Fréttir

true

Hvessir í kvöld við fjöll á vestanverðu landinu

Það hvessir heldur í kvöld frá því sem verið hefur og reikna má með snörpum hviðum, eða 30-35 m/s, frá því um klukkan 19-21 á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á norðanverðu Snæfellsnesi.  Dregur aftur úr vindi í nótt. „Ágætt er líka að hafa í huga að veggrip er mun lakara á umræddum vegum í því…Lesa meira

true

Fundað með frambjóðendum um ferðamál

„Ætla stjórnmálin að sitja hjá?“ er yfirskrift opins fundar með stjórnmálamönnum í Norðvesturkjördæmi þar sem fjallað verður um ferðaþjónustu. Fundurinn verður í Hjálmakletti í Borgarnesi annað kvöld, fimmtudaginn 13. október klukkan 20. Bein útsending frá fundinum verður á sjónvarpsstöðinni N4 og á saf.is „Í aðdraganda alþingiskosninga standa Samtök ferðaþjónustunnar fyrir opnum fundum um stöðu ferðaþjónustunnar…Lesa meira

true

Frambjóðendur sátu fyrir svörum í FVA

Frambjóðendur átta stjórnmálaflokka í Norðvesturkjördæmi sátu í morgun fyrir svörum í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Þrátt fyrir að Alþingi sé enn starfandi standa framboðsfundir nú sem hæst enda styttist óðum í kosningar. Á fundinum á sal FVA voru fulltrúar frá Bjartri framtíð, Dögun, Framsóknarflokki, Pírötum, Samfylkingu, Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Vinstri grænum. Fundurinn byrjaði á að flokkarnir kynntu…Lesa meira

true

Snæfell sigraði Val á flautukörfu

  Snæfell vann hádramatískan sigur á Val þegar liðin mættust í Dominos ‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda og úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. Snæfell hafði yfirhöndina í fyrsta leikhluta en leikurinn fór fremur rólega af stað hvað stigaskorun varðar, en staðan var…Lesa meira

true

Ríflega fimmtán þúsund laxar komu á land á Vesturlandi

Laxveiðisumarið 2016 einkenndist af góðri stórlaxaveiði í flestum ám, en minna fékkst af smálaxi. Veiðin var almennt yfir langtíma meðaltali í flestum ám. Laxveiðitímabilinu er nú lokið. Í sumar veiddust 53.600 laxar og í heild var fjöldi stangveiddra laxa um 27% yfir langtímameðaltali áranna 1974-2015 sem er 42.137 laxar. Á Vesturlandi komu ríflega 15 þúsund…Lesa meira

true

Menningarhátíðin Norðurljósin í Stykkishólmi

Norðurljósin, menningarhátíð í Stykkishólmi, verður haldin hátíðleg dagana 20.-23. október. Undirbúningsnefnd hátíðarinnar vinnur nú í óða önn að dagskrárgerð. Meðal dagskráliða er norðurljósa- og stjörnuskoðunarferð sem Facebookhópurinn Ferðafélag barnanna í Stykkishólmi og nágrenni stendur fyrir. Þá verður gengið stuttan spöl frá félagsheimilinu Skildi í Helgafellssveit, þar sem þátttakendur hittast, og fundinn góður staður til að…Lesa meira

true

Dagskrá Vökudaga fjölbreytt og skemmtileg

Nú líður að menningarhátíðinni Vökudögum sem haldin er á hverju hausti á Akranesi. Hátíðin mun að þessu sinni standa yfir í ellefu daga, hefjast fimmtudaginn 27. október og standa til sunnudagsins 6. nóvember. „Það hefur myndast hefð fyrir því að vera með upptaktsatriði daginn áður en hátíðin er formlega sett og í ár verða íslenskir…Lesa meira

true

Ferðamál voru til umræðu í pallborði á Haustþingi SSV

Á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem fram fór í Stykkishólmi í síðustu viku, fóru fram pallborðsumræður undir stjórn Gísla Einarssonar fréttamanns. Fjallað var um ferðaþjónustu og hlutverk sveitarfélaga í uppbyggingu hennar. Þátttakendur í pallborðinu voru Hrafnhildur Víglundsdóttir verkefnastjóri Ferðamálastofu Íslands, Skapti Ólafsson upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar, Sigríður Margrét Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri í Landnámssetrinu í Borgarnesi, Guðjón…Lesa meira

true

Stoltir nemendur með fjörutíu kílóa uppskeru

Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Snæfellsbæjar á Hellissandi nýttu sér góða veðrið í lok september til að sinna haustverkum en í vor settu þau niður kartöflur í matjurtargarð skólans. Verkefnið er hluti af átthagafræðinámi skólans en þau létu kartöflurnar spíra í vor og með aðstoð kennara og starfsfólks stungu þau upp garðinn og settu kartöflurnar…Lesa meira

true

Ríkið eignast afrétti, jökla og úthaga víða í Borgarfirði

Óbyggðanefnd kvað í dag upp úrskurði í ágreiningsmálum um þjóðlendur í Borgarfjarðar- og Mýrasýslu auk Langjökuls, að undanskildum fyrrum Kolbeinsstaðahreppi. Þetta svæði kallar nefndin 8B og er það hið tíunda sem nefndin úrskurðar um á landinu. Á næsta ári er að vænta úrskurðar í kröfum ríkisins í Dalasýslu og þá hefur ráðherra ekki enn lýst…Lesa meira