Fréttir

true

Vegagerðin boðar til íbúafundar á Reykhólum

Vegagerðin hefur boðað til opins fundar á Reykhólum þriðjudaginn 8. nóvember næstkomandi. Um er að ræða kynningarfund á umhverfisáhrifum vegna lagningar nýs Vestfjarðarvegar milli Bjarkalundar og Skálaness. Sem kunnugt er stendur til að fara með veginn um Teigsskóg í Þorskafirði og hefur lengi verið deilt um þá leið. Tillaga að framkvæmdum og skýrsla um mat…Lesa meira

true

Atvinnuleysi er 1,9% á landsbyggðinni

Á þriðja ársfjórðungi þessa árs voru 5.200 einstaklingar án vinnu og/eða í atvinnuleit hér á landi. Atvinnuleysi mælist 2,6%. Atvinnulausum fækkaði frá því á sama tíma og í fyrra um 1.500 manns og hlutfallið lækkaði um 0,9 prósentustig. Atvinnulausar konur voru 2.700 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,9%. Atvinnulausir karlar voru 2.500 eða 2,3%.…Lesa meira

true

Skýrsla birt um húsnæðismál leik- og grunnskóla á Akranesi

Vorið 2015 fékk Gunnar Gíslason það hlutverk að skoða húsnæðis- og aðstöðumál grunnskóla á Akranesi og hefur hann nú skilað skýrslu um efnið. Í skýrslunni kemur fram að starfsmenn skólanna hafi verið fengnir til að velta upp öllum möguleikum um hvort hægt væri að nýta húsnæði grunnskólanna betur eða á annan hátt og bregðast þannig…Lesa meira

true

Skautasvell sett upp við Grundaskóla

Nú er unnið að því að koma upp skautasvelli við Grundaskóla á Akranesi. Það er skólinn sem stendur fyrir verkefninu en að sögn Sigurðar Arnar Sigurðssonar skólastjóra er nú verið að útbúa svæði sem nýtt verður undir skautasvell þegar viðrar fyrir slíkt. „Skautasvellið er hluti af miklum breytingum sem við vinnum að á skólalóðinni okkar.…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Keflavík í kaflaskiptum baráttuleik

Snæfell tók á móti  Keflavík í Domino’s deild kvenna í körfuknattleik í gær.  Leikurinn var mikill baráttuleikur en að lokum fór svo að Snæfell hafði fjögurra stiga sigur, 72-68. Nokkuð jafnræði var með liðunum framan af fyrsta leikhluta en þegar hann var rétt rúmlega hálfnaður tóku Snæfellskonur góðan sprett og skoruðu tíu stig í röð.…Lesa meira

true

Sigrún með þrennu í sigri Skallagríms

Skallagrímur mætti á Hlíðarenda í gær og vann góðan sigur á Val í Domino’s deild kvenna í körfuknattleik, 68-87, í leik  þar sem Sigrún Sjöfn Ámundadóttir fór á kostum og setti upp laglega þrennu. Skallagrímskonur voru sterkari allan leikinn, allt frá fyrstu mínútu. Þær skoruðu fyrstu stig leiksins og höfðu yfirhöndina allt til leiksloka. Góður…Lesa meira

true

Nafni Samkaup verslana breytt í Kjörbúðin

Öllum Samkaup Úrval og Samkaup strax verslunum verður á næstu mánuðum breytt og munu mynda nýja keðju undir heitinu Kjörbúðin. Samkaup reka um fimmtíu verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslanamerki Samkaupa fram að þessu hafa verið Nettó, Samkaup úrval, Samkaup strax og Krambúð. Starfsmenn keðjunnar eru 900 í…Lesa meira

true

Ungir Gamlir í Bíóhöllinni

Síðastliðinn þriðjudag fóru fram tvennir tónleikar í Ungir – Gamlir í Bíóhöllinni á Akranesi. Verkefnið er árlegt samstarfsverkefni grunnskólanna í bæjarfélaginu og Tónlistarskóla Akraness. Fluttur var fjöldi söngatriða þar sem nemendur komu fram einir eða í misstórum hópum. Kynnir var Samúel Þorsteinsson tónlistarkennari, en um undirspil sá húsbandið sem að stórum hluta er skipað félögum…Lesa meira

true

Umferð um Snæfellsnes hefur tvöfaldast á þremur árum

Uppbygging ferðaþjónustu í Snæfellsbæ hefur verið mikil á þessu ári. Svæðið nýtur vinsælda meðal ferðafólks sem einkum sækir það heim vegna náttúrufegurðar og þjóðgarðsins, en ekki síst vegna vaxandi þjónustu sem sífellt er verið að bæta við. Fjölgun ferðamanna er auðveldast að mæla í umferð. Samkvæmt umferðartölum Vegagerðarinnar hefur aukningin orðið gríðarleg á Snæfellsnes. Umferðarteljari…Lesa meira

true

Síðasta sumar hrapaði bæði fjöldi heimsókna og útlána

Bókasafn Grundarfjarðar flutti haustið 2013 í Sögumiðstöðina í Grundarfirði þar sem fyrir voru upplýsingamiðstöð, Bæringsstofa ljósmyndasafn, kaffihús og sýningar Sögumiðstöðvar. Á sumrin er þröng á þingi, húsið er þétt setið ferðamönnum sem sækja upplýsingamiðstöðina, kaffihúsið og Sögumiðstöðina heim. Hefur það orðið til þess að heimsóknum heimamanna á bókasafnið hefur snarfækkað. „Síðasta sumar varð algjör sprenging…Lesa meira