Fréttir

true

Gestirnir stungu af rétt fyrir hálfleik

Önnur umferð Domino‘s deildar karla í körfuknattleik hófst í gær. Snæfell tók á móti Njarðvík og máttu Hólmarar játa sig sigraða með 83 stig gegn 104 stigum gestanna. Leikurinn var nokkuð jafn framan af fyrsta leikhluta en eftir hann miðjan tóku Njarðvíkingar að síga fram úr og náðu sjö stiga forskoti. En Snæfellsmenn svöruðu strax…Lesa meira

true

Næringarskortur olli sauðfjárdauðanum vorið 2015

„Í tilefni fréttaflutnings í síðustu viku um að orsök sauðfjárdauðans árið 2015 sé óþekkt vill Matvælastofnun árétta fyrra álit sitt um að orsök sauðfjárdauðans árið 2015 hafi verið næringarskortur. Að mati stofnunarinnar má rekja næringarskortinn til margra samverkandi þátta en fyrst og fremst til lélegra heyja vegna vætutíðar sumarið 2014 og til mikils kulda veturinn…Lesa meira

true

Kvenfélagið gaf grunnskólanum hrærivélar

Kvenfélagið Gleym mér ei í Grundarfirði kom færandi hendi í Grunnskóla Grundarfjarðar á dögunum. Þá færðu þær Mjöll og Sólrún Guðjónsdætur skólanum fimm hrærivélar af gerðinni KitchenAid en hrærivélar skólans voru orðnar lúnar og varla nothæfar. Nú geta nemendur grunnskólans hrært í hvers kyns deig og hnossgæti þannig að foreldrar bæjarins eiga von á bragðgóðum…Lesa meira

true

Íslandspóstur orðinn þjónusturáðgjafi Símans

Síminn hefur gert samning við Íslandspósts um að veita viðskiptavinum Símans ýmsa þjónustu um allt land. Ráðgjafar Símans verða hjá Póstinum á Akranesi, 14. október milli kl. 9 – 16:30. „Kíktu endilega við og fáðu aðstoð faglegra ráðgjafa varðandi síma- og netmál þín,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Framsóknarmenn stefna á þrjá þingmenn í kjördæminu

Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipar á ný fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, sem að venju býður fram undir listabókstafnum B. Gunnar Bragi er fæddur og uppalinn á Sauðárkróki þar sem hann stundaði hefðbundna skólagöngu, sinnti félagsstörfum og tók virkan þátt í félagslífi. Hann lauk stúdentsprófi frá FNV á Sauðárkróki 1989 og…Lesa meira

true

Stafrófur þessa hausts komnar í sölu

„Uppskeran er ágæt enda hefur tíðarfarið í sumar verið gott,“ segir Bergþór Jóhannesson bóndi á Stafholtsveggjum í Borgarfirði. Hann sáði í maí fyrir rófum í tæpan hektara lands og lét acryl-flugnadúk hlífa plöntunum þar til nýlega. Bergþór er þessa dagana að taka upp en nauðsynlegt er að ljúka því í tæka tíð fyrir frost. Hann…Lesa meira

true

Vatnavextir talsverðir í úrhellisrigningu

Frá þriðjudegi og til dagsins í dag gerði óvenjulega mikla úrkomu hér á landi. Lægðin var eftirstöðvar fellibylsins Matthíasar sem varð að fellibyl á Karabíska hafinu en teygði síðan anga sína hingað. Miðað við mælingar Veðurstofunnar rigndi mest á Barðaströnd, Snæfellsnesi og á svæðinu við Mýrdalsjökul. Bráðnun var mikil í jöklum og raunar má segja að…Lesa meira

true

Björt framtíð kynnir fullskipaðan lista í NV kjördæmi

Björt framtíð hefur nú ákveðið endanlega röðun á framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Áður höfðu efstu fimm sætin verið kynnt. Fyrsta sæti á lista Bjartrar framtíðar í Norðvesturkjördæmi skipar G. Valdimar Valdemarsson, framkvæmdastjóri. Hann tók þátt í að stofna Bjarta framtíð með þá von í brjósti að Björt framtíð gæti unnið öðruvísi. Hann telur að fulltrúar…Lesa meira

true

Nýr vefur fyrir myndasafn Bærings

Grundarfjarðarbær hefur opnað vef fyrir myndasafn Bærings heitins Cecilssonar á slóðinni baeringsstofa.is. Bæring Cecilsson var ljósmyndari af lífi og sál en hann fæddist árið 1923 og bjó alla tíð í Grundarfirði, eða allt þar til hann lést 2002. Eftir hann liggur ógrynni af ljósmyndum og myndböndum sem vefurinn mun gera skil. Í myndum Bærings má…Lesa meira

true

Skattar af ferðamönnum áætlaðir 445 milljarðar á næsta kjörtímabili

Á fundi sem Samtök ferðaþjónustunnar efndu til með fulltrúum stjórnmálaflokka í Suðvesturkjördæmi í vikunni kom fram að SAF áætlar að ríkissjóður fái 445 milljarða króna í skatta og gjöld af erlendum ferðamönnum á næstu fjórum árum. Þessi áætlun byggir á spá um 13-20% fjölgun ferðamanna á ári á tímabilinu. Áætlað er að erlendir ferðamenn skili…Lesa meira