Fréttir

true

Tökur á sjónvarpsþáttum standa yfir á Akranesi

Þessa dagana standa yfir tökur á tveggja þátta sjónvarpsseríu sem nefnist Líf eftir dauðann. Verður hún sýnd á RUV um páskana. Akranes og nágrenni er umgjörðin í flestum upptökum og var meðal annars myndað á Vestri Rein í gær. Áætlað er að tökur standi yfir í sjö daga á Akranesi. Margir kunnir leikarar koma við…Lesa meira

true

Mótmæla lágum niðurgreiðslum og háum aldri við innritun í leikskóla

Hópur íbúa á Akranesi hefur hrundið af stað undirskriftasöfnun þar sem skorað er á bæjaryfirvöld á Akranesi að auka niðurgreiðslur vegna gæslu barna og rýmka reglur um aldur þeirra við innritun í leikskóla. „Við skorum á bæjaryfirvöld á Akranesi að endurskoða reglur varðandi niðurgreiðslur til foreldra með börn hjá dagforeldrum og innritunarreglur í leikskóla bæjarins.…Lesa meira

true

Kynnir verkefnaáætlun til uppbyggingar á ferðamannastöðum

Í dag mun Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra  kynna verkefnaáætlun til uppbyggingar á ferðamannastöðum víða um land. Áætlunin er til verndar náttúru- og menningarsögulegum minjum sem eru undir álagi af ferðamennsku.  „Áætlunin er í samræmi við lög um landsáætlun um uppbyggingu innviða sem Alþingi samþykkti nýverið og nú er verið að innleiða sem nýtt vinnulag og stjórntæki.…Lesa meira

true

Ilmur verður heiðursgestur Northern Wave kvikmyndahátíðarinnar

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Northern Wave verður haldin helgina 21.-23. október næstkomandi í Frystiklefanum í Rifi. Þetta er í níunda sinn sem hátíðin er haldin en hingað til hefur hún farið fram í Grundarfirði. Með auknum ferðamannastraumi reyndist erfitt að fá nægt gistipláss fyrir gesti hátíðarinnar í Grundarfirði og var hún því færð í Snæfellsbæ. Í Frystiklefanum…Lesa meira

true

Hlynur Þór lætur af umsjón Reykhólavefsins

Hlynur Þór Magnússon hefur látið af umsjón með vef sveitarfélagsins Reykhólahrepps, sem í daglegu tali er kallaður Reykhólavefurinn. Hann hefur haft umsjón með vefnum síðan á vordögum 2008 en hefur af heilsufarsástæðum óskað eftir lausn frá starfi. Frá þessu er greint á Reykhólavefnum. Þegar Hlynur tók við umsjón vefsins á sínum tíma tók hann strax…Lesa meira

true

Bútasaumssýning í Fannahlíð um helgina

Ingibjörg Guðjónsdóttir, handverkskona á Akranesi, ætlar að halda bútasaumssýningu í Fannahlíð í Hvalfjarðarsveit dagana 7. til 9. október næstkomandi. Á sýningunni býður Ingibjörg gestum að koma og skoða hluta afraksturs síðustu ára. Til sýnis verða yfir hundrað dúkar og tugir teppa; allt frá barnateppum upp í hjónarúmateppi. Engir smærri munir verða til sýnis að þessu…Lesa meira

true

„Mikilvægt að líta til framtíðar“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir skipar annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Hún er lögfræðingur að mennt og segir að planið hafi verið að starfa við lögfræðina. Það hafi þó farið á annan veg, enn sem komið er. „Ef maður leyfir sér að taka á móti þeim tækifærum sem bjóðast þá gerast…Lesa meira

true

„Spennandi að stíga inn í pólitík í dag“

Eva Pandora Baldursdóttir er oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi. Hún er fædd og uppalin á Sauðárkróki og er með gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Nú stundar hún MPA nám í opinberri stjórnsýslu við sama skóla. Hún kemur nú fersk inn í stjórnmál en hún skráði sig nýlega í flokk Pírata, þótt hún hafi fylgst með…Lesa meira

true

Slæmt ferðaveður við fjöll

Áfram verður hvasst á Suður- og Vesturlandi í dag. Nú í hádeginu var suðaustan 15-23 m/s og vindhviður um 40 m/sek við Hafnarfjall. Spáð er að hviður geti orðið enn meiri á næstu tímum.. Veður er einnig slæmt á Kjalarnesi og norðanverðu Snæfellsnesi.  Því er spáð að lægðin gangi yfir og taki að lækja síðdegis…Lesa meira

true

Málar maríuhænur til styrktar Marek

Við Akranesvita á Breið má finna safn steina sem málaðir hafa verið sem maríuhænur. Hver steinn er einnig merktur með nafni og er þeim snyrtilega raðað neðan við skilti sem á stendur „For Marek“. Það er hin pólska Linda Zarzycka sem málar steinana og kemur þeim fyrir á Breiðinni. Ástæðan? Jú, hún er að safna…Lesa meira