
Fyrsta barn ársins á Vesturlandi er drengur sem kom í heiminn á fæðingadeild HVE á Akranesi klukkan 13:32 í gær, nýársdag. Drengurinn vó 3.810 grömm og er 52 sentímetrar að lengd. Foreldrar hans eru þau Sólveig Ólafsdóttir frá Reykjavík og Darri Atlason frá Ólafsvík en þau eru búin að búa í Borgarnesi síðastliðin fimm ár.…Lesa meira








