Fréttir

true

Slakað verður á samkomutakmörkunum á fimmtudaginn

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur greint frá tilslökunum á samkomutakmörkunum og í skólastarfi sem taka gildi frá og með fimmtudeginum 15. apríl. Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir skilaði inn tillögum til ráðherra í gær. Helstu breytingar eru þær að almennar fjöldatakmarkanir fara úr tíu í tuttugu manns. Sundstaðir og heilsu- og líkamsræktarstöðvar mega opna að nýju með takmörkunum…Lesa meira

true

Umdeilt frumvarp um lífeyrismál

Í síðustu viku lagði fjármálaráðherra fram frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs og ákvæða um tilgreinda séreign. Óhætt er að segja að afar skiptar skoðanir séu um frumvarpið og meðal annarra hafa verkalýðsforingjarnir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, brugðist harkalega við og mótmælt því…Lesa meira

true

Þrír í einangrun á Vesturlandi

Þrír voru greindir með kórónuveiruna innanlands í gær og voru þeir allir utan sóttkvíar. Samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is eru nú þrír í einangrun á Vesturlandi; tveir í Borgarnesi og einn á Akranesi. Í gær voru aðeins tveir í einangrun í landshlutanum. Þá hefur einnig fjölgað í sóttkví í landshlutanum og eru nú 25 í…Lesa meira

true

Nýju stálþili verður komið fyrir í Ólafsvíkurhöfn

Í Ólafsvíkurhöfn er hafin vinna við að reka niður nýtt stálþil við löndunarbryggjuna. Að sögn Björns Arnaldssonar hafnarstjóra Snæfellsbæjar er unnið þessa dagana við að grafa skurð svo hægt verði að reka niður nýtt stálþil sem verður fjóra metra frá því gamla og er harður botn þar sem nýja stálþilið verður. Því er nauðsynlegt að…Lesa meira

true

Koma nú heim frá Tenerife og safna fyrir Björgunarfélag Akraness

Í janúar og fram í febrúar gengu, hlupu, hjóluðu eða syntu 182 nemendur og starfsmenn Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi 4.400 km, eða alla leið til Tenerife. Markmið verkefnisins var að auka hreyfingu og safna áheitum sem runnu óskert til Skógræktarfélags Akraness. Nú hafa nemendur og starfsmenn ákveðið að tími sé kominn til að koma aftur…Lesa meira

true

Jörvagleði í Dölum verður rafræn í ár

Jörvagleði,menningarhátíð Dalamanna, verður haldin laugardaginn 24. apríl næstkomandi. Hátíðin hefur verið haldin annað hvert ár síðan 1977 en vegna heimsfaraldurs verður hátíðin með öðru sniði í ár. Dagskráin verður aðeins á laugardeginum og mun taka mið af gildandi sóttvarnareglum. Hressir hlaupagarpar hefja hátíðardagskrána með sumarhlaupi UDN klukkan ellefu á laugardagsmorgun. Klukkan 14:00 verður dagskrárliðurinn „Afbragð…Lesa meira

true

Boða röskun á þjónustu Arion banka um helgina

Helgina 16. – 18. apríl mun Arion banki innleiða nýtt greiðslu- og innlánakerfi í samstarfi við Reiknistofu bankanna. „Kappkostað er að viðskiptavinir verði sem minnst varir við innleiðinguna en ekki verður hjá því komist að þjónustan raskist eitthvað. Föstudaginn 16. apríl verður þjónusta í útibúum bankans með hefðbundnum hætti en þann dag og um helgina…Lesa meira

true

Segir af sér formennsku í fræðslu- og skólanefnd

Sigurbjörg Ottesen hefur sent opið bréf til sveitarstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps, fjölmiðla og fleiri aðila þar sem hún tilkynnir tafarlausa afsögn sína úr embætti formanns nefndarinnar. Bréf Sigurbjargar er svohljóðandi: „Undirrituð hefur tekið ákvörðun um að segja af sér sem formaður fræðslu- og skólanefndar hér í sveit og óskar hér með eftir lausn frá nefndarstörfum…Lesa meira

true

Tveir í einangrun í Borgarnesi

Einn var greindur með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt uppfærðum tölum á Covid.is. 98 eru nú í einangrun á landinu og 128 í sóttkví. Í dag eru tveir komnir í einangrun á Vesturlandi, báðir á svæði heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi. Þá er einn í sóttkví á Akranesi.Lesa meira

true

Ráðnir í störf húsvarða í Snæfellsbæ

Nýverið gekk Snæfellsbær frá ráðningu tveggja starfsmanna í störf húsvarða við íþróttamannvirki og grunnskóla sveitarfélagsins. Kristinn Jónasson bæjarstjóri segir í samtali við Skessuhorn að bætt sé við einu stöðugildi en það sé vegna skipulagsbreytinga og breyttu vinnutímafyrirkomulagi í kjarasamningum. Húsverðir munu leysa hvorn annan af og þá mun húsvörður í íþróttamannvirkjum taka vaktir í sundlaug…Lesa meira