Fréttir

true

Telja óhætt að vera í skólahúsinu út þetta skólaár

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag voru raka- og mygluvandamál sem staðfest hafa verið í húsnæði Grunnskóla Borgarfjarðar til umræðu. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, formaður byggðarráðs, lagði fram bókun f.h. meirihluta sveitarstjórnar: „Meirihluti leggur áherslu á að búið sé að gera allar þær varúðarráðstafanir sem lagðar hafa verið til af sérfræðingum í myglumálum og komið hefur…Lesa meira

true

Ekkert lát á eldgosinu

Eldgosið sem hófst á Reykjanesi 19. mars síðastliðinn heldur áfram og færist í aukana. Að undanförnu hafa tvær nýjar sprungur opnast þar sem hraun, sem á uppruna sinn langt í iðrum jarðar, vellur upp. Sem fyrr er hraunrennslið mikið sjónarspil og fjölmargir sem lagt hafa leið sína á svæðið, ekki síst eftir að tekur að…Lesa meira

true

Munu fjalla um arðsemi hamingju á landsbyggðinni

Laugardaginn 17. apríl næstkomandi munu landsbyggðadeildir Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) taka höndum saman og bjóða upp á „innihaldsríka ráðstefnu þar sem fjallað er um ríkidæmi landsbyggðarinnar,“ eins og segir í fréttatilkynningu. „Á ráðstefnunni skautum við yfir sviðið og ræðum tækifæri í takt við þessa nýju heimssýn á nýjum tímum undir yfirskriftinni „Arðsemi hamingjunnar á…Lesa meira

true

Spurt og svarað um sóttvarnaráðstafanir á landamærum

Frá og með 9. apríl síðastliðinn tók gildi ný reglugerð nr. 375/2021, um sóttkví og einangrun og sýnatöku við landamæri Íslands vegna COVID-19. Heilbrigðisráðuneytið hefur tekið saman eftirfarandi spurningar og svör sem lúta að inntaki reglugerðarinnar og framkvæmd hennar: Hverjir teljast ferðamenn/farþegar? Með ferðamanni/farþega er átt við hvaða einstakling sem er, sem ferðast milli landa,…Lesa meira

true

Fyrrum ritstjóri haslar sér völl í kjólaframleiðslu

Áskell Þórisson, fyrrum ritstjóri og upplýsingafulltrúi, sem býr á Ægissíðu í Hvalfjarðarsveit, hefur undanfarin misseri unnið að nýju verkefni sem er talsvert ólíkt þeim fyrri. Eins og margir vita er Áskell liðtækur ljósmyndari en sú þekking nýttist honum vel í fyrri störfum á Bændablaðinu og víðar. „Ég hef verið að dunda mér við að taka…Lesa meira

true

Grásleppuvertíð hafin – verðið lágt

Grásleppuvertíðin er nú komin í fullan gang. Á Vesturlandi hafa nokkrir bátar þegar landað. Blaðamaður Skessuhorns náði tali af Kristófer Jónssyni á Rán AK-69 sem gerir út frá Akranesi. Hann og Sigurgeir Sigurðsson voru þá á leið að síðustu trossunni í dag. Að sögn Kristófers eru aflabrögð vonum framar og sama má segja um veðrið.…Lesa meira

true

Breyting á deiliskipulagi Dalbrautarreits samþykkt

Ekki fallist á athugasemdir sem bárust Bæjarstjórn Akraness auglýsti í lok síðasta árs tillögu að breytingu á deiliskipulagi Dalbrautarreits á Akranesi. Breytingin felst m.a. að í stað tveggja hæða með inndreginni þriðju hæð er gert ráð fyrir þremur hæðum með inndreginni fjórðu hæð meðfram Dalbraut, þar sem gafl fjórðu hæðar er 9 m. frá norðurgafli…Lesa meira

true

Heimild til að taka út séreignarsparnað framlengd um ár

Frumvarpi fjármálaráðherra um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru var dreift á Alþingi í vikunni. Í frumvarpinu er lagt til að heimild til úttektar á séreignarsparnaði taki gildi að nýju. Lagt er til að rétthöfum séreignarsparnaðar verði heimilt að sækja um að fá greiddan út séreignarsparnað upp að ákveðnu marki…Lesa meira

true

Gasmengun gæti lagt yfir Vesturland

Samkvæmt gasmengunarspá Veðurstofunnar gæti brennisteinsmengun frá gosstöðvunum á Fagradalsfjalli lagt yfir Vesturland aðfararnótt sunnudags. Samkvæmt spánni gæti mengunin á Akranesi og á Mýrum orðið allt að 600 míkrógrömm á rúmmetra. Á Vísindavefnum má finna umfjöllun um áhrif brennisteinsmengunar frá eldgosi á heilsu fólks. Þar segir m.a.: „Áhrifum af SO2 má skipta í skammtímaáhrif vegna skyndilegrar…Lesa meira

true

Lýstu yfir vantrausti á meirihluta þrátt fyrir jákvæða rekstrarniðurstöðu

Ársreikningur Borgarbyggðar fyrir síðasta ár var lagður til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar í gær. Samkvæmt ársreikningi sveitarfélagsins var rekstrarniðurstaða A og B hluta jákvæð um 113 milljónir króna. Áætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A og B hluta yrði neikvæð um 191 milljón króna. Afkoman er því rúmum 300 milljónum króna…Lesa meira