Fréttir

true

Álagningu opinberra gjalda á lögaðila lokið

Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2021. Í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu kemur fram að álögð gjöld nema samtals 218,3 milljörðum króna og hækka um 38 ma.kr. á milli ára, en breytingar einstakra skatta eru bæði til hækkunar og lækkunar. Stærstu einstöku breytinguna er að finna í tekjuskatti lögaðila en þar…Lesa meira

true

Austan hvellur í Hálsasveit

Austan hvassviðri gekk yfir vestanvert landið í gær. Veðurstofan hafði fyrir fram gefið út gula viðvörun vegna þessa þar sem meðal annars var varað við akstri fyrir Hafnarfjall þar sem vindur stóð beint af fjallinu. Ekki er vitað um teljandi tjón utan þess að í Hálsasveit í Borgarfirði gekk síðdegis á með mjög öflugum hviðum.…Lesa meira

true

Nemendur í Brekkubæjarskóla í vinnustaðaheimsókn

Nú eru fimmtán nemendur í 8.-10. bekk Brekkubæjarskóla í heimsókn á ritstjórn Skessuhorns. Hópurinn er valhópur en unglingadeild skólans er í vali í hverri viku. Þessi hópur er t.d. búinn að heimsækja sjúkrahúsið og slökkviliðsstöðina í haust en á eftir að fara á nokkra staði í viðbót. Með ritun þessarar fréttar er hópnum sýnt hvernig…Lesa meira

true

Atvinnuleitendur fá desemberuppbót

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur undirritað reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda. Óskert desemberuppbót verður 94.119 krónur. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára. Rétt á fullri desemberuppbót eiga þau sem staðfesta atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2022 og hafa verið…Lesa meira

true

Bæjarstjórnarfundur unga fólksins síðdegis á morgun

Á morgun, þriðjudaginn 15. nóvember klukkan 17:30, verður bæjarstjórnarfundur unga fólksins haldinn að Dalbraut 4 á Akranesi. Fulltrúar úr Ungmennaráði Akraness taka nú sæti í bæjarstjórn í tuttugasta og fyrsta sinn. Ungmennaráð er skipað níu fulltrúum nemendafélaga grunnskólanna, nemendafélags FVA, Tónlistarskóla Akraness, fulltrúa ÍA og fulltrúum félagsmiðstöðvanna tveggja, þ.e. Arnardals og Hvíta hússins. Bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar…Lesa meira

true

Landeigendur taka yfir sölu veiðileyfa í Andakílsá

Í haust rann út samningur Veiðifélags Andakílsár og Stangaveiðifélags Reykjavíkur (SVFR) um sölu veiðileyfa, en það samstarf hefur staðið í tvo áratugi. Veiðifélagið hefur í framhaldinu samþykkt að taka sjálft yfir sölu veiðileyfanna og hefur í tengslum við það samið við Kristján Guðmundsson um að sinna þeim þætti fyrir eigendur næstu tvö til þrjú árin.…Lesa meira

true

Vandað til vegagerðar um Teigsskóg

Myndband um gerð Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit og brúar yfir Þorskafjörð Vegagerðin leggur mikla áherslu á að minnka umhverfisáhrif vegarins um Teigsskóg. Framkvæmdir á Vestfjarðavegi (60) um Gufudalssveit ganga vel eins og fram kemur í myndbandi um framkvæmdina sem Vegagerðin hefur látið vinna. Áfangarnir í þessu stóra verkefni eru fimm; einum er lokið, þrír eru…Lesa meira

true

Hið minnsta tveir ernir dauðir úr fuglaflensu

Hin skæða fuglaflensa (HPAI H5N1) barst hingað til lands á síðasta ári með farfuglum. Þar með náði hún til fugla sem halda kyrru fyrir á landinu allt árið en nærast gjarnan á öðrum fuglum eða hræjum þeirra. Flensan hefur orðið a.m.k. tveimur haförnum að bana svo vitað sé, segir í frétt frá Náttúrufræðistofnun, en hún…Lesa meira

true

Skallagrímur gerir nýja samninga við þrjú fyrirtæki í heimabyggð

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur endurnýjað samstarfssamninga fyrir þetta tímabil við fyrirtæki sem hafa verið bakhjarlar deildarinnar til margra ára. Undirskriftir fóru fram í hálfleik á leik Skallagríms og Selfoss í fyrstu deildinni á fimmtudagskvöldið og mættu fulltrúar fyrirtækjanna þriggja með pennana á lofti. Það voru þau Birgir Andrésson fyrir hönd Steypustöðvarinnar, Helga Margrét Friðriksdóttir fyrir hönd…Lesa meira

true

Vök Baths hlutu Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar

Vök Baths á bakka Urriðavatns við Egilsstaði, er handhafi Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar árið 2022, en Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) afhenda verðlaunin á afmælisdegi samtakanna, 11. nóvember ár hvert. Eliza Reid forsetafrú afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Hörpu í síðustu viku. SAF afhenda Nýsköpunarverðlaun fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan samtakanna til nýsköpunar.…Lesa meira