Fréttir

true

Landsbjargarfólk bjargaði tugum úr ógöngum á gosslóðum

Þúsundir Íslendinga hafa farið á gosstöðvarnar í Geldingadal á Reykjanesi frá því byrjaði að gjósa á föstudagskvöld. Flestir hafa notið þess stórfengleika sem við blasti, vel búnir, í góðu formi og búnir nesti. Síðdegis í gær var stöðugur straumur fólks að gosstöðvunum og um tíma talið að um þrjú þúsund manns hafi verið á svæðinu.…Lesa meira

true

Ræða sameiningarmál við nágranna í vestri og austri

Verkefnishópur á vegum Dalabyggðar lagði það til við sveitarstjórn Dalabyggðar að annars vegar sveitarstjórn Húnaþings vestra og hins vegar sveitarstjórnum Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar verði boðið til fundar til að ræða hvort hefja skuli viðræður um mögulega sameiningu við Dalabyggð. Sveitarfélag með sameingu Dalabyggðar, Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar hefði 1.936 íbúa en í sameinuðu sveitarfélagi Dalabyggðar og…Lesa meira

true

ÍA með fjóra klifrara á verðlaunapalli

Fyrsta móti af fjórum í Íslandsmeistarmótaröðinni 2021 í klifri fór fram á laugardaginn í Klifurhúsinu í Reykjavík. ÍA mætti með stóran hóp klifrara í yngri flokkum (B-og C-flokki) og hefur keppnishópurinn aldrei verið stærri. „Leiðasmiðir lögðu upp með fjölbreyttar leiðir, sem einkenndust af erfiðum samhæfingar hreyfingum og jafnvægi. Leiðirnar voru allar í erfiðari kantinum og…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu naumlega

Skagakonur mættu stöllum sínum úr Víkingi Reykjavík í Lengjubikarnum í fótbolta á föstudagskvöld, í leik sem fam fór í Akraneshöllinni. Leiknum lauk með naumum sigri Víkings 3:2. Víkingur leiddi 2:0 í hálfleik með mörkum þeirra Nadíu Atladóttur og Dagnýjar Rúnar Pétursdóttur og fátt benti til annars en að öruggur sigur Víkings væri í höfn þegar…Lesa meira

true

Kristján Þór ráðinn framkvæmdastjóri Landsbjargar

Kristján Þór Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá og með 1. apríl næstkomandi. „Kristján hefur víðtæka reynslu úr fjármálageiranum þar sem hann sat í framkvæmdastjórn Valitors á árunum 2008 til ársins 2019, fyrst sem framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar og síðar alþjóðasviðs félagsins eða þar til hann tók við sem framkvæmdastjóri Valitor á Íslandi…Lesa meira

true

Óhapp við flutning hræja til brennslu

Síðastliðinn fimmtudag kom upp atvik við flutning á riðusmituðum úrgangi sem flytja átti til brennslu í Kölku á Suðurnesjum. Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að mikill þrýstingur af völdum gasmyndunar úr úrganginum hafi myndast í einum gámnum á meðan á flutningi stóð. Þetta hafi orðið til þess að hleri á ofanverðum gámnum gaf sig og…Lesa meira

true

Kári tapaði fyrir Tindastóli

Knattspyrnufélagið Kári hélt í Skagafjörðinn í gær og atti kappi við Tindastól á Sauðárkróki í Lengjubikar karla. Káramenn byrjuðu leikinn vel og Andri Júlíusson kom þeim yfir strax á 17. mínútu. Enn vænkaðist hagur Kára þegar einum leikmanni Tindastóls var vikið að leikvelli um miðjan fyrri hálfleikinn. En skjótt skipast veður í lofti. Því síðustu…Lesa meira

true

Sjálfstæðismenn samþykktu prófkjör

Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi hélt kjördæmaþing í streymi síðastliðinn laugardag. Þar var samþykkt með tveimur þriðju hluta greiddra atkvæða tillaga stjórnar um að halda prófkjör meðal flokksmanna í júní. Prófkjörið verður í tvo daga, eða miðvikudaginn 16. og laugardaginn 19. júní. Verður kosið um fjögur efstu sætin á framboðslistanum. Eins og fram hefur komið hafa sitjandi…Lesa meira

true

Gylfi Þór gefur kost á sér fyrir Samfylkinguna

Gylfi Þór Gíslason á Ísafirði hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér í 1. til 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar í haust. Gylfi Þór er 57 ára og starfar sem lögregluvarðstjóri á Vestfjörðum.Lesa meira

true

Stefán Vagn og Lilja Rannveig sigurvegarar í póstkosningu Framsóknar

Talningu atkvæða í póstkosningu Framsóknarflokksins í Norðulandskjördæmi vestra lauk í kvöld. Tíu manns gáfu kost á sér. Kosið var um fimm efstu sæti listans fyrir komandi alþingiskosningar. Á kjörskrá voru 1995. Kosningaþátttaka var 58% Þau sem hlutu kosningu voru: Stefán Vagn Stefánsson hlaut 580 atkvæði í fyrsta sæti Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir hlaut 439 atkvæði í…Lesa meira