Fréttir

true

Björgunarsveitir og áhöfn Bjarna Ólafssonar á æfingu

Um 70 félagar úr sjóbjörgunarhópum Slysavarnafélagsins Landsbjargar víðs vegar af landinu eru við umfangsmiklar æfingar í Norðfjarðarflóa. Alls taka tólf hópar þátt í æfingunni á þremur björgunarskipum, sex harðbotnabátum og þremur slöngubátum. Alls taka 50 björgunarsveitarmenn þátt í æfingunni en 20 sjá um skipulag og framkvæmd hennar. Þátttakendur í æfingunni glíma við margþætt verkefni í dag, en æfingunni…Lesa meira

true

Sigmundur Davíð hlaut afgerandi kosningu

Kjördæmisþing Framsóknarflokks í Norðausturkjördæmi stendur nú yfir í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Nú er lokið kosningu um efstu sæti á lista flokksins í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, hlaut afgerandi kosningu í oddvitasæti listans, með 72% greiddra atkvæða. Í framhaldinu lýsti Höskuldur Þórhallsson þingmaður því yfir að hann sæktist ekki eftir sæti…Lesa meira

true

“Smölun þóknanleg félagsmönnum að sunnan”

Ágúst Smári Beaumont ritari Pírata á Vesturlandi hefur sent fjölmiðlum tilkynningu þar sem sem hann harmar það sem hann kallar tvöfalt siðferði flokksins. „Píratar í Norðvesturkjördæmi sitja uppi með lista til alþingiskosninga frá stórhöfuðborgarsvæðinu. Smölun er liðin, svo lengi sem að sá smali sé þóknanlegur félagsmönnum að sunnan,“ segir Ágúst. “Það er ólíðandi að við…Lesa meira

true

Hundrað sauðfjárbændur mættu á fund um afurðamál

Þrjú félög sauðfjárbænda á Vesturlandi stóðu saman að bændafundi í félagsheimilinu Þinghamri í Borgarfirði í gærkvöldi. Þetta voru félög sauðfjárbænda í Dölum, Snæfellsnesi og Borgarfirði. Tilefni fundarins var afurðaverð sem sláturleyfishafar hafa gefið út, en bændur þurfa nú að mæta 5-10% verðlækkun á dilkakjöti frá síðasta ári og fast að 40% verðlækkun fyrir ærkjöt. Fram…Lesa meira

true

Þriðjungi meiri húsgagnasala en óbreytt velta í fatnaði

Landsmenn mublera hjá sér heimilin sem aldrei fyrr. Í nýrri úttekt Rannsóknaseturs verslunarinnar kemur fram að húsgagnasala í ágúst síðastliðnum var 36% meiri en í sama mánuði í fyrra. Síðastliðna sex mánuði hefur sala húsgagna verið að jafnaði um þriðjungi meiri en á sama tíma og í fyrra. Þó viðskipti með húsgögn hafi ekki náð…Lesa meira

true

Bandarískur leikstjórnandi í Snæfell

Íslands- og bikarmeistarar Snæfells hafa samið við bandaríska leikstjórnandann Taylor Brown og mun hún leika með liðinu í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á vetri komanda. Von er á Taylor til landsins á næstunni, en hún kemur til með að fylla skarð Haiden Palmer sem nýverið skrifaði undir hjá þýska toppliðinu Herner TC. Í bandaríska…Lesa meira

true

Stofnuðu Hagsmunasamtök reykhúsa í lagarafurðum

Stofnuð hafa verið „Hagsmunasamtök reykhúsa í lagarafurðum“. Stofnaðilar samtakanna eru Eðalfiskur, Egils Sjávarafurðir, Norðanfiskur, Opal Sjávarfang og Reykhúsið Reykhólar. Megintilgangur félagsins er að vinna að niðurfellingu tolla á reyktum lagarafurðum á erlenda markaði. „Mikill ójöfnuður í samkeppni sambærilegra framleiðenda á EES svæðinu kallar á stofnun slíkra samtaka hér á Íslandi en nú er 13% tollur…Lesa meira

true

Um sjálfskipaða hagsmunagæsluliða þjóðarinnar

Helgi Eyleifur Þorvaldsson skrifar í dag athyglisverða og beitta grein þar sem hann átelur það fjaðrafok sem orðið hefur vegna nýsamþykktra búvörusamninga. Helgi tekur upp varnir fyrir íslenskan landbúnað og gagnrýnir þá sem hann kallar “sjálfskipaða hagsmunagæsluliða þjóðarinnar”. Helgi skrifar m.a.: “Þegar fólk á bíl, snjallsíma, tölvu, húsnæði, aðgang að góðu heilbigðis- og menntakerfi og…Lesa meira

true

Víkingsliðin skildu jöfn í Ólafsvík í gær

Víkingsliðin tvö mættust í Ólafsvík í gær þegar heimamenn í Víkingi Ó. tók á móti Víkingi R. í 19. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og náðu Ólafsvíkingar í mikilvægt stig í fallbaráttunni. Var það aðeins annað stigið sem þeir ná að krækja í á síðari hluta mótsins. Mikið rigndi í…Lesa meira

true

Vestarr og Mostri mættust á vinabæjarmóti

Nýverið var haldinn seinni hluti ryder golfmóts milli vinabæjaklúbbanna Vestarrs úr Grundarfirði og Mostra í Stykkishólmi. Leikið var á Víkurvelli í Stykkishólmi og voru spilaðar þrjár umferðir. Í fyrstu umferð var leikið Texas scramble, önnur umferðin var leikin með greensomes fyrirkomulagi og sú þriðja var maður á mann. Glæsilegar veitingar voru í boði allan daginn…Lesa meira