
Þau Þórarinn Svavarsson og Hjördís Geirdal, bændur á Tungufelli í Lundarreykjadal, standa í stórræðum þessi misserin. Þau eru að byggja hótel á næstu jörð við Tungufell, Iðunnarstöðum. Hótelið sem hefur fengið nafnið Basalt hótel verður 26 herbergja auk 50 manna veislusalar. Hótelið verður í þremur megin byggingum, tvær herbergjaálmur og veitingasalur. Önnur herbergjaálman og veitingasalurinn…Lesa meira








