Fréttir

true

Borgarbyggð hefur opnað netspjall

Borgarbyggð opnaði á mánudaginn netspjall á heimasíðu sveitarfélagsins. Þegar vefsíðan borgarbyggd.is er opnuð birtist gluggi neðst í hægra horni þar sem hægt er að fara inn í netspjallið. Spjallið verður fyrst um sinn opið alla virka daga frá kl. 9:30-15:00. Á heimasíðu sveitarfélagsins er greint frá því að netspjallið sé liður í því að auka…Lesa meira

true

Sveitarfélög á Vesturlandi vilja flýta undirbúningsvinnu við Sundabraut

Sveitarfélög á Vesturlandi hvetja í yfirlýsingu, sem þau senda í sameiningu frá sér í dag, til þess að þegar verði hafist handa við undirbúning að framkvæmdum við Sundabraut. „Sveitarfélögin á Vesturlandi fagna nýrri skýrslu um lagningu Sundabrautar þar sem skýrðir eru helstu valkostir um legu hennar og þverun Kleppsvíkur. Skýrslan er vel unnin og greinargóð…Lesa meira

true

Ís lokar höfninni á Tálknafirði

Beitningsvélarbáturinn Indriði Kristins BA komst ekki til heimahafnar á Tálknarfirði í gær vegna þess að ís lokar höfninni þar. Því varð Indriði að landa afla sínum í Ólafsvík. Afli bátsins var un 14 tonn í tvær lagnir. Á meðfylgjandi mynd er Fannar Jónínuson að landa.Lesa meira

true

Fáðu þér G-Vítamín – opið í Stykkishólmi á morgun

Frítt  verður inn á valin söfn í landinu í samstarfi við sveitarfélög um land allt miðvikudaginn 10. febrúar. Meðal safna sem taka þátt má nefna að Norska Húsið og Vatnasafnið á Stykkishólmi sem verða opin á morgun. Norska húsið – Byggaðsafn Snæfellinga og Hnappdæla verður opið frá kl. 14-16. Vatnasafn er opið kl. 14-16, fólk…Lesa meira

true

Hreindýrakvóti gefinn út

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta fyrir 2021 að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1.220 dýr á árinu, 701 kú og 519 tarfa. Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst…Lesa meira

true

Allir samþykktu ný sóttvarnalög

Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra til breytinga á sóttvarnalögum var samþykkt á Alþingi í liðinni viku með öllum greiddum atkvæðum. Með lagabreytingunni er kveðið skýrar á um til hvaða ráðstafana er heimilt að grípa vegna farsóttarhættu og útbreiðslu smits, í hvaða tilvikum og með tilliti til meðalhófssjónarmiða. Markmið breytinganna er að tryggja að slíkar skerðingar á…Lesa meira

true

Elias Tamburini til liðs við Skagamenn

Finnski vinstri bakvörðurinn Elias Tamburini gekk nýlega til liðs við Skagamenn frá Grindavík. Elias sem er 25 ára gamall hefur leikið 54 leiki á Íslandi síðustu þrjú tímabil með Grindvíkingum áður en hann gekk til liðs við Skagamenn. Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari Skagamanna segist í samtali við Skessuhorn vera ánægður með það að fá Elias…Lesa meira

true

Mæla búsetuskilyrði og hamingju í nýrri íbúakönnun á landsvísu

Snæfellsnes og Akranes koma vel út en Dalir reka lestina Ný könnun landshlutasamtaka sveitarfélaga hefur nú verið birt. Könnunin var gerð meðal íbúa landsins og spurt út í búsetuskilyrði, hamingju og viðhorfi til síns sveitarfélags. Að könnuninni stóðu landshlutasamtök sveitarfélaga ásamt Byggðastofnun og var hún gerð á íslensku, ensku og pólsku og framkvæmd í september…Lesa meira

true

Viðreisn velur uppstillingu og auglýsir eftir áhugasömum

Þrjú landshlutaráð Viðreisnar af fimm hafa tekið ákvörðun um hvaða leið verði farin við röðun á framboðslista fyrir kosningar í haust. Landshlutaráð Reykjavíkur, Suðvesturkjördæmis og Suðurkjördæmis hafa öll fundað og ákveðið að nota uppstillingu við skipan á lista þessara fjögurra kjördæma að þessu sinni. Landshlutaráð Norðvestur- og Norðausturkjördæma munu fljótlega funda til að taka ákvörðun…Lesa meira

true

Nemendum við Grundaskóla afhent verðlaun

Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, afhenti í morgun nemendum við Grundaskóla á Akranesi ávísun upp á 50.000 krónur sem skólinn hlaut í brenniboltaáskorun Hreyfiviku UMFÍ og Kristals í byrjun sumars í fyrra. Vegna Covid-faraldursins, samkomutakmarkana, fjöldatakmarkana og takmarkana á skólastarfi var ávísunin ekki afhent fyrr en nú, en betra er seint en aldrei. Verðlaununum í…Lesa meira