Fréttir

true

Borgfirskir Framsóknarmenn skora á Sigurð Inga

Á félagsfundi í Framsóknarfélagi Borgarfjarðar og Mýra sem haldinn var í gær var samþykkt ályktun til stuðnings Sigurði Inga Jóhannssyni. „Félagsfundur Framsóknarfélags Borgarfjarðar og Mýra, haldinn 14. september í Borgarnesi, skorar á Sigurð Inga Jóhannsson forsætisráðherra að gefa kost á sér til formennsku í Framsóknarflokknum á komandi flokksþingi.“ Eins og kunnugt er verður flokksþingið haldið 1. og…Lesa meira

true

Ætla að sigla yfir Atlantshafið á seglskútu

Borgfirðingurinn Hilmar Guðjónsson er þessa dagana staddur úti fyrir ströndum Skotlands á siglingu ásamt vini sínum Kristoffer Henriksson. Eru þeir um borð í 33 feta seglskútu, Tsamaya að nafni. „Núna erum við staddir rétt fyrir utan bæ sem heitir Cromarty, á austurströnd Skotlands. Við sigldum þangað inn í gær, ætluðum að komast til Inverness en…Lesa meira

true

Breytingar á unglingastigi í Grundaskóla

Ný kaffistofa hefur verið tekin í notkun á unglingastigi í Grundaskóla á Akranesi. Ráðist var í endurbætur og gerð kaffistofa þar sem áður var ræstingarrými, geymsla, klósett og aðstaða fyrir brauðsölu. Hugmyndin kom upprunalega fram á bæjarstjórnarfundi unga fólksins hjá Akraneskaupstað, þar sem ungmenni úr Grundaskóla höfðu kvartað yfir aðstöðuleysi á unglingastiginu og komu með…Lesa meira

true

Unnið að hönnun áningarstaðar við Kolgrafafjörð

Bæjarstjórn Grundarfjarðar samþykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að samið yrði við Alta ehf. um hönnun og skipulag vegna uppbyggingar ferðamannastaðar við Kolgrafafjörð. Styrkur að verðmæti 2,8 milljónir krónur fékkst til verksins þegar úthlutað var úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða á vordögum. Þorsteinn Steinsson, bæjarstjóri Grundarfjarðar, segir algengt að ferðamenn og ferðalangar geri töf á ferð sinni…Lesa meira

true

Útafkeyrsla við Laxárbakka

Pickup jeppa var ekið útaf við við Hvalfjarðarvegamót, skammt sunnan við Laxárbakka, laust fyrir klukkan 19 í kvöld. Einn maður var í bílnum og var hann fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Hann mun ekki vera alvarlega slasaður en þó eitthvað lemstraður. Bílnum virðist hafa verið ekið ofan úr Hvalfirði, þvert yfir þjóðveg eitt á vegamótunum,…Lesa meira

true

Tugir óhappa og mikil umferð um illa farinn Skógarstrandarveg

Vegna tíðra umferðaróhappa og ástands vegar númer 54, Snæfellsnesvegi um Skógarströnd, óskaði lögreglan eftir því við Vegagerðina á mánudaginn að umferðarhraði yrði lækkaður niður í 50 km hraða á klukkustund. Á mánudaginn urðu tvær bílveltur með skömmu millibili á veginum. Níels Hermannsson er lögregluþjónn í Dölum. Hann segir í samtali við Skessuhorn að ástand vegarins…Lesa meira

true

Leiðrétt tímasetning á leik ÍA og KR

Í fyrri frétt okkar sem birtist á vefnum í gær og í Skessuhorni vikunnar var greint frá því að leikur ÍA og KR í Pepsi deild karla í knattspyrnu færi fram á föstudag. Hið rétta er að ÍA og KR mætast á Akranesvelli á morgun, fimmtudaginn 15. september klukkan 17:00. Leiðréttist það hér með og…Lesa meira

true

Skógræktin, góðan daginn!

Skógræktin, ný skógræktarstofnun, varð til 1. júlí síðastliðinn við sameiningu Skógræktar ríkisins og landshlutaverkefna í skógrækt; Vesturlandsskóga, Skjólskóga á Vestfjörðum, Norðurlandsskóga, Héraðs- og Austurlandsskóga og Suðurlandsskóga ásamt því að umsjón með Hekluskógum fluttist með inn í nýju stofnunina. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir í Borgarnesi er sviðsstjóri skógarauðlindasviðs Skógræktarinnar. Hún segir að nú standi yfir tímabil breytinga,…Lesa meira

true

Eyjabændur sóttu féð

Breiðfirskir eyjabændur sóttu um helgina fé í Elliðaey og Bíldsey og fluttu á land í Stykkishólmi. Féð gengur sjálfala úti í eyjunum og er rígvænt eftir veruna þar í sumar. Meðfylgjandi mynd tók Sumarliði Ásgeirsson þegar komið var að landi.Lesa meira

true

Nemendum FSN býðst sálfræðiþjónusta

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga býður nemendum Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði upp á viðtöl við sálfræðing stofnunarinnar. Óvenjulegt er að félagsþjónustan bjóði upp á slíka þjónustu og segist Emil Einarsson, sálfræðingur stofnunarinnar, ekki vita til þess að sambærileg þjónusta sé í boði annars staðar á landinu. Þjónustan hefur verið í boði fyrir nemendur skólans síðustu ár…Lesa meira