Fréttir

true

Bætt félagsaðstaða hefur verið draumsýn okkar í mörg ár“

Forsvarsmenn Golfklúbbsins Leynis hafa kynnt bæjaryfirvöldum á Akranesi hugmyndir sínar um nýja félagsaðstöðu í stað þeirrar sem nú stendur við Garðavöll. „Núverandi húsnæði takmarkar okkar starfsemi töluvert og er orðið barn síns tíma. Húsið var byggt um miðja síðustu öld, er orðið lúið og hentar ekki nægilega vel til að við getum haldið áfram uppbyggingu…Lesa meira

true

Nýr keppnishringur tekinn í notkun á móti hnefaleikafélagsins

Laugardaginn 8. október nk. mun Hnefaleikafélag Akraness, sem er aðili að Íþróttabandalagi Akraness, standa fyrir hnefaleikamóti í Íþróttahúsinu við Vesturgötu. Mótið hefst klukkan 17:00. Á mótinu verður vígður nýr keppnishringur Hnefaleikafélagsins á Akranesi en hann er sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi. Hringurinn er sérstakur að því leyti að hann er ekki upphækkaður eins…Lesa meira

true

Grímshússfélagið leitar að leigjendum

Stjórn Grímshússfélagsins í Borgarnesi auglýsir hér með eftir áhugasömum aðilum til að leigja Grímshús í Brákarey í Borgarnesi. Áhugasamir skulu leggja fram hugmyndir sínar og áætlanir um þá starfsemi sem þeir hyggjast hafa í húsinu. Til greina kemur að leigja húsið út til nokkurra ára ef samkomulag næst. Stærð hússins er um 167m2 auk millilofts.…Lesa meira

true

Grútarmengun í Rifshöfn

Mikil grútarlykt er á Rifi þessa dagana vegna makríls sem drapst í höfninni fyrr í þessum mánuði. Er fjaran öll þakin grút og lyktin eftir því. Kafað var í höfninni á dögunum til að athuga hvernig ástandið væri á botninum. Töluvert magn af dauðum makríl liggur þar og ekki von á að ástandið batni mikið…Lesa meira

true

Segir góð fjarskipti ásamt raforku vera bakstykkið að uppbyggingu í kjördæminu

Skessuhorn mun í þeim tölublöðum sem koma út fram að kosningum til Alþingis 29. október næstkomandi eiga samtal við fulltrúa þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram lista í Norðvesturkjördæmi. Ekki liggur enn nákvæmlega fyrir hve mörg framboðin verða. Kann því að vera að einhverjir listar eigi enn eftir að líta dagsins ljós. Haraldur Benediktsson skipar oddvitasætið…Lesa meira

true

Heimsókn Skagafólks til Tønder Kommune

Ný stjórn FEBAN, Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni, tók til starfa í vetrarlok. Farið var að hugleiða hvernig best væri að auka starfið og fá fleiri félagsmenn til að taka þátt en tiltölulega fáir eru virkir þátttakendur, eða u.þ.b. 150 af tæplega 700 félögum. Jóhannes Finnur Halldórsson nýr formaður taldi það athugandi að…Lesa meira

true

Haustþing SSV verður í næstu viku

Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verður haldið á Hótel Stykkishólmi miðvikudaginn 5. október. Á þingið mæta fulltrúar allra sveitarfélaga á Vesturlandi og ræða málefni komandi vetrar. Dagskrá þingsins verður að mestu með hefðbundnu sniði. Formaður eða framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga flytur ávarp og stóra málið á dagskrá er fjárhagsáætlun SSV fyrir komandi ár. Þá má…Lesa meira

true

Bláu ljósin komu til bjargar

Tvær erlendar stúlkur, höfðu samband við Lögregluna á Vesturland símleiðis í vikunni og sögðu farir sínar ekki alveg rennisléttar. Þær hefðu ekið út á Snæfellsnes og lagt af stað gangandi frá bílnum í björtu og góðu veðri en síðan hefðu þær villst þegar farið var að skyggja og það væri komið óveður og þær vissu…Lesa meira

true

Slóu út til að ná sambandi við tónleikahaldara

Lögreglan á Vesturlandi var kölluð til vegna tónlistarhávaða frá íbúð í Ólafsvík að næturlagi um liðna helgi. Ekki reyndist unnt að ná tali af heimilisfólkinu og var því brugðið á það ráð að slá rafmagninu út af húsinu tímabundið og dugði það til að slá græjurnar út af laginu. Nágrannar voru að vonum fegnir með…Lesa meira

true

Akurey AK-10 sjósett í Tyrklandi

Nýsmíðin Akurey AK-10 var sjósett hjá Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul í Tyrklandi í dag. Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Sturlaugi H. Böðvarssyni AK, var um borð þegar skipinu var rennt á flot, en hann skipstjóri á Akurey. Á vef HB Granda segir að skipið sé nýsmíði nr. CS 48 hjá skipasmíðastöðinni Celiktrans í Istanbul Tyrklandi og…Lesa meira