Fréttir

true

Rithöfundar lesa úr verkum sínum á Bókasafni Akraness

Menningarhátíðin Vökudagar er nú hafin á Akranesi, en hátíðin var sett í gær, fimmtudag. Ýmsir fjölbreyttir viðburðir eru á döfinni um allan Akranesbæ næstu daga og einn af þeim er árlegt rithöfundakvöld sem haldið er á Bókasafni Akraness á mánudagskvöldið. Rithöfundakvöldið er ávallt vel sótt og þykir ein af perlum Vökudaga. Verkefnið er styrkt af…Lesa meira

true

Færðu Auðarskóla þrívíddarprentara og skanna að gjöf

Félagarnir Alexander Ólafsson, Gunnbjörn Jóhannsson, Kristjón Sigurðsson og Ólafur Sveinsson færðu Auðarskóla í Dölum nýverið þrívíddarprentara og skanna að gjöf til minningar um Jóhannes Benediktsson frá Saurum í Laxárdal. Með gjöfinni vilja þeir gefa ungu fólki í Dölum tækifæri til að kynnast nýrri tækni með þeim tilgangi að örva nýsköpunarhugsun og að efla frumkvæði nemenda.…Lesa meira

true

Útlagastjórn Bíldalíu verður stofnuð á sunnudaginn

Síðan sjálfstjórnarríkið Bíldalía hvarf inn í annan heim fyrir skömmu hefur konungur þess og hirð hans verið á vergangi. Aðalbornir Bíldælir hafa þó ekki setið auðum höndum í útlegðinni, heldur hafa nótt sem nýtan daga leitað að ákjósanlegum stað til að endurreisa ríkið á nýjum stað. Nú er sá staður fundinn. „Stefnan er að stofna…Lesa meira

true

Opnar sýninguna: Hver vegur að heiman er vegur heim

Sýning Gyðu L. Jónsdóttur Wells, Hver vegur að heiman er vegur heim, verður opnuð í Guðnýjarstofu á Akranesi síðdegis í dag. Er opnunin liður í menningarhátíðinni Vökudögum en sýningin verður opin gestum og gangandi þar til undir lok nóvembermánaðar. Sýningarstjóri er Guðrún Sigríður Haraldsdóttir, listamaður og sýningahönnuður, sem kemur frá London gagngert til að vinna…Lesa meira

true

Friðurinn úti fyrir rjúpuna

Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun. Veiðimenn um allt land búa sig nú undir veiðar og farnar eru að berast frá þeim yfirlýsingar á samskiptasíðum á borð við: „Búinn að kjósa og ekkert að vanbúnaði.“ Þeir hinir sömu ætla að leggja í langferð um helgina og vera á veiðum fram á sunnudag. Heimilt verður að veiða rjúpur…Lesa meira

true

Fjórir flokkar mynda kosningabandalag

Stjórnarandstöðuflokkarnir á Alþingi; Píratar, Björt framtíð, Samfylkingin og Vinstri hreyfingin grænt framboð, ætla að reyna að mynda meirihlutastjórn eftir kosningar, fái þeir til þess umboð. Samhljóða yfirlýsingu þar að lútandi birtu forsvarsmenn flokkanna á Facebook í dag eftir fund sem þá var nýlokið. Forsvarsmenn flokkanna segjast hafa á tveimur fundum farið yfir áherslumál flokkanna og…Lesa meira

true

Tax Free dagar hafnir á Akranesi

Sextán verslanir og þjónustuaðilar á Akranesi hafa tekið höndum saman og auglýsa í fjölmiðlum Tax Free daga fimmtudag til laugardags, dagana 27.-29. október. Þá fá viðskiptavinir frá 15% afslátt af vörum líkt og erlendir ferðamenn fá þegar þeir versla hér á Íslandi. Misjafnt er hvort fyrirtækin veita afslátt af öllum vörum eða völdum vöruflokkum og…Lesa meira

true

Spáð éljum á fjallvegum í nótt

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er nú spáð að kólni í veðri, einkum um landið vestan- og norðvestanvert. „Á fjallvegum á Vestfjörðum má gera ráð fyrir éljum eða snjómuggu með tilheyrandi hálku frá því upp úr miðjum degi. Eins vestantil á Norðurlandi í kvöld s.s. á Þverárfjalli og Öxnadalsheiði. Seint í kvöld og í nótt frystir…Lesa meira

true

Segir eflingu heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni mikið forgangsmál

Elsa Lára Arnardóttir skipar annað sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir kosningarnar á laugardaginn. Elsa Lára ólst upp í Stóra – Lambhaga og á Akranesi til ellefu ára aldurs en flutti þaðan austur á Hornafjörð. Hún hafði alltaf sterkar taugar til Akraness og kom því til baka og hóf nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands á…Lesa meira

true

Hryllingsmyndahátíð á Akranesi í nóvember

Helgina 25.-27. nóvember næstkomandi verður kvikmyndahátíðin Frostbiter haldin í Bíóhöllinni á Akranesi. Aðstandendur hátíðarinnar eru Skagamaðurinn Ársæll Rafn Erlingsson og Lovísa Lára Halldórsdóttir. Hátíðin hefur þá sérstöðu að einungis verða sýndar hryllingsmyndir og eru það nýmæli hér á landi. Hátíðargestir standa frammi fyrir miklu úrvali af myndum en rúmlega fjörutíu kvikmyndir verða sýndar á hátíðinni,…Lesa meira