Fréttir

true

Valskonur voru of erfiðar fyrir Borgnesinga

Valskonur sigruðu Skallagrím örugglega þegar liðin mættust í Borgarnesi í gær, sunnudag. Gestirnir tóku stjórnina strax í fyrsta leikhluta og voru búnir að ná góðri 12 stiga forystu í lok leikhlutans, 24-12. Borgnesingar fundu engin ráð gegn sterku liði Valskvenna sem var enn með þægilega tólf stiga forystu í hálfleik, 44-32. Eftir hléið héldu gestirnir…Lesa meira

true

Þingmannanefnd rýnir lög um RUV

Lilja D. Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefur falið þremur fulltrúm ríkisstjórnarflokkanna að rýna lög um Ríkisúvarpið ohf. Jafnframt skal þingmannanefndin gera tillögur að breytingum sem líklegar eru til að sætta ólík sjónarmið um starfsemi og hlutverk RUV. Þingmennirnir skulu hafa hraða hendur og skila tillögum sínum fyrir lok mars. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að þingmannanefndin…Lesa meira

true

Björgunarsveitir fá nýjar færanlegar rafstöðvar

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, færði á föstudaginn fulltrúum þrettán björgunarsveita Landsbjargar nýjar færanlegar rafstöðvar. Fór afhending þeirra fram við athöfn í húsakynnum Neyðarlínunnar á Hólmsheiði. Færanlegum rafstöðvum verður komið fyrir hjá björgunarsveitum sem taldar eru best til þess fallnar að nýta þær þegar neyðarástand skapast, en umráðamenn þeirra munu koma þeim á aðra…Lesa meira

true

Tap og sigur Skagaliða í Lengjubikarnum

Skagaliðin ÍA og Kári áttu leiki í Lengjubikarkeppninni í knattspyrnu karla síðastliðinn föstudag. Þar hafði knattspyrnufélagið Kári sigur gegn ÍH, en ÍA tapaði leik sínum við Stjörnuna. Góður sigur Kára Káramenn byrjuði vel í B-deild karla í Lengjubikarnum með öruggum sigri gegn ÍH 4:1 í Akraneshöllinni á föstudagskvöldið. Það var Breki Þór Hermannsson sem kom…Lesa meira

true

Jökullinn og umhverfi hans skartaði sínu fegursta

Meðfylgjandi mynd var tekin í dag í hrauninu ofan við Malarrif á Snæfellsnesi þar sem Jökullinn skartaði sínu fegursta í birtu rísandi sólar. Myndasmiðurinn hreifst af náttúrunni og sagði í samtali við blaðamann að það væri á stundum sem þessari sem hann fylltist mestu stolti yfir að vera bæjarstjóri í þessu einstaka umhverfi. „Ég var…Lesa meira

true

Nýr sjóvarnargarður uppbyggður á Akranesi – myndband

Á síðasta ári hófust framkvæmdir við nýjan sjóvarnargarð meðfram Faxabraut á Akranesi. Garðurinn var breikkaður og hækkaður um tvo metra til að verja mætti væntanlega byggð á Sementsreitnum svokallaða fyrir ágangi sjávar. Grjótgarðurinn var boðinn út samhliða uppbyggingu Faxabrautar og er það Borgarverk sem annast verkið. Alls kostar það um hálfan milljarð króna og eru…Lesa meira

true

Háskólahátíð á Bifröst þegar 76 nemendur voru brautskráðir

Í gær voru 76 nemendur brautskráðir frá Háskólanum á Bifröst. Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor Háskólans á Bifröst, Jón Snorri Snorrason forseti viðskiptadeildar og Njörður Sigurjónsson forseti félagsvísinda- og lagadeildar afhentu nemendum skírteini sín við hátíðlega athöfn í Hriflu, hátíðarsal skólans. Af sóttvarnarástæðum var brautskráningunni tvískipt og voru 32 nemendur útskrifaðir úr grunnnámi og háskólagátt fyrir…Lesa meira

true

Ætla að kostnaðarmeta nauðsynlegar lagfæringar í Brákarey

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að fela sveitarstjóra að afla tilboða í úttekt á gamla sláturhúsinu í Brákarey og leggja fyrir næsta fund byggðarráðs. Eins og fram kom í fréttum í síðustu viku var umferð og notkun í húsunum Brákarbraut 25 og 27 bönnuð frá og með laugardeginum 13. febrúar vegna alvarlegra…Lesa meira

true

Lentu í snjóflóði í norðurhlíðum Skessuhorns

Síðdegis í gær voru björgunarsveitir Landsbjargar í Borgarfirði og á Akranesi kallaðar út til verkefnis í norðurhlíðum Skessuhorns í Borgarfirði. Tilkynning hafði borist Neyðarlínunni frá tveimur mönnum sem lent höfðu í snjóflóði í fjallinu um nónbil. Mennirnir náðu sjálfir að tilkynna um stöðu sína eftir að þeir komust úr flóðinu. Annar þeirra hafði tognað á…Lesa meira

true

Eigendur Norðanfisks kaupa Eðalfisk í Borgarnesi

Eigendur Eðalfisks ehf. í Borgarnesi hafa gengið að kauptilboði Brimilshólma ehf. í allt hlutafé félagsins. Tilboðið er háð tilteknum fyrirvörum af hálfu beggja aðila og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Gert er ráð fyrir að niðurstaða úr henni liggi fyrir á næstu vikum. Eðalfiskur ehf. er 34 ára fyrirtæki sem stofnað var í Borgarnesi þar sem það hefur…Lesa meira