
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Borgarbyggðar síðastliðinn föstudag var tekin fyrir og samþykkt umsókn Húsa og lóða ehf. vegna væntanlegra bygginga við Borgarbraut 57 til 59 í Borgarnesi. Þar er sótt um byggingarleyfi fyrir íbúðarhús fyrir 60 ára og eldri, þjónustukjarna og hótel samkvæmt aðaluppdráttum Sigursteins Sigurðssonar arkitekts hjá Gjafa ehf. Í fundargerð segir að fyrirhugaðar framkvæmdir…Lesa meira








