Fréttir

true

Neyðarkall ársins er óveðurskall

Fjáröflunarátakið Neyðarkall björgunarsveita fer fram dagana 3. til 5. nóvember næstkomandi. Um er að ræða eina mikilvægustu fjáröflun björgunarsveitanna í landinu. Neyðarkallinn er lyklakippa með áföstum björgunarsveitamanni sem í ár er óveðurskall. Kallinn er vopnaður skóflu og kaðli sem er nauðsynlegur búnaður óðveðurskallsins sem er klár í íslenska óveðrið og ófærðina sem því fylgir. Á hverju ári…Lesa meira

true

Miklar skipulagsbreytingar framundan á Höfða

Stjórn hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða á Akranesi hefur samþykkt tillögu að skipulagsbreytingum til að spara í rekstrarkostnaði. Tillagan felur í sér að eldhús Höfða verði lokað eftir kl. 16 á daginn og lögð verði niður störf í eldhúsi, samtals 4,55 stöðugildi. Eftir verða 3,5 stöðugildi. Þá verði lögð niður störf í býtibúrum heimilisins, samtals 2,76…Lesa meira

true

Leik Skallagríms flýtt um einn dag

Viðureign Skallagríms og Njarðvíkur í Domino‘s deild karla í körfuknattleik sem fara átti fram föstudaginn hefur verið flýtt um einn sólarhring. Fer hún því fram á fimmtudaginn, 3. nóvember næstkomandi. Leikurinn verður leikinn í Njarðvík og hefst kl. 19:15.Lesa meira

true

Samninganefnd ASÍ boðuð til neyðarfundar

Samninganefnd Alþýðusambands Íslands hefur verið boðuð til fundar í dag klukkan 15 vegna úrskurðar kjararáðs frá því um helgina. „Óhætt er að segja að úrskurður kjararáðs komi eins og blaut tuska í andlit verkalýðshreyfingarinnar sem á þingi ASÍ í síðustu viku fjallaði um mikilvægi sáttar og samstöðu á vinnumarkaði ef það á að vera hægt…Lesa meira

true

Kvíði er viðfangsefni á heilsueflingardegi

„Við erum á hverju ári með einn dag sem tileinkaður er heilsueflingu af einhverju tagi. Að þessu sinni verður viðfangsefni okkar þunglyndi og kvíði,“ segir Rósa Marinósdóttir yfirhjúkrunarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Borgarnesi. Laugardaginn 5. nóvember verður opið hús á heilsugæslustöðinni við Borgarbraut 65 í Borgarnesi frá klukkan 11:00 til 14:30 og þangað er fólk…Lesa meira

true

Heitur pottur brann við sumarhús í Skorradal

Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út klukkan 7:45 í morgun vegna bruna við sumarhús í landi Vatnsenda í Skorradal. Skömmu áður hafði Tryggvi Sæmundsson á Hálsum orðið var við brunalykt. Tryggvi starfar m.a. sem skólabílstjóri og gerði hann Pétri Davíðssyni á Grund viðvart en hélt áfram akstri með börnin. Pétur fór að leita elds og fann…Lesa meira

true

Tveir Sveinar í Vinaminni

Tónleikarnir Tveir Sveinar verða haldnir í Vinaminni á Akranesi laugardaginn 5. nóvember næstkomandi. Fram koma Sveinn Rúnar Sigurðsson, læknir og píanóleikari, og Sveinn Arnar Sæmundsson, organisti við Akraneskirkju, ásamt fjölmörgum góðum gestum. Á dagskrá tónleikanna er frumsamið efni eftir nafnana en einnig tónlist eftir hinn ameríska George Gershwin og píanósnillinginn Fréderic Chopin.  Sveinn Rúnar er þekktari sem…Lesa meira

true

Viðburðaskrá Snorrastofu komin út

Undanfarin haust hefur Snorrastofa í Reykholti gefið út yfirlit þeirra viðburða sem hún stendur fyrir og nú hefur skrá komandi vetrar litið dagsins ljós og verið borin til heimila á Vesturlandi. Auk þess að tilgreina viðburðina kynnir stofnunin einnig bókaútgáfu og aðstöðu til fræðistarfa og listsköpunar, sem er eftirsótt og aðlaðandi. Í skránni kennir margra…Lesa meira

true

Listi yfir húsanöfn á Akranesi

Í síðasta tölublaði Skessuhorns birtist grein með fyrirsögninni „Af gömlum götunöfnum á Akranesi.“ Þar var fjallað um götunöfn að fornu og nýju. Bæta má því við að á vef Akraneskaupstaðar er hægt að finna skrá yfir húsanöfn á Akranesi. Það er skrá þar sem öllum eldri húsum sem hafa nöfn er raðað eftir stafrófsröð. Í…Lesa meira