Fréttir

true

Heilbrigðisnefnd kallar eftir skýringum um mengunarmál

Skessuhorn sagði frá því fyrr á árinu að Umhverfisstofnun (UST) hefði gert tugi athugasemda við starfsemi tveggja fyrirtækja á Grundartanga og beitt dagssektum vegna mengunar og að ekki hafi verið farið eftir ákvæðum í starfsleyfum. Fyrirtækin sem um ræðir eru GMR og Kratus, sem starfa bæði á sviði málmendurvinnslu. Heilbrigðisnefnd Vesturlands ræddi starfsemi þessara fyrirtækja…Lesa meira

true

Nýnemar innvígðir á sandi

Nýnemadagur fór fram í Fjölbrautaskóla Vesturlands í síðustu viku. Það var nemendafélags skólans sem stóð fyrir ýmiskonar afþreyingu, leikjum og hópefli fyrir þá sem nú hefja skólagöngu í FVA. Sjá nánar í Skessuhorni vikunnar.Lesa meira

true

Starfar sem réttindagæslumaður fatlaðra á Vesturlandi og Vestfjörðum

Fyrir fimm árum hóf Jón Þorsteinn Sigurðsson störf í nýstofnuðu embætti réttindagæslumanns fatlaðra á Vesturlandi og Vestfjörðum. Jón starfar um þessar mundir einnig sem réttindagæslumaður fatlaðra á Austurlandi en hann tók tímabundið við því starfi í fyrra. Jón þekkir vel til málefna fatlaðra því auk þess að hafa starfað sem réttindagæslumaður fatlaðra í fimm ár hefur…Lesa meira

true

Borgarpakkhúsið flutt og verður nú hluti listaseturs í Húsafelli

Það má segja að tímamót hafi orðið í Borgarnesi í liðinni viku þegar hið ríflega níutíu ára gamla Borgarpakkhús var tekið af bráðabirgða geymslustað á Sólbakka, flutt í heilu lagi og sett á nýjan grunn í Húsafelli. Það mun í framtíðinni hýsa steinhörpusafn Páls Guðmundssonar listamanns og stendur við hlið gamla fjóssins og súrheysturnsins sem…Lesa meira

true

Dauðan makríl rekur á land í höfninni

Síðdegis í dag fór að bera á makríldauða í höfninni í Rifi á Snæfellsnesi. Undanfarna daga hefur talsvert af makríl verið þar en menn hafa ekki orðið varir við neitt óvenjulegt fyrr en nú. Velta menn því fyrir sér hvort súrefnisskortur eða annað sé að orsaka þetta, en margir eru að fylgjast með, samkvæmt Þresti…Lesa meira

true

Næturfrost í uppsveitum

Víða fraus á landinu í nótt, mest þó í innsveitum. Mældist frostið mest 3,4 gráður í Húsafelli í Borgarfirði. Búast má við frosti aftur í nótt, samkvæmt Veðurstofu Íslands. Nú hefur frosið í tvígang í uppsveitum Borgarfjarðar og má því búast við að gróður taki hratt að fölna og ber að skemmast. Meðfylgjandi mynd tók…Lesa meira

true

Hálf önnur milljón mjólkurlítra skipti um eigendur

Matvælastofnun bárust 76 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur á markaði sem lokað var 1. september. Markaðurinn að þessu sinni var með þeim stærstu frá upphafi fyrir greiðslumark mjólkur. Aðeins var hægt að bjóða til sölu ónotað greiðslumark mjólkur á tilboðsmarkaðnum að þessu sinni. Við opnun tilboða um kaup og…Lesa meira

true

Skagakonur óheppnar að ná ekki stigi

ÍA mætti ÍBV í 14. umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Leikurinn var Skagakonum mikilvægur því með sigri gátu þær lyft sér upp úr fallsæti. Það átti hins vegar ekki fyrir þeim að liggja því Eyjakonur sigruðu með einu marki gegn engu í miklum baráttuleik. Skagakonur byrjuðu af krafti og sköpuðu sér nokkur…Lesa meira

true

Meðalafli aldrei meiri en á liðinni strandveiðivertíð

Strandveiðitímabili sumarsins lauk um miðjan síðasta mánuð. Í sumar veiddu strandveiðibátarnir 9.146 tonn og voru landanir 14.942. Alls voru gefin út 670 leyfi til strandveiða, 22 leyfum fleiri en á síðasta ári. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu. Mest var veitt af þorski eða rúmlega 8.500 tonn, sem jafngildir 93,3% af heildarafla sumarsins. Næstmest var…Lesa meira

true

Laxveiðin talsvert lakari nú en í fyrra

Landssamband veiðifélaga birti í gær nýjar veiðitölur úr laxveiðiánum. Ytri-Rangá trónir á toppnum með um 6.300 laxa, Miðfjarðará hefur gefið 3.500 laxa og Eystri-Rangá 2.850. Þverá er í fimmta sæti með 1.755 laxa og nálgast heildarveiðina síðasta sumars þegar 2.364 laxar komu á land. Norðurá hefur gefið 1.288 laxa sem er miklu lakari veiði en…Lesa meira