Fréttir

true

Hvalur strandaður á leirunum við Borgarnes

Um sjö metra löng hrefna sást í morgun strönduð á leirunum í Borgarvogi, skammt norðan við leikskólann Klettaborg í Borgarnesi. Nú skömmu fyrir hádegi var enn lífsmark með hvalnum, en lögregla hefur lokað svæðinu til að fólk fari sér ekki að voða við að komast of nærri. Dýrið er sært og því er talið líklegt…Lesa meira

true

Meistarar meistaranna spila á morgun

Á morgun, sunnudaginn 2. október, er komið að hinum árlegu leikjum Íslandsmeistara og bikarmeistara karla og kvenna í körfu, frá síðasta keppnistímabili. Leikið verður að þessu sinni á heimavelli Íslandsmeistara karla og fara leikirnir því fram í DHL-höll KR-inga. Í báðum tilfellum eru Íslandsmeistarar síðasta árs, KR hjá körlum og Snæfell hjá konum, tvöfaldir meistarar,…Lesa meira

true

Leikmenn Víkings og stuðningsmenn leggja allt undir

Gríðarleg stemning er meðal stuðningsmanna knattspyrnuliðs Víkings í Ólafsvík fyrir síðustu umferðina. Lokaleikur mótsins verður spilaður á morgun, laugardag þegar Víkingur mætir Stjörnunni á Samsung vellinum í Garðabæ klukkan 14. Víkingsliðið er í fallhættu og í harðri baráttu við Fylki sem mætir KR á sama tíma í Frostaskjólinu. Stuðningsmenn Víkings ætla að fjölmenna á leikinn…Lesa meira

true

Fækkun snertir einnig útibúin á Vesturlandi

Arion banki sagði fyrir mánaðamótin upp 46 starfsmönnum á landsvísu. 27 þeirra störfuðu í höfuðstöðvum bankans í Reykjavík en 19 í útibúum og ýmissi bakvinnslu. Uppsagnirnar snerta öll starfssvæði bankans og þar með talið Vesturland en fækkað var um þrjú stöðugildi á svæðinu við þessi mánaðamót. Bernhard Þór Bernhardsson, svæðisstjóri Arionbanka á Vesturlandi, segir að…Lesa meira

true

Telur manngæsku ekki hafa ráðið úrslitum

Vegna ummæla Guðsteins Einarssonar framkvæmdastjóra Borgarlands í frétt um skipulagsmál í Borgarnesi hér á vefnum í gær, vill Jóhannes Freyr Stefánsson hjá SÓ húsbyggingum svara ávirðingum kaupfélagsstjórans í garð framkvæmdanna sem nú standa yfir: „Það getur vel verið rétt hjá kaupfélagssstjóra að stjórnendur kaupfélagsins séu almennt betri manneskjur en við sem stöndum nú fyrir uppbyggingu miðsvæðis…Lesa meira

true

Uppfærð frétt: Harður árekstur í Borgarfirði

Harður árekstur varð í Borgarfirði á tólfta tímanum í dag þegar tveir bíla skullu saman á þjóðvegi 1, Vesturlandsvegi, til móts við bæinn Gufuá í Borgarhreppi. Mikill viðbúnaður viðbragðsaðila er vegna árekstrarins og er umferð nú stýrt framhjá slysstað. Uppfært kl. 12:36 Slysið varð með þeim hætti að sjúkrabíll í forgangsakstri á suðurleið lenti á jeppling. Kastast báðir bílar út af…Lesa meira

true

Vinstri grænir samþykkja framboðslista sinn

Listi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi vegna alþingiskosninga 29. október nk. var samþykktur á félagsfundi kjördæmisráðs VG í gærkveldi. Þrjú efstu sæti listans eru eins skipuð og niðurstaða forvals flokksins. Sú breyting hefur verið gerð að Rúnar Gíslason færist upp um tvö sæti, tekur fjórða sæti í stað Lárusar Ástmars Hannessonar sem færist niður…Lesa meira

true

Námskeið um borgfirskar skáldkonur og Próna-bóka-kaffi Snorrastofu

Að venju hefjast viðburðir vetrarins í Snorrastofu og víðar um sveitir fyrir alvöru þegar október færist yfir. Fyrst á dagskránni er námskeið um borgfirskar skáldkonur þriðjudaginn 4. október í Landnámssetrinu Borgarnesi og fyrsta prjóna-bóka-kaffi bókhlöðunnar verður á sínum stað í Reykholti fimmtudaginn 6. október. Báðir viðburðirnir hefjast kl. 20. Helga Kress bókmenntafræðingur og prófessor emeritus…Lesa meira

true

Íbúðalánasjóði gert að endurgreiða Borgarbyggð ofgreidda vexti

Í gær var staðfest í Hæstarétti niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Borgarbyggðar gegn Íbúðalánasjóði þar sem sjóðnum var gert að endurgreiða oftekna dráttarvexti af framkvæmdaláni sem Borgarbyggð tók hjá sjóðnum vegna byggingar hjúkrunarálmunnar við Brákarhlíð í Borgarnesi. Þegar lánið var greitt upp við lok framkvæmdanna kom upp ágreiningur milli sveitarfélagsins og sjóðsins um gjalddaga lánsins og…Lesa meira

true

Hey Iceland er nýtt vörumerki Ferðaþjónusta bænda

„Hey Iceland“ er nafn á nýju vörumerki Ferðaþjónustu bænda sem kemur í stað vörumerkisins Icelandic Farm Holidays sem félagið hefur fram til þessa notað í sölu- og markaðsstarfi sínu erlendis. „Nýja vörumerkið Hey Iceland er afrakstur viðamikillar stefnumótunar sem hefur átt sér stað undanfarin misseri hjá okkur en það hafa lengi verið vísbendingar uppi um…Lesa meira