkingar að síga fram úr og náðu sjö stiga forskoti. En Snæfellsmenn svöruðu strax…Lesa meira

true

Næringarskortur olli sauðfjárdauðanum vorið 2015

„Í tilefni fréttaflutnings í síðustu viku um að orsök sauðfjárdauðans árið 2015 sé óþekkt vill Matvælastofnun árétta fyrra álit sitt um að orsök sauðfjárdauðans árið 2015 hafi verið næringarskortur. Að mati stofnunarinnar má rekja næringarskortinn til margra samverkandi þátta en fyrst og fremst til lélegra heyja vegna vætutíðar sumarið 2014 og til mikils kulda veturinn…Lesa meira

true

Kvenfélagið gaf grunnskólanum hrærivélar

Kvenfélagið Gleym mér ei í Grundarfirði kom færandi hendi í Grunnskóla Grundarfjarðar á dögunum. Þá færðu þær Mjöll og Sólrún Guðjónsdætur skólanum fimm hrærivélar af gerðinni KitchenAid en hrærivélar skólans voru orðnar lúnar og varla nothæfar. Nú geta nemendur grunnskólans hrært í hvers kyns deig og hnossgæti þannig að foreldrar bæjarins eiga von á bragðgóðum…Lesa meira