Fréttir

true

Hreindýrakvóti gefinn út

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta fyrir 2021 að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1.220 dýr á árinu, 701 kú og 519 tarfa. Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst…Lesa meira

true

Allir samþykktu ný sóttvarnalög

Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra til breytinga á sóttvarnalögum var samþykkt á Alþingi í liðinni viku með öllum greiddum atkvæðum. Með lagabreytingunni er kveðið skýrar á um til hvaða ráðstafana er heimilt að grípa vegna farsóttarhættu og útbreiðslu smits, í hvaða tilvikum og með tilliti til meðalhófssjónarmiða. Markmið breytinganna er að tryggja að slíkar skerðingar á…Lesa meira

true

Elias Tamburini til liðs við Skagamenn

Finnski vinstri bakvörðurinn Elias Tamburini gekk nýlega til liðs við Skagamenn frá Grindavík. Elias sem er 25 ára gamall hefur leikið 54 leiki á Íslandi síðustu þrjú tímabil með Grindvíkingum áður en hann gekk til liðs við Skagamenn. Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari Skagamanna segist í samtali við Skessuhorn vera ánægður með það að fá Elias…Lesa meira

true

Mæla búsetuskilyrði og hamingju í nýrri íbúakönnun á landsvísu

Snæfellsnes og Akranes koma vel út en Dalir reka lestina Ný könnun landshlutasamtaka sveitarfélaga hefur nú verið birt. Könnunin var gerð meðal íbúa landsins og spurt út í búsetuskilyrði, hamingju og viðhorfi til síns sveitarfélags. Að könnuninni stóðu landshlutasamtök sveitarfélaga ásamt Byggðastofnun og var hún gerð á íslensku, ensku og pólsku og framkvæmd í september…Lesa meira

true

Viðreisn velur uppstillingu og auglýsir eftir áhugasömum

Þrjú landshlutaráð Viðreisnar af fimm hafa tekið ákvörðun um hvaða leið verði farin við röðun á framboðslista fyrir kosningar í haust. Landshlutaráð Reykjavíkur, Suðvesturkjördæmis og Suðurkjördæmis hafa öll fundað og ákveðið að nota uppstillingu við skipan á lista þessara fjögurra kjördæma að þessu sinni. Landshlutaráð Norðvestur- og Norðausturkjördæma munu fljótlega funda til að taka ákvörðun…Lesa meira

true

Nemendum við Grundaskóla afhent verðlaun

Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, afhenti í morgun nemendum við Grundaskóla á Akranesi ávísun upp á 50.000 krónur sem skólinn hlaut í brenniboltaáskorun Hreyfiviku UMFÍ og Kristals í byrjun sumars í fyrra. Vegna Covid-faraldursins, samkomutakmarkana, fjöldatakmarkana og takmarkana á skólastarfi var ávísunin ekki afhent fyrr en nú, en betra er seint en aldrei. Verðlaununum í…Lesa meira

true

Skagamenn léku til úrslita í fótbolta.net mótinu

Skagamenn töpuðu 1:5 gegn Breiðabliki í úrslitaleik fótbolta.net æfingamótinu síðastliðið föstudagskvöld. Leikurinn fór fram á Kópavogsvelli. Það var Ingi Þór Sigurðsson sem skoraði mark Skagamanna í leiknum. Blikar byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru komnir með þriggja marka forystu eftir um 15 mínútna leik, og leiddu 4:0 í hálfleik. Leikurinn var síðan mun jafnari…Lesa meira

true

Tækjasalurinn ekki opnaður í dag

Á miðnætti tóku gildi rýmri samkomutakmarkanir og máttu heilsu- og líkamsræktarstöðvar opna tækjasali á ný, með skilyrðum. Ekki mega fleiri en 20 manns vera í hverju rými og þeir skulu skrá þátttöku sína fyrirfram. Á heimasíðu ÍA segir að engar breytingar verði þó gerðar á opnun þreksala á Jaðarsbökkum í dag. „Til að framfylgja sóttvarnarreglum…Lesa meira

true

Meirihluti Dalamanna fylgjandi vindorkuverum

Ríflega helmingur íbúa, eða 51,9% í Dalabyggð, er hlynntir því að sett verði upp vindorkuver í Dalabyggð. Þetta er niðurstaða könnunar sem Maskína lagði fyrir íbúa Dalabyggðar dagana 3. desember 2020 til 12. janúar 2021. Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá er nú unnið að breytingum á skipulagi í Dalabyggð vegna fyrirhugaðra vindorkuvera í…Lesa meira

true

Dúi ráðinn verkefnastjóri miðlunar hjá Landgræðslunni

Dúi J. Landmark hefur verið ráðinn verkefnastjóri miðlunar hjá Landgræðslunni. Um er að ræða nýtt starf sem er ætlað að styrkja fræðslu- og kynningarmál Landgræðslunnar sem hefur nú starfað í 114 ár að því að vernda og viðhalda þeim auðlindum þjóðarinnar sem fólgnar eru í gróðri og jarðvegi og tryggja sjálfbæra nýtingu lands. „Vægi þessara…Lesa meira