Fréttir

true

Prufukeyrðu nýja raforkuframleiðslu í Reykholti

Í Reykholti í Borgarfirði hefur fyrirtækið Varmaorka undanfarin misseri unnið við uppsetningu véla og tækjabúnaðar sem framleiða mun rafmagn úr yfirhita á heitu vatni. Fyrirtækið er í nánu samstarfi við sænska fyrirtækið Climeon AB sem býður upp á sérhæfðar tæknilausnir fyrir nýtingu lág- og meðalhita til framleiðslu raforku. Verkefnið hefur nú verið í undirbúningi í…Lesa meira

true

Fékk verðlaun í eldvarnagetraun LSS

Fyrr í vikunni voru á Akranesi afhent verðlaun í eldvarnagetraun sem Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna stóð fyrir í lok síðasta árs. Það var Keanna Rós Garðarsdóttir, nemandi í Brekkubæjarskóla, sem hafði heppnina með sér en nafn hennar var dregið úr hópi svarenda. Verðlaun voru afhent til sigurvegarans að lokinni rýmingaræfingu í Brekkubæjarskóla.Lesa meira

true

Fyrsta útsending ÍATV frá fimleikahúsinu á morgun

Á morgun, laugardaginn 20. febrúar, standa forsvarsmenn ÍATV vaktina frá morgni til kvölds í nýja Fimleikahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Þar fer þá fram GK-mót í hópfimleikum á vegum Fimleikasambands Íslands og Fimleikafélags Akraness. Þetta verður fyrsta mótið sem haldið er í húsinu og því sögulegur viðburður í íþróttasögu Akraness. Útsending hefst klukkan 10:30 í…Lesa meira

true

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs stofnað á næstunni

Unnið er að stofnun ferðafélags í Borgarfirði. Stofnun félagsins er sprottin upp úr áhuga nokkurra einstaklinga á að auka veg og virðingu svokallaðrar Vatnaleiðar sem tengir saman Borgarfjörð og Snæfellsnes en hún liggur milli Hlíðarvatns, Hítarvatns, Langavatns og Hreðavatns. Til er kort af leiðinni en markmiðið er að stika hana og lagfæra og byggja upp…Lesa meira

true

Öruggur sigur Skallagrímskvenna

Skallagrímur sigraði KR örugglega þegar liðin mættust í Borgarnesi í Domino‘s deild kvenna síðastliðinn miðvikudag, 67-53. Skallagrímskonur náðu yfirhöndinni strax í fyrsta leikhluta og leiddu með átta stigum þegar annar leikhluti hófst, 19-11. Áfram héldu heimakonur að stjórna inni á vellinum og voru í þægilegri ellefu stiga forystu þegar flautað var til hálfleiks, 33-22. Lítið…Lesa meira

true

Kaka ársins komin í sölu í bakaríum

Ljósmæður og starfsfólk fæðingarþjónustu Landspítala tóku á móti fyrstu Köku ársins 2021. Landssamband bakarameistara efndi venju samkvæmt til árlegrar keppni um Köku ársins. Sigurvegari keppninnar var Garðar Sveinn Tranberg, bakarameistari hjá Bakarameistaranum og er kaka Garðars Góu hraunkaka með karamellumús og ferskju- og ástaraldinfrómas. Sala á kökunni hófst í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara um allt…Lesa meira

true

Frumvarp sem leggst gegn blóðmerahaldi

Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um velferð dýra. Frumvarpið leggur til að svokallað blóðmerahald verði bannað hér á landi og því verði bannað að taka blóð úr fylfullum hryssum í þeim tilgangi að selja það eða vinna úr því vöru til sölu. Í greinargerð með…Lesa meira

true

Úrelt lög felld úr gildi

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um brottfall 25 laga á málasviði ráðuneytisins. Lögin, sem lagt er til að felld verði brott, hafa öll lokið hlutverki sínu en eru að formi til enn í gildi. Elstu lögin eru frá árinu 1917. Flest lögin sem felld yrðu úr gildi eru sérlög um bæjarstjórnir í tilteknum…Lesa meira

true

Smíðar stólana Alka, Fullan og Þunnan

Erling Markús Andersen tekur brosandi á móti blaðamanni á verkstæði sínu við Ægisbraut á Akranesi. Á verkstæðinu smíðar Erling bátalíkön en hann hefur smíðað slík líkön í 19 ár. Hann sinnir einnig viðgerðum á bátalíkönum og sýnir blaðamanni líkan af sportbát sem hann fékk til viðgerðar. Líkanið var keypt ósamsett í Bretlandi á stríðsárunum og…Lesa meira

true

Viðræður um aukið samstarf slökkviliða

Opnað var á viðræður milli sveitarfélaganna Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Akraneskaupstaðar um aukið samstarf þeirra á sviði eldvarna og slökkviliðsmála í lok síðasta árs. Slíkar hugmyndir höfðu upphaflega komið til tals fyrir um þremur árum. Unnið er að því að safna upplýsingum um mögulegar leiðir til aukins samstarfs og nú eftir áramót hafa verið vikulegir fundir…Lesa meira