Fréttir

true

Vatnsmótið stóð undir nafni

Vatnsmótið í golfi fór fram á Garðavelli á Akranesi laugardaginn 24. september. Mótið er innanfélagsmót kylfinga í Golfklúbbnum Leyni og eitt elsta innanfélagsmót klúbbsins. Dregur það nafn sitt af miklu vatnsveðri sem var þegar mótið var haldið í fyrsta sinni árið 1970. Stóð mótið sannarlega undir nafni að þessu sinni. Þegar kylfingar höfðu leikið fyrstu…Lesa meira

true

Sterkari karakter nær lengra innan sem utan vallar

„Árangur í íþróttum snýst ekki aðeins um líkamlega getu. Hann snýst líka um að leikmenn þurfa að hafa gott hugarfar og vera góðir liðsmenn. Með markvissri þjálfun karaktera í börnum og ungmennum þá styrkjum við þau fyrir lífið, þátttöku í samfélaginu og aukum líka möguleika þeirra inni á íþróttavellinum,“ segir Viðar Halldórsson lektor í félagsfræði…Lesa meira

true

Björt framtíð vill eiga tal við bændur

Björt framtíð vekur athygli á því að þingmenn og frambjóðendur Bjartrar framtíðar munu halda fund með bændum á Vesturlandi til að ræða um búvörusamningana. Fundurinn verður haldinn í félagsheimilinu Breiðabliki í Eyja- og Miklaholtshreppi í kvöld, þriðjudaginn 27. september klukkan 21:00. „Fundurinn er öllum opinn og búast má við fjölmenni,“ segir í tilkynningu. Óttarr Proppé, Björt…Lesa meira

true

Borgarbyggð semur um hönnun ljósleiðara

Síðastliðinn föstudag var skrifað undir samning um frumhönnun og kostnaðargreiningu á lagningu ljósleiðara í Borgarbyggð. Samið var við Snerru ehf um verkið. „Hér er um að ræða fyrstu skref í átt að ljósleiðaravæðingu alls sveitarfélagsins en vonir stands til þess að verkefnið komist á framkvæmdastig hið fyrsta,“ segir Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri í samtali við…Lesa meira

true

Heilladísirnar kvöddu Alla og Sigga fyrir síðustu sérleiðina

Síðasta umferð Íslandsmótsins í rallý var ekin laugardaginn 24. september. Bifreiðaríþróttaklúbbur Reykjavíkur stóð fyrir keppninni en ekið var um Kaldadal í Borgarfirði og Skjaldbreiðarveg, sem er línuvegur frá Kaldadal yfir að Gullfossi. Eru þetta langar og krefjandi leiðir sem reyna mikið á bíla og áhafnir. Einungis tíu áhafnir mættu til leiks en mikil spenna var…Lesa meira

true

Úrskurðarnefnd fellir úr gildi breytt deiliskipulag í Borgarnesi

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað síðastliðinn föstudag upp þann úrskurð að breytt deiliskipulag fyrir nýbyggingar við Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi væri ekki í samræmi við aðalskipulag og felldi skipulagið úr gildi. Framkvæmdir á byggingarstað voru samdægurs stöðvaðar og nú tekur við vinna við breytingu á aðal- og deiliskipulagi sem vafalítið mun taka nokkra mánuði. „Ákvörðun…Lesa meira

true

Skagakonur eru fallnar eftir tap gegn Blikum

Skagakonur heimsóttu Breiðablik í 17. umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu á laugardag. Lið ÍA var sem kunnugt er á botni deildarinnar fyrir leikinn og hefði þurft á sigri að halda gegn sterku liði Blika, auk hagstæðra úrslita í leikjum liðanna fyrir ofan, til að eiga möguleika á að halda sæti sínu í deildinni. Bæði…Lesa meira

true

Umdeilt atvik kostaði Víking Ó. stig í fallbaráttunni

  Víkingur Ó. tók á móti KR í 21. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Ólafsvíkurliðið hefur átt erfitt uppdráttar á síðari hluta móts en með hagstæðum úrslitum hefði liðið getað gulltryggt sæti sitt í deildinni. Svo varð hins vegar ekki, því gestirnir sigruðu með einu marki gegn engu. Víkingar voru sterkari á…Lesa meira

true

Hyggjast leita réttar síns þrátt fyrir dóm Hæstaréttar

Hæstiréttur kvað á fimmtudaginn upp dóm í máli sem BB og synir ehf. í Stykkishólmi höfðuðu gegn Sæferðum í Stykkishólmi vegna tjóns sem varð á vöruflutningabifreið og gámi um borð í Breiðafjarðarferjunni Baldri í desember 2011. Hæstiréttur staðfesti dóm sem kveðinn hafði verið upp í héraði þar sem Sæferðir voru sýknaðar af bótakröfu og dæmdi…Lesa meira

true

Góður síðari hálfleikur skóp sigur Skagamanna

ÍA tók á móti Breiðabliki í 21. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gær. Skagamenn höfðu að litlu að keppa í þessum næstsíðasta leik sumarsins, siglda lygnan sjó um miðja deild. Blikar voru hins vegar í mikilli baráttu við Stjörnuna um 2. sæti deildarinnar og þar með Evrópusæti. Leiknum lauk engu að síður með…Lesa meira