Fréttir

true

Áttatíu ár síðan Pourqoui pas? fórst við Straumfjörð á Mýrum

Næstkomandi föstudag verða rétt 80 ár liðin frá því franska rannsóknaskipið Pourquoi pas? fórst við Straumfjörð á Mýrum. Í tilefni af þessum tímamótum er von á hópi fólks frá Frakklandi sem ætlar að sækja Straumfjörð heim. Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum fyrr í mánuðinum að hafa stutta móttöku fyrir frönsku gestina í tengslum við…Lesa meira

true

Regnbogasilungur veiðist nú í ám um alla Vestfirði

„Stjórn Landssambands veiðifélaga lýsir þungum áhyggjum vegna frétta af slysasleppingum í fiskeldi. Samkvæmt tilkynningu Fiskistofu veiðist regnbogasilungur nú í ám í Patreksfirði, Tálknafirði, Arnarfirði og Dýrafirði. Grunur liggur á að regnbogi sé einnig í ám í Ísafjarðardjúpi. Koma þessar fregnir til viðbótar slysasleppingu í Berufirði í vor þar sem kví með 120.000 regnbogasilungum opnaðist með…Lesa meira

true

Er ekkert að grínast með að stefna á efsta sætið

„Ég er ekkert að grínast með að stefna á eitt af efstu sætunum,“ skrifar Rúnar Gíslason frambjóðandi í forvali Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi. Rúnar birti á Facebook athyglisvert myndband sem sýnir hann sjálfan rogast með gamlan og þungan skrifborðsstól alla á leið á hæsta tind Hafnarfjalls. Hann stefnir á eitt af þremur efstu…Lesa meira

true

Sauðfjárbændur á Vesturlandi boða til fundar á fimmtudaginn

Félög sauðfjárbænda á Snæfellsnesi, Dalasýslu og í Borgarfirði hafa boðað til opins sameiginlegs fundar með sláturleyfishöfum og framkvæmdastjóra Landsamtaka sauðfjárbænda. Fundurinn verður haldinn að Þinghamri á Varmalandi fimmtudaginn 15 september nk. og hefst klukkan kl 20:30. „Félögin skora á sauðfjárbændur að sýna samstöðu og fjölmenna á fundinn því það er mikilvægt að við látum raddir…Lesa meira

true

Akranesmeistaramót í sundi

Á sunnudaginn fór Akranesmeistaramót Sundfélags Akraness fram á Jaðarsbökkum. Þetta er fyrsta mót tímabilsins og tóku 34 krakkar þátt á mótinu. Keppendur voru 11 ára og eldri. Akranesmeistarar urðu þau Ágúst Júlíusson og Una Lára Lárusdóttir en þau áttu stigahæstu sundin á mótinu. Akranesmeistarar í aldursflokkum urðu Ágúst og Una Lára í flokki 15 ára…Lesa meira

true

Fornleifaskráning verður gerð við Tröllenda

Á fundi sínum síðasta fimmtudag fór sveitarstjórn Reykhólahrepps yfir umsagnir sem bárust á auglýstum tíma vegna deiliskipulags Tröllenda í Flatey á Breiðafirði. Athugasemd barst frá Minjavernd vegna skráningu fornleifa. Sveitarstjórn samþykkti að gerð verði fornleifaskráning fyrir deiliskipulag Tröllenda og fjármögnun vegna skráningarinnar, samtals 750 þúsund krónur, tekin af eigin fé sveitarfélagsins.Lesa meira

true

Ferðamönnum hefur fjölgað um þriðjung

Alls hafa 1,2 milljónir ferðamanna heimsótt Ísland frá áramótum, eða 32,7% fleiri miðað við fjölda ferðamanna á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu. Bara í ágústmánuði fóru um242 þúsund erlendir ferðamenn frá landinu samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða rúmlega 52 þúsund fleiri en í ágúst á síðasta ári.…Lesa meira

true

Ræða útgáfu frístundakorta

Minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs Borgarbyggðar, Önnu Magneu Hreinsdóttur, var lagt fram á fundi byggðarráðs nýverið. Anna mætti til fundarins og gerði grein fyrir tillögum sínum að reglum um frístundakort fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6 til 18 ára. Með útgáfu frístundakorta myndi Borgarbyggð styrkja frístundaiðkun barna og ungmenna með framlagi að upphæð 20 þúsund krónur…Lesa meira

true

Heitavatnslaust á Akranesi annað kvöld

Heitavatnslaust verður á Akranesi stóran hluta þriðjudagskvölds og aðfararnótt miðvikudags. Veitur vinna að því að fjarlægja brunn sem er á stofnlögn heitavatns til Akraness. Heitt vatn verður því tekið af öllum húsum á Akranesi kl. 20:00 annað kvöld, þriðjudaginn 13. september. Er áætlað að heitt vatn verði komið á að nýju kl. 4:00 aðfararnótt miðvikudags.…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu fyrir botnliði Þróttar

  Skagamenn mættu botnliði Þróttar í Pepsi deild karla í knattspyrnu í gær. Leikið var í Reykjavík. Fyrri leik liðanna snemma sumars lauk með 1-0 sigri Þróttar. Skagamenn náðu ekki að hefna fyrir tapið á sunnudag því aftur vann Þróttur, að þessu sinni með þremur mörkum gegn einu. Heimaliðið hefur nú möguleika á að bjarga…Lesa meira