
Á fyrstu tónleikunum á ár, sem verða sunnudaginn 18. júní, heimsækir Hallgrímskirkju í Saurbæ Jazzkvartett Einars Scheving ásamt góðum gesti frá Brasilíu, Ife Tolentino, söngvara og gítarsnillingi.
Sumartónleikar að hefjast í Hallgrímskirkju í Saurbæ
Sumartónleikaröð Hallgrímskirkju í Saubæ hefst næstkomandi sunnudag með sjóðheitri jazzsveiflu. Þetta er í fimmta sinn sem hún er skipulögð. „Við erum fjögurra manna tónleikanefnd sem sjáum um alla skipulagningu og umsjón tónleikanna og okkur finnst öllum mjög gaman að vinna að þessu og höfum metnað fyrir því að byggja upp tónleikastað og menningarstarfsemi í kirkjunni,“ segir Margrét Bóasdóttir í samtali við Skessuhorn.