Fréttir

true

Mæla búsetuskilyrði og hamingju í nýrri íbúakönnun á landsvísu

Snæfellsnes og Akranes koma vel út en Dalir reka lestina Ný könnun landshlutasamtaka sveitarfélaga hefur nú verið birt. Könnunin var gerð meðal íbúa landsins og spurt út í búsetuskilyrði, hamingju og viðhorfi til síns sveitarfélags. Að könnuninni stóðu landshlutasamtök sveitarfélaga ásamt Byggðastofnun og var hún gerð á íslensku, ensku og pólsku og framkvæmd í september…Lesa meira

true

Viðreisn velur uppstillingu og auglýsir eftir áhugasömum

Þrjú landshlutaráð Viðreisnar af fimm hafa tekið ákvörðun um hvaða leið verði farin við röðun á framboðslista fyrir kosningar í haust. Landshlutaráð Reykjavíkur, Suðvesturkjördæmis og Suðurkjördæmis hafa öll fundað og ákveðið að nota uppstillingu við skipan á lista þessara fjögurra kjördæma að þessu sinni. Landshlutaráð Norðvestur- og Norðausturkjördæma munu fljótlega funda til að taka ákvörðun…Lesa meira

true

Nemendum við Grundaskóla afhent verðlaun

Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, afhenti í morgun nemendum við Grundaskóla á Akranesi ávísun upp á 50.000 krónur sem skólinn hlaut í brenniboltaáskorun Hreyfiviku UMFÍ og Kristals í byrjun sumars í fyrra. Vegna Covid-faraldursins, samkomutakmarkana, fjöldatakmarkana og takmarkana á skólastarfi var ávísunin ekki afhent fyrr en nú, en betra er seint en aldrei. Verðlaununum í…Lesa meira

true

Skagamenn léku til úrslita í fótbolta.net mótinu

Skagamenn töpuðu 1:5 gegn Breiðabliki í úrslitaleik fótbolta.net æfingamótinu síðastliðið föstudagskvöld. Leikurinn fór fram á Kópavogsvelli. Það var Ingi Þór Sigurðsson sem skoraði mark Skagamanna í leiknum. Blikar byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru komnir með þriggja marka forystu eftir um 15 mínútna leik, og leiddu 4:0 í hálfleik. Leikurinn var síðan mun jafnari…Lesa meira

true

Tækjasalurinn ekki opnaður í dag

Á miðnætti tóku gildi rýmri samkomutakmarkanir og máttu heilsu- og líkamsræktarstöðvar opna tækjasali á ný, með skilyrðum. Ekki mega fleiri en 20 manns vera í hverju rými og þeir skulu skrá þátttöku sína fyrirfram. Á heimasíðu ÍA segir að engar breytingar verði þó gerðar á opnun þreksala á Jaðarsbökkum í dag. „Til að framfylgja sóttvarnarreglum…Lesa meira

true

Meirihluti Dalamanna fylgjandi vindorkuverum

Ríflega helmingur íbúa, eða 51,9% í Dalabyggð, er hlynntir því að sett verði upp vindorkuver í Dalabyggð. Þetta er niðurstaða könnunar sem Maskína lagði fyrir íbúa Dalabyggðar dagana 3. desember 2020 til 12. janúar 2021. Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá er nú unnið að breytingum á skipulagi í Dalabyggð vegna fyrirhugaðra vindorkuvera í…Lesa meira

true

Dúi ráðinn verkefnastjóri miðlunar hjá Landgræðslunni

Dúi J. Landmark hefur verið ráðinn verkefnastjóri miðlunar hjá Landgræðslunni. Um er að ræða nýtt starf sem er ætlað að styrkja fræðslu- og kynningarmál Landgræðslunnar sem hefur nú starfað í 114 ár að því að vernda og viðhalda þeim auðlindum þjóðarinnar sem fólgnar eru í gróðri og jarðvegi og tryggja sjálfbæra nýtingu lands. „Vægi þessara…Lesa meira

true

Stefnt að samningi um starfsskilyrði landbúnaðar

Í liðinni viku rituðu forsvarmenn ríkisstjórnarinnar og Bændasamtaka Íslands undir samkomulag um breytingar á rammasamningi um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins. Samkomulagið er hluti af endurskoðun búvörusamninga. „Í samkomulaginu er tæpt á fjölmörgum atriðum sem eiga að styrkja og styðja við íslenskan landbúnað. Sérstök áhersla er lögð á loftslagsmál og er kveðið á um að íslenskir landbúnaður…Lesa meira

true

Bóklegt ökunám verður gert stafrænt

Ákveðið hefur verið að fyrir lok þessa árs verði umgjörð fyrir almennt ökunám orðin stafræn frá upphafi til enda. Tekur það til umsókna, ökunámsbóka, upplýsingagáttar fyrir nemendur og ökukennara, ökuskóla, prófa og útgáfu ökuskírteina. Markmiðið er að einfalda ökunámsferlið, fækka snertiflötum milli stofnana og bæta til muna þjónustu við nemendur og ökukennara. Gert er ráð…Lesa meira

true

Kortleggja víðerni landsins

Alþingi samþykkti í vikunni sem leið frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, um breytingu á náttúruverndarlögum. Lögin heimila ráðherra að setja reglugerð um kortlagningu óbyggðra víðerna, en slík kortlagning á að vera til upplýsinga fyrir stjórnvöld við stefnumótun um verndun landslags og aðra landnotkun. „Drög að greiningu víðerna á hálendinu liggja þegar fyrir og…Lesa meira