
Félagarnir Alexander Ólafsson, Gunnbjörn Jóhannsson, Kristjón Sigurðsson og Ólafur Sveinsson færðu Auðarskóla í Dölum nýverið þrívíddarprentara og skanna að gjöf til minningar um Jóhannes Benediktsson frá Saurum í Laxárdal. Með gjöfinni vilja þeir gefa ungu fólki í Dölum tækifæri til að kynnast nýrri tækni með þeim tilgangi að örva nýsköpunarhugsun og að efla frumkvæði nemenda.…Lesa meira








