Fréttir

true

Móta stefnu í MB um menntun fyrir störf framtíðarinnar

Í ársbyrjun 2021 samþykkti Stjórn Menntaskóla Borgarfjarðar (MB) að skipa starfshóp sem móta á tillögur fyrir þróun skólans. Markmiðið er að auka sérstöðu og efla ímynd MB, koma til móts við nýjar þarfir í menntun ungs fólks, fjölga nemendum og laða að enn fjölbreyttari hóp nemenda, en auk þess að stuðla að jákvæðari búsetuskilyrðum í…Lesa meira

true

Enskur framherji til Víkings Ólafsvík

Knattspyrnufélagið Víkingur Ólafsvík hefur samið við tvítugan enskan framherja sem heitir Kareem Isika um að leika með liðinu í sumar. Kareem er framherji og kemur úr akademíu enska C-deildarliðsins Charlton Athletic þar sem hann dvaldi í átta ár. Víkingur bindur miklar vonir við þennan unga leikmann, enda ekki vanþörf á að fá öflugan framherja þar…Lesa meira

true

Rýma þarf hluta Grundaskóla vegna leka og slæmra loftgæða

Athugun verkfræðistofunnar Verkís á húsnæði Grundaskóla á Akranesi, sem gerð var vegna heilsufarseinkenna sem vart hefur orðið hjá nokkrum nemendum og starfsfólki skólans, hefur leitt í ljós að ráðast þarf í umfangsmiklar viðgerðir á húsinu. Þegar frumniðurstöður lágu fyrir í liðinni viku var strax tekin ákvörðun um að rýma hluta hússins þar sem loftgæðum er…Lesa meira

true

Fjöldi í sóttkví eftir að Covid-19 smit kom upp á göngudeild Landspítalans

Starfsmaður Landspítala greindist með kórónuveiruna í gær. Fréttavefurinn visir.is greindi frá að hópur starfsmanna og sjúklinga hafi verið sendur í sýnatöku vegna þessa. Deild þar sem smitið kom upp hefur verið lokað, en um er að ræða göngudeild smitsjúkdóma, ofnæmis og lungnasjúkdóma. Smitrakning stendur enn yfir yfir og er búist við að niðurstöðu úr sýnatöku…Lesa meira

true

Tveimur fjallgöngukonum komið til bjargar

Björgunarsveitir af Snæfellsnesi voru síðdegis í gær kallaðar út til aðstoðar tveimur fjallgöngukonum sem staddar voru í 850 metra hæð í Ljósufjöllum á norðanverðu Snæfellsnesi. Höfðu þær verið í hópi fjallgöngufólks, hrasar og slasast á fótum. Félagar úr Lífsbjörgu, Klakki og Berserkjum fóru í verkefnið ásamt lögreglu, sjúkraflutningamönnum og Landhelgisgæslunni. Þyrla Landhelgisgæslunnar komst ekki á…Lesa meira

true

Ákvörðun ríkis ef breyta á alþjónustu og hætta að bera út bréf

„Íslandspóstur er ekki að íhuga að hætta að bera út bréfapóst enda getur félagið ekki tekið einhliða ákvörðun um slíkt eða um aðra þætti sem snúa að alþjónustuskyldu,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu sem send var út í gær. Vísað er til viðtals við forstjórann sem birtist í Morgunblaðinu á laugardaginn þar sem Þórhildur Ólöf…Lesa meira

true

Öruggur sigur Skagamanna gegn Vestra í Lengjubikar

Skagamenn unnu öruggan 4:1 sigur gegn Vestra frá Ísafirði í Lengjubikarnum í fótbolta. Spilað var í Akraneshöllinni síðastliðið föstudagskvöld. Eftir góða byrjun Skagamanna náði Vestri snöggri skyndisókn á 9. mínútu leiksins og Casper Gandrup Hansen skoraði fallegt mark í fjærhornið og Vestri kominn yfir í leiknum. Skagamenn svöruðu strax og aðeins tveimur mínútum síðar fengu…Lesa meira

true

Jafntefli hjá Kára í Lengjubikarleik

Knattspyrnufélagið Kári á Akranesi gerði 1:1 jafntefli gegn Augnabliki úr Kópavogi í leik sem fram fór í Akraneshöllinni í gær. Káramenn voru hársbreidd frá sigri í leiknum því Augnablik jafnaði leikinn á 89. mínútu. Það var Andri Júlíusson sem kom Káramönnum yfir á 30. mínútu með marki úr vítaspyrnu. Á lokamínútu fyrri hálfleiks fékk Augnablik…Lesa meira

true

Íslandspóstur gerður upp með hagnaði

Aðalfundur opinbera hlutafélagsins Íslandspósts var haldinn í dag. Hagnaður ársins nam 104 milljónum króna en til samanburðar var tap ársins 2019 511 milljónir króna. „Árangur sem þessi er alls ekki sjálfgefinn, endurskipulagning og niðurgreiðsla langtímalána hefur létt umtalsvert á félaginu og okkur tókst með samstilltu átaki stjórnar og starfsfólks að bregðast við tekjuminnkun vegna minni…Lesa meira

true

Ný forysta og viðurkenningar á sambandsþingi UMSB

Í gærkveldi var 99. sambandsþing Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi. Í upphafi þings voru veittir styrkir úr afreksmannasjóði UMSB. Öflugir íþróttamenn fengu styrki úr sjóðnum að þessu sinni það voru þau Alexandrea Guðnýjardóttir kraftlyftingakona, Birgitta Dröfn Björnsdóttir dansari, Bjarni Guðmann Jónsson körfuknattleiksmaður, Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir körfuboltakona. Í fyrsta…Lesa meira