Fréttir

true

Haustmót eldri púttara í Borgarbyggð

Pútthópur eldri borgara í Borgarbyggð endaði sumarið á Haustmóti að Hamri 13. september. Um 20 eldri púttar hafa æft að kappi í sumar og framfarir hafa verið góðar hjá mörgum einstaklingum. Haustmótið var þriggja daga keppni og gilti samanlagður árangur. Leikið var 6., 8., og 13. september. Í kvennaflokki varð Lilja Ólafsdóttir hlutskörpust með 203…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkur og Píratar hnífjafnir í fylgi

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 12. til 19. september síðastliðinn. Samkvæmt niðurstöðum mældust Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar með jafn mikið fylgi – eða 22,7% hvor flokkur fyrir sig. Fylgi Vinstri-grænna mældist 13,2% og hefur verið svotil stöðugt síðan í seinnihluta júlí þegar fylgi flokksins mældist 12,9%. Viðreisn mældist með 11,5% fylgi,…Lesa meira

true

Dalabyggð hyggst selja mannvirkin að Laugum í Sælingsdal

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi fyrr í þessari viku að undirbúa sölu eigna sveitarfélagsins að Laugum í Sælingsdal, eins og gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2017-2029. Skipulagsstofnun hefur heimilað að samþykkt deiliskipulag fyrir Laugar verði auglýst og því hægt að undirbúa sölu eigna. Eignir sveitarfélagsins að Laugum eru helmingur í jörðinni Laugum, lóð…Lesa meira

true

Strætó ekur nú nýja leið um Snæfellsnes

Strætó hefur bætt við nýrri leið við reglubundinn akstur sinn um Vesturland. Sú leið er númer 86 og gengur um sunnanvert Snæfellsnes, á milli Hellna og Vegamóta en vagninn stoppar einnig á Arnarstapa. Vagninn ekur einungis á föstudögum og sunnudögum og fer til og frá Borgarnesi, í tengslum við leið 58 sem fer á milli…Lesa meira

true

Stykkishólmsbær hefur tekið nýja heimasíðu í notkun

Um nokkurt skeið hefur verið unnið að uppsetningu nýrrar heimasíðu fyrir sveitarfélagið Stykkishólmsbæ. Hefur það verkefni verið í höndum Hermanns Hermannssonar, ritara bæjarstjóra, með faglegri ráðgjöf Önnu Melsteð hjá Anok margmiðlun ehf. Endurgerð hýsing vefsins www.stykkisholmur.is var unnin af hugbúnaðarfyrirtækinu Advania, sem átti hagstæðasta tilboðið í þann hluta verkefnisins. Þetta kemur fram í tilkynningu Sturlu…Lesa meira

true

Greiðslukortavelta ferðamanna jókst mikið

Í ágúst jókst erlend kortavelt hérlendis um 38%, nam 30,6 milljörðum króna samanborið við 22,2 milljarða í sama mánuði 2015. Það sem af er ári hafa erlendir ferðamenn greitt tæpa 162 milljarða með kortum sínum en til samanburðar var erlend greiðslukortavelta allt árið í fyrra 154,4 milljarðar króna. Líkt og undanfarna mánuði var vöxtur í öllum…Lesa meira

true

Búvélasafnið afsetur fornvélar og varahluti

Um þessar mundir er verið að tæma geymslu sem Búvélasafnið gamla á Hvanneyri hafði fyrir gripi sem það safnaði og að því söfnuðust, þar sem eigandi geymslunnar (LbhÍ) hefur ráðstafað henni til annarra nota. „Búið er að fara yfir þennan söfnuð og taka til framtíðargeymslu þá gripi sem Landbúnaðarsafn tekur til skráningar og varðveislu og…Lesa meira

true

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin

Kosið verður til Alþingis laugardaginn 29. október næstkomandi. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin hjá sýslumönnum landsins á almennum afgreiðslutímum. Hér á Vesturlandi er hægt að kjósa á fimm stöðum; á Akranesi, í Borgarnesi, Búðardal og Stykkishólmi alla virka daga, en auk þess á afgreiðslutímum í Ólafsvík á þriðjudögum og fimmtudögum. Kosningarétt hafa íslenskir ríkisborgarar sem…Lesa meira

true

Borgarfjarðarbrúin verður á næsta ári lengsta brú landsins

Borgarfjarðarbrú hefur frá upphafi verið næstlengsta brú landsins, en hún er 520 metrar. Brúin var vígð 13. september árið 1981 og er því nýorðin 35 ára. Ítarlega var fjallað um brúarsmíðina í Skessuhorni í þessari viku. Einungis Skeiðarárbrú er lengri en brúin yfir Borgarfjörð, en hún er nú 880 metrar, var stytt um 24 metra í…Lesa meira

true

Sauðamessa framundan í Borgarnesi

Laugardaginn 1. október verður hin árlega Sauðamessa haldin í Borgarnesi. Þetta er í þrettánda sinn sem hátíðin er haldin og að vanda verður dagskráin með fjölbreyttu sniði, en þó með einhverjum breytingum frá fyrri árum. Hlédís Sveinsdóttir og Rúnar Gíslason sjá um skipulagningu Sauðamessunnar í ár, líkt og undanfarin ár. „Við byrjum reyndar á föstudeginum…Lesa meira