Fréttir

true

Sýningin Myrka Ísland sett upp á Bókasafni Akraness

Fimmtudaginn 25. mars verður opnuð farandsýning á Bókasafni Akraness, sem nefnist Hlaðvarpið Myrka Ísland. Þar er fjallar um hamfarir, hörmungar, þjóðsögur og óhugnað í íslenskri sögu. Ungu listamennirnir Lúkas Guðnason og Sigurjón Líndal Benediktsson hafa gert myndskreytingar við nokkra hlaðvarpsþætti, en það er Sigrún Elíasdóttir, þáttastjórnandi Myrka Íslands, sem stendur fyrir sýningunni. Sýningin var fyrst…Lesa meira

true

Rótarý minnir á söfnun fyrir stafrænan þjálfunarbúnað

Rótarýklúbbur Borgarness minnir á söfnunarátak klúbbsins til kaupa á stafrænum þjálfunarbúnaði fyrir Slökkvilið Borgarbyggðar. Þeir sem vilja leggja málefninu lið geta greitt inn á reikning 0354-03-400624 kt. 530586-2009 í Arion banka í Borgarnesi fyrir 15. apríl nk. „Tökum nú höndum saman og styðjum framfaramálefni í héraði,“ segir í tilkynningu frá klúbbnum.Lesa meira

true

Kynningarmyndband um starfsemi Elkem Ísland

Nýlega lét Elkem Ísland útbúa kynningarmyndband um starfsemi fyrirtækisins fyrir erlenda gesti. Tómas Freyr Kristjánsson ljósmyndari og drónaflugstjóri í Grundarfirði tók verkefnið að sér og úr varð tæplega fimm mínútna myndband. Myndirnar tók og vann Tómas Freyr sjálfur, en auk þess gefur að líta fjórar ljósmyndir sem voru fengnar úr myndasafni Elkem og ein starfsmannamynd…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir Álafossi og spilar næst við golfklúbbinn

Leikmenn Skallagríms úr Borgarnesi léku á sunnudaginn gegn Álafossi í Lengjubikarnum og fór leikurinn fram í Mosfellsbæ. Álafoss sigraði í leiknum 3:1. Heimamenn náðu tveggja marka forystu með þriggja mínútna millibili um miðja fyrri hálfleikinn, með mörkum Kristins Arons Hjartarsonar og Ingva Þórs Albertssonar. En eftir hálftíma leik var einum leikmanni Álafoss vísað af leikvelli…Lesa meira

true

Blikur á lofti hvað Covid-19 varðar

Á upplýsingafundi Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra nú í morgun fóru Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Alma Möller landlæknir og Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn yfir stöðu Covid-19 hér á landi í dag. Þau sögðu öll að nú væru blikur á lofti hvað faraldurinn varðar en fimm greindust með veiruna innanlands í gær og aðeins tveir þeirra voru í sóttkví. Alls greindust…Lesa meira

true

Björn býður fram krafta sína til forystu í Samfylkingunni

Björn Guðmundsson húsasmiður á Akranesi gefur kost á sér í 1.-4. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Hann segist í tilkynningu ungur hafa hneigst til jafnaðarstefnu. „Jafnaðarmennskan hefur verið mitt leiðarljós en hún fellur best að mínum hugsjónum. Af þeim sökum hef ég verið virkur í sveitarstjórnarmálum um allnokkurt skeið. Nú kunna einhverjir að hugsa…Lesa meira

true

Ekki fengið stig í níu leikjum í röð

Snæfell tapaði sínum níunda leik í röð þegar liðið tapaði fyrir Haukum, 98-68, í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn. Leikið var í Hafnarfirði. Bæði lið mættu sterk til leiks og skiptust á um að leiða fyrstu mínúturnar. Þá komust heimakonur fimm stigum yfir um tíma en Snæfell svaraði og minnkaði muninn í eitt…Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði Sindra á föstudaginn

Skallagrímur lagði Sindra, 82-73, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikið var í Borgarnesi á föstudaginn. Bæði lið mættu sterk til leiks og skiptust á um að leiða fyrstu fimm mínútur. Þá náðu Borgnesingar að skríða fram úr gestunum en komust ekki lengra en fimm stigum frá þeim í fyrsta leikhluta, 22-17.…Lesa meira

true

Borgnesingar töpuðu í Keflavík

Skallagrímskonur töpuðu gegn Keflvíkingum á útivelli, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn. Keflavík sigraði með 74 stigum gegn 51 stigi Skallagríms. Heimakonur voru komnar 5-0 yfir eftir aðeins eina mínútu en Borgnesingar virtust þá finna taktinn og náðu Keflvíkingum. Þær komust stigi yfir um miðjan fyrsta leikhluta en heimakonur komust…Lesa meira

true

Búnaðarþing fjallar um sameiningu BÍ og búgreinafélaga

Setningarathöfn Búnaðarþings 2021 verður streymt beint í gegnum Facebook-síðu Bændasamtaka Íslands klukkan 12:30 í dag frá Súlnasal Hótel Sögu. Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri BÍ, stýrir athöfninni sem hefst formlega á setningarræðu Gunnars Þorgeirssonar formannsins BÍ. Tónlistarflutningur tekur við eftir setningarræðuna og að svo búnu eru ávörp gesta; forsætisráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og loks forseta Íslands. Fundur…Lesa meira