Fréttir

true

Úrhellisrigningu spáð næstu tvo daga

Veðurstofa Íslands varar við óvenju mikilli úrkomu á öllu sunnan- og vestanverðu landinu í nótt og fram á fimmtudag. Gert er ráð fyrir meira en 500 millimetra afrennsli af Eyjafjallajökli og almannavarnir eru í viðbragðsstöðu, einkum vegna flóða á Suðurlandi. Í fréttum RUV er haft eftir Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðingi að ekki hefði sést svo…Lesa meira

true

Rarik skiptir um spenni

Það vakti athygli föstudaginn 7. október sms tilkynning frá Rarik þar sem varað var við rafmagnstruflunum í Grundarfirði. Ástæða tilkynningarinnar var að vinna stóð yfir við að skipta um spenni í spennustöð bæjarins en á meðan var sett upp færanleg spennustöð sem keyrði rafmagn á bæinn á meðan vinnan stóð yfir. Ný spennustöð er í…Lesa meira

true

Bjarthegri á ferð við Breiðafjörð

Bjarthegri (Egretta garzetta) hefur að undanförnu verið á ferð við Stykkishólm. Þetta er fremur sjaldgæfur flækingsfugl hér við land. Hann er mjög ljós og með mikinn skúf aftan á höfði. Meðfylgjandi mynd tók Sumarliði Ásgeirsson.Lesa meira

true

Birta í dag dóma um þjóðlendur í Borgarfirði

Í dag klukkan 14:00 kveður óbyggðanefnd upp úrskurði í málum í Borgarfjarðar- og Mýrasýslu auk Langjökuls, að undanskildum fyrrum Kolbeinsstaðahreppi. Uppkvaðningin fer fram í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík. „Úrskurðirnir verða birtir á heimasíðu óbyggðanefndar að uppkvaðningu lokinni. Þá verða jafnframt sendar út upplýsingar um helstu efnisatriði þeirra,“ segir í tilkynningu. Hér má sjá 270…Lesa meira

true

Akranes verði hvatning til annarra landsmanna

Skagamenn og nærsveitarfólk hafa nú í þrjár vikur haft færi á því að taka þátt í nýrri rannsókn sem lýtur blóðskimun vegna mergæxlis. Fjólubláa umslagið hefur verið borið í öll hús og eru allir hvattir til að taka þátt í þessari rannsókn, en Akranes og nágrenni eru hluti af forkönnun fyrir Þjóðarátak gegn mergæxlum, sem…Lesa meira

true

Halda tónleika í Akranesvita

Hljómsveitin Fearless Warriors of the Roseland heldur tónleika í Akranesvita fimmtudaginn 13. október næstkomandi. Aðgangur er ókeypis. „Samvinnuverkefnið Roseland er hvoru tveggja vettvangur til samskipta og ráðrúms, umhverfi þar sem draumar dansa sem ljóð og myndir. Fjórir grunnmeðlimir sveitarinnar leggja til borðs sína tónlistarlegu reynslu og menningarlegan bakgrunn sem þeir tvinna saman í nýjar tónsmíðar.…Lesa meira

true

Hrútasýningardagur framundan

Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi verður haldin laugardaginn 15. október nk. Fyrri hluti sýningarinnar fer fram á Gaul í Staðarsveit og hefst kl. 13.00. Á þeirri sýningu verða veitingar í boði gegn vægu gjaldi til að fá upp í kosnað við sýningarhald. Seinni hluti sýningarinnar verður að Haukatungu Syðri 2 í Kolbeinsstaðarhreppi og hefst kl. 20.30.…Lesa meira

true

Boða að fyrsta þingmál verði að útrýma kynbundnum launamun

Á blaðamannafundi í dag kynnti Viðreisn róttækar aðgerðir sem flokkurinn boðar til að útrýma óútskýrðum launamun kynjanna. „Óútskýrður kynbundinn launamunur er ólöglegur og hefur verið um árabil. Þrátt fyrir þetta er óútskýrður kynbundinn launamunur viðverandi vandamál á vinnumarkaði og hefur staðið í stað, í 10% síðustu 10 árin skv. nýjustu könnun VR. Lög eru til…Lesa meira

true

Á þriðja tug sækjast eftir stöðu fjármálastjóra Akraneskaupstaðar

Frestur til að sækja um starf fjármálastjóra Akraneskaupstaðar rann út föstudaginn 30. september síðastliðinn. Bárust hvorki fleiri né færri en 24 umsóknir, en tveir drógu umsókn sína til baka. Þetta kemur fram á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Fjármálastjóri hefur yfirumsjón með áætlanagerð og uppgjöri sveitarfélagsins og samhæfingu verkefna á sviði fjármála. Fjármálastjóri heyrir undir sviðsstjóra stjórnsýslu- og…Lesa meira