
Fyrir viku mættu þau Björn Ásgeir Sumarliðason og Rebekka Sóley Hjaltalín frá Björgunarsveitinni Berserkjum í Stykkishólmi og færðu leikskólanum að gjöf öryggisvesti á nemendur og einnig endurskinsmerki sem börnin fengu að fara með heim. Fram kemur á heimasíðu Stykkishólmsbæjar að leikskólinn þakkaði kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf sem á eftir að nýtast vel í skammdeginu…Lesa meira








