Fréttir

true

Guðjón Brjánsson hreppti fyrsta sætið

Flokksvali Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi lauk síðdegis í dag. Atkvæði voru talin á skrifstofu Samfylkingarinnar á Hallveigarstíg. Niðurstaðan varð sú að Guðjón S. Brjánsson forstjóri HVE varð í fyrsta sæti og Inga Björk Bjarnadóttir háskólanemi í öðru sæti. Þrír frambjóðendur gáfu kost á sér að þessu sinni. Guðjón Brjánsson og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir gáfu einungis kost á…Lesa meira

true

Þyrla sótti leitarmann á Arnarvatnsheiði

Leitarmaður á Arnarvatnsheiði féll af hesti í gærkvöldi og slasaðist. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á staðinn um klukkan 21:30 og flutti manninn á spítala í Reykjavík. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er maðurinn óbrótinn en marinn og lemstraður. Jafnframt fylgdi sögunni að reiðhjálmur hafi skipt sköpum að maðurinn slasaðist ekki meira en raun ber vitni. Gangnamenn á…Lesa meira

true

Varað við mikilli úrkomu í nótt og á morgun

Í nótt og á morgun ganga skil yfir landið með stífri norðanátt og mikilli úrkomu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Talsverð rigning verður austantil á landinu í nótt, en á morgun má búast við mikilli úrkomu á Norðurlandi á Ströndum. Þegar mikil úrkoma er á Ströndum gæti hún hæglega teygt sig yfir í…Lesa meira

true

Birgitta beitti sér gegn niðurstöðu prófkjörs

Mikil reiði er í röðum Pírata í Norðvesturkjördæmi með þá ákvörðun flokksins að láta endurtaka prófkjör til að fá aðra niðurstöðu um röðun lista en fékkst eftir prófkjör félagsmanna í kjördæminu. Skessuhorn hefur undir höndum bréf þar sem þeirri óánægju er lýst og afskipti Birgittu Jónsdóttur fordæmd af málinu. Í aðsendri grein sem birt var hér…Lesa meira

true

Bílvelta í Staðarsveitinni

Jeppabifreið fór útaf veginum við Hraunsmúla í Staðarsveit í dag og fór nokkrar veltur. Ein kona var í bílnum og er talin mildi að hún slasaðist lítið. Konan var flutt til læknisskoðunar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Snæfellsnesi. Kallaður var út tækjabíll frá Slökkviliði Snæfellsbæjar auk sjúkrabíls og lögreglu. Ekki kom til að beita þyrfti klippunum.Lesa meira

true

Árekstur við Berserkseyrarárbrú

Um klukkan 14 í gær varð allharður árekstur tveggja bíla á þjóðveginum skammt frá Berserkseyri á Snæfellsnesi. Atvikaðist óhappið þannig að tveimur bílum var ekið í vesturátt. Ökumaður annars bílsins hugðist beygja til vinstri skammt frá brúnni yfir Berserkseyrará, en í sama mund reyndi ökumaður hins bílsins framúrakstur með fyrrgreindum afleiðingum. Loftpúðar sprungu út í…Lesa meira

true

Hótelrekstur undir smásjá lögreglu og verkalýðsfélags

Fréttatíminn birti í gær ítarlega frétt um slæman aðbúnað starfsfólks og mannfæð á Hótel Framnesi í Grundarfirði. Þar er jafnframt grunur um að starfi útlent vinnuafl, jafnvel hælisleitendur án atvinnuleyfa. Sigurkarl Bjartur Rúnarsson keypti Hótel Framnes í maí á þessu ári. Hann hefur legið undir ámæli fyrir að hafa hælisleitendur án atvinnuleyfis að störfum. Áður…Lesa meira

true

Víkingskonur töpuðu öðru sinni fyrir Grindavík

Víkingur Ó. og Grindavík mættust öðru sinni í átta liða úrslitum úrslitakeppni 1. deildar kvenna í knattspyrnu á miðvikudag. Fyrri leiknum, sem leikinn var í Ólafsvík, lauk með fjögurra marka sigri gestanna og var á brattann að sækja fyrir Víkingskonur fyrir aðra viðureign liðanna. Lokatölur á miðvikudag urðu þær sömu og í fyrri leiknum, Grindavík…Lesa meira

true

Tuttugu þúsund króna sekt fyrir að aka um á nagladekkjum

Alls voru teknar 106 myndir af ökumönnum sem óku of hratt framhjá hraðamyndavélinni við Fiskilæk sunnan Hafnarfjalls í vikunni sem leið. Lögreglumenn á Vesturlandi tóku auk þess 20 ökumenn fyrir of hraðan akstur í eftirliti á vegum í umdæminu. Einn ökumaður var tekinn fyrir meinta ölvun við akstur eftir að hann var valdur að umferðaróhappi…Lesa meira

true

Stjórnarþingmaður biður öryrkja og eldri borgara afsökunar

Karl Garðarsson alþingismaður Framsóknarflokks biður eldri borgara og öryrkja afsökunar á að kjör þeirra skuli ekki hafa verið bætt í tíð núverandi ríkisstjórnar. „Það er ófyrirgefanlegt,“ segir Karl í grein sem hann skrifar á vefmiðilinn Eyjuna. Hann bætir m.a. við að nú þegar rétt um sjö vikur eru til kosninga bóli ekkert á aðgerðum til að…Lesa meira