
Frá Brákarey. Ljósm. gj
Festir mun leiða vinnu við skipulag í Brákarey
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar 28. júlí síðastliðinn kom fram að Fasteignaþróunarfélagið Festir og JVST arkitektar hafa lýst yfir áhuga á því að leiða vinnu við heildarskipulag í Brákarey í Borgarnesi í samstarfi við sveitarstjórn. Ráðið tók erindinu vel. Framhald mála verður með þeim hætti að sveitarstjóri leggur fram drög að samningi við þessa aðila með tilliti til umræðna á byggðarráðsfundinum. Reiknað er með að þau liggi fyrir síðar í þessum mánuði. Af hálfu ráðsins er áhersla lögð á samráð við íbúa og hagsmunaaðila og væntingar eru til þess að í Brákarey verði blönduð byggð og starfsemi sem muni laða að sér mannlíf og auka lífsgæði íbúa.\r\n\r\nFestir er fasteignaþróunarfélag stofnað af Ólafi Ólafssyni og Ingibjörgu Kristjánsdóttur. Meginmarkmið þess er að þróa fasteignir og lóðir, ýmist með sölu eða rekstur í huga. Félagið hefur m.a. haft með uppbyggingu á Héðinsreitnum við Granda í Reykjavík að gera og er það einnig unnið í samstarfi við JVST arkitekta.\r\n\r\nHollensk-íslenska arkitektastofan JVST í Rotterdam var stofnuð árið 2012 undir heitinu jvantspijker. Í framhaldi af verkefnum hér á landi opnaði hún útibú á Íslandi fyrr á árinu og er Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt og umhverfisfræðingur framkvæmdastjóri þess. Einnig starfar Orri Steinarsson arkitekt á stofunni, en hann hóf þar störf árið 2018 og sinnir verkefnum hér á landi og í Hollandi jöfnum höndum. JVST hefur vakið athygli fyrir verðlaunatillögur að skipulagi byggðar og á það einnig við hér á landi, s.s. fyrir Héðinsreit og Vogabyggð í Reykjavík.",
"innerBlocks": []
}