
Vegna mikilla vatnavaxta í vor hafa orðið tafir á byggingu bráðabirgðarbrúar yfir Ferjukotssíki í Borgarfirði. „Brúin verður að öllum líkindum opnuð fyrir umferð síðustu vikuna í júní. Meðan á framkvæmdum stendur er Hvítárvallavegur (510) við Ferjukotssíki lokaður,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar vinnur nú að því að byggja bráðabirgðabrúna en hún verður einbreið…Lesa meira








