Fréttir

true

Vatnavextir talsverðir í úrhellisrigningu

Frá þriðjudegi og til dagsins í dag gerði óvenjulega mikla úrkomu hér á landi. Lægðin var eftirstöðvar fellibylsins Matthíasar sem varð að fellibyl á Karabíska hafinu en teygði síðan anga sína hingað. Miðað við mælingar Veðurstofunnar rigndi mest á Barðaströnd, Snæfellsnesi og á svæðinu við Mýrdalsjökul. Bráðnun var mikil í jöklum og raunar má segja að…Lesa meira

true

Björt framtíð kynnir fullskipaðan lista í NV kjördæmi

Björt framtíð hefur nú ákveðið endanlega röðun á framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Áður höfðu efstu fimm sætin verið kynnt. Fyrsta sæti á lista Bjartrar framtíðar í Norðvesturkjördæmi skipar G. Valdimar Valdemarsson, framkvæmdastjóri. Hann tók þátt í að stofna Bjarta framtíð með þá von í brjósti að Björt framtíð gæti unnið öðruvísi. Hann telur að fulltrúar…Lesa meira

true

Nýr vefur fyrir myndasafn Bærings

Grundarfjarðarbær hefur opnað vef fyrir myndasafn Bærings heitins Cecilssonar á slóðinni baeringsstofa.is. Bæring Cecilsson var ljósmyndari af lífi og sál en hann fæddist árið 1923 og bjó alla tíð í Grundarfirði, eða allt þar til hann lést 2002. Eftir hann liggur ógrynni af ljósmyndum og myndböndum sem vefurinn mun gera skil. Í myndum Bærings má…Lesa meira

true

Skattar af ferðamönnum áætlaðir 445 milljarðar á næsta kjörtímabili

Á fundi sem Samtök ferðaþjónustunnar efndu til með fulltrúum stjórnmálaflokka í Suðvesturkjördæmi í vikunni kom fram að SAF áætlar að ríkissjóður fái 445 milljarða króna í skatta og gjöld af erlendum ferðamönnum á næstu fjórum árum. Þessi áætlun byggir á spá um 13-20% fjölgun ferðamanna á ári á tímabilinu. Áætlað er að erlendir ferðamenn skili…Lesa meira

true

Skuggakosningar í framhaldsskólum

Skuggakosningar fara fram í framhaldsskólum um land allt í dag. Skuggakosningar eru kosningar þar sem nemendur framhaldsskólanna fá að segja sína skoðun og er þetta í fyrsta sinn sem slíkar kosningar eru haldnar hér á landi. Kosningin er hluti af #egkys herferðinni sem hefur það að markmiði að efla lýðræðisvitund ungs fólks og hvetja það til að…Lesa meira

true

Jafnaðarmenn setja heilbrigðisþjónustuna, málefni eldri borgara og húsnæðismál á oddinn

Guðjón S. Brjánsson skipar oddvitasætið á lista Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi, sem að venju býður fram undir listabókstafnum S. Guðjón er fæddur á Akureyri 1955 og er kvæntur Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið og eiga þau tvo syni og fimm barnabörn. Hann lærði félagsráðgjöf í Noregi og stundaði stjórnunarnám í Bandaríkjunum í eitt ár. Samhliða starfi nam hann…Lesa meira

true

Gefa út Vísnakver Jóhannesar úr Kötlum

Um þessar mundir er að koma út Vísnakver Jóhannesar úr Kötlum. Um er að ræða bók sem samanstendur af lausavísum sem Jóhannes orti við ýmis tækifæri, stundum í samstarfi við aðra og í nokkrum tilvikum er um að ræða vísur sem aðrir ortu til hans. Það er bókaútgáfan Griffla sem gefur út bókina en að…Lesa meira

true

„Skattaumhverfið stendur litlum fyrirtækjum fyrir þrifum“

G Valdimar Valdemarsson skipar oddvitasæti Bjartrar framtíðar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi kosningar. „Ég er fæddur og uppalinn á Skagaströnd og er kvæntur Sigurlínu H. Steinarsdóttur frá Borgarnesi. Saman eigum við eina dóttur en Sigurlína átti tvær fyrir. Nú erum við orðin afi og amma og að rifna úr stolti,“ segir G. Valdimar í samtali við…Lesa meira

true

Skallagrímur vann góðan heimasigur á Grindavík

Skallagrímur tók á móti Grindavík í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikurinn var jafn og spennandi, Skallagrímskonur höfðu þó yfirhöndina allan tímann en náðu aldrei að hrista Grindvíkinga af sér. En að lokum fór svo að Borgnesingar unnu góðan sigur með 80 stigum gegn 72. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínútur leiksins og eftir…Lesa meira

true

Fögnuðu 35 ára afmæli Grundaskóla

Fimmtudaginn 6. október var haldið upp á 35 afmæli Grundaskóla á Akranesi með ýmsum hætti. Farið var í skrúðgöngu um morguninn frá skólanum og í íþróttahúsið að Jaðarsbökkum þar sem fram fór samsöngur hjá öllum bekkjardeildum skólans. Þá var starfsfólki boðið í afmæliskaffi en í Safnaskálanum í Görðum var opnuð leikmunasýning úr söngleikjum skólans. Það…Lesa meira