
Byggðarráð Borgarbyggðar hefur að undanförnu unnið að mótun tillagna um framtíðarfyrirkomulag fyrir Safnahús Borgarfjarðar til næstu ára. Í húsinu eru fimm söfn og fólst verkefnið í að skilgreina hlutverk og framtíðarsýn fyrir þau, áherslur, meginmarkmið og nauðsynlegar aðgerðir til að ná þeim fram. Niðurstaðan er að auka þurfi fjölbreytni í safnastarfinu og nýta betur söfnin…Lesa meira








