Fréttir

true

Úrslit á Skeifudeginum á Hvanneyri

Skeifudagurinn á Hvanneyri var haldinn hátíðlegur fyrsta sumardag, en hann hefur verið fastur liður í starfi nemenda skólans allt frá 1957. Vegna samkomutakmarkana máttu gestir ekki mæta að þessu sinni að Mið-Fossum og var dagskránni streymt á vefnum. Skeifudagurinn er sannkölluð uppskeruhátíð nemenda í reiðmennskuáföngum við skólann þegar þeir sýna afrakstur námsins við tamningu og…Lesa meira

true

Nýr ungmennavefur Alþingis

Nýr ungmennavefur Alþingis hefur verið opnaður á slóðinni www.ungmennavefur.is. Vefurinn er ætlaður nemendum í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum – og auðvitað er öllum öðrum einnig velkomið að nýta sér hann til að afla upplýsinga um starfsemi Alþingis, segir í tilkynningu frá Alþingi. Í hugtakasafni er hægt er fletta upp helstu hugtökum sem gagnlegt er…Lesa meira

true

Rafræn Jörvagleði fer fram á morgun

Jörvagleði, menningarhátíð Dalamanna, verður haldin á morgun laugardaginn 24. apríl. Hátíðin hefur verið haldin annað hvert ár síðan 1977 en vegna heimsfaraldurs verður hátíðin með öðru sniði í ár. Dagskráin verður aðeins á laugardeginum og mun taka mið af gildandi sóttvarnareglum. Hressir hlaupagarpar hefja hátíðardagskrána með sumarhlaupi UDN klukkan ellefu í fyrramálið. Klukkan 14:00 verður…Lesa meira

true

Góðar fréttir af Snæfellsnesi

Eitt af því sem einkennt hefur Snæfellsnes síðustu ár er mikil og góð samvinna þvert á sveitarfélög. Má segja að samstarf og samvinna í hinum ýmsu birtingarmyndum sé orðin ein af sérstöðum Snæfellsness. Samstarf á sér langa sögu en sífellt er verið að auka þar í. Svæðisgarðurinn Snæfellsnes var til að mynda stofnaður árið 2014…Lesa meira

true

Forval VG hefst á miðnætti

Átta gefa kost á sér í fimm efstu sætin á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi, í rafrænu forvali sem hefst á miðnætti í kvöld og stendur til kl. 17.00 sunnudaginn 25. apríl. Kosið verður um fimm efstu sæti listans. Kosning verður bindandi í efstu þrjú sætin en í samræmi við forvalsreglur VG. Atkvæðisbærir…Lesa meira

true

Heiðlóan er fugl ársins 2021

Það er heiðlóan sem er sigurvegari kosningar um titilinn Fugl ársins 2021, en það á vel við að úrslitin séu kynnt á sumardaginn fyrsta. Heiðlóan flaug beint á toppinn í atkvæðagreiðslunni og sigraði með glæsibrag þar sem hún fékk bæði flest atkvæði sem fyrsta val kjósenda og var einnig með flest atkvæði samanlagt sem 1.-5.…Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði á heimavelli

Skallagrímur lagði Keflvíkinga þegar liðin mættust í Borgarnesi í Domino‘s deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi, 76-64. Fyrstu stig leiksins komu eftir aðeins þrjár sekúndur þegar Keira Robinson átti tveggja stiga körfu. Bæði lið komu sterk inn í fyrsta leikhluta og skiptust á um að leiða. Skallagrímskonur voru með 15 stig gegn 13 stigum Keflvíkinga…Lesa meira

true

Haukar of stór biti fyrir Snæfell

Snæfell tapaði fyrir Haukum þegar liðin mættust í Stykkishólmi í Domino‘s deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi; 72-92. Haukakonur byrjuðu leikinn betur og voru fljótlega komnar með sex stig gegn engu. Þær leiddu fyrstu mínúturnar en heimakonur gáfu þá í og náðu að jafna leikinn rétt undir lok fyrsta leikhluta. Gestirnir náðu þá í tvö…Lesa meira

true

Ferð með Björgunarfélagi Akraness að eldgosinu á Reykjanesskaga

Frá því eldgos hófst á Reykjanesskaga föstudagskvöldið 19. mars síðastliðinn hafa landsmenn flykkst að gosstöðvunum til að berja sjónarspilið augum. Um er að ræða nokkuð merkilegt gos en kvikan sem streymir upp úr jörðinni kemur beint úr möttli jarðar, af meira dýpi en flest önnur eldgos í seinni tíð. En það er ekki hættulaust að…Lesa meira