Fréttir

true

Kynntu sex sameiningarvalkosti fyrir Dalabyggð

Íbúakynning um valkosti Dalabyggðar til sameiningu við önnur sveitarfélög var haldinn í gær. Dalabyggð er nú þegar í töluverðu samstarfi við nágrannasveitarfélögin með ýmsa þjónustu. En stjórnvöld vilja setja 1.000 íbúa lágmarksíbúafjölda í hverju sveitarfélagi 2026 og því ljóst að fámennari sveitarfélög þyrftu að sameinast gangi tillögurnar eftir. Vegna þessa var ákveðið í Dalabyggð að…Lesa meira

true

Körfuknattleikssambandið er 60 ára í dag

Í dag er þess minnst að 60 ár eru liðin frá því Körfuknattleikssamband Íslands var stofnað. Hannes S Sigurðsson formaður KKÍ ritar grein hér á vefinn þar sem hann minnist tímamótanna. Hann segir m.a.: “Við bárum þær væntingar í brjósti að geta fagnað þessum merkisdegi með hreyfingunni. Sá fögnuður þarf að bíða betri tíma þar…Lesa meira

true

Lásu inn 790 þúsund setningar á einni viku

Lestrarkeppni Samróms hófst 18. janúar og stóð til og með 25. janúar. Keppnin var á milli grunnskóla í landinu þar sem keppst var um að lesa sem flestar setningar inn í Samróm. Verkefnið er hluti af samstarfsverkefni til að gera íslensku gjaldgenga í tölvum og tækjum. Grunnskólakeppnin er haldin til að safna sem flestum röddum…Lesa meira

true

Eldur í bíl á Akranesi

Eldur kviknaði í bíl við Esjuvelli á Akranesi á níunda tímanum í morgun. Þar kviknaði í vélarrúmi eldri bíls sem stóð þar í lausagangi. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er bíllinn sennilega ónýtur en hann ku vera búinn að þjóna eiganda sínum vel og ekinn á þriðja hundrað þúsund kílómetra. Talsverður viðbúnaður var á staðnum en nokkuð…Lesa meira

true

Keppt verður um VÍS bikarinn í körfunni

VÍS er nýr bakhjarl Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ). „Þrátt fyrir óvissu vegna alheimsfaraldursins er það gleðiefni að framundan sé bikarkeppni KKÍ en þá verður barist um VÍS bikarinn. Því er ljóst að körfuboltinn verður rauðari en hann hefur nokkurn tímann verið,“ segir í tilkynningu frá KKÍ og VÍS.Lesa meira

true

LbhÍ tekur þátt í alþjóðlegri hönnunarsamkeppni

Teymi starfsmanna hjá Landbúnaðarháskóla Íslands tekur nú þátt í alþjóðlegri hönnunarsamkeppninni samtakanna C40 Reinventing Cities. Markmið þessara samtaka er að vinna að samkeppni fyrir borgir sem vilja leggja sig fram í baráttunni gegn loftslagsvanda og tekur Reykjavíkurborg þátt. Framlag borgarinnar var lóðin að Sævarhöfða 31 sem er um 3000 m2 þróunarreitur. Reiturinn einkennist af gömlum…Lesa meira

true

Hertar sóttvarnir boðaðar vegna fuglaflensu

Skæð fuglaflensa heldur áfram að breiðast út víða um heim, m.a. í Evrópu. Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að töluverðar líkur eru á að hún berist hingað með farfuglum. Fuglaeigendur þurfa því að undirbúa sig undir hertar reglur um sóttvarnir. Afleiðingar smits á stórum alifuglabúum eru mjög alvarlegar. Afbrigði fuglaflensuveiru með mikla meinvirkni hefur…Lesa meira

true

Brim hefur ráðið Guðmund sem forstjóra að nýju

Guðmundur Kristjánsson hefur á ný verið ráðinn forstjóri Brims. Fyrirtækið er eins og kunnugt er leiðandi sjávarútvegsfyrirtæki hér á landi en hjá því starfa um 800 manns við hin ýmsu störf á sjó og í landi. „Við hjá Brim erum ánægð með að fá Guðmund aftur til starfa. Hann býr yfir gríðarlegri reynslu og hefur…Lesa meira

true

Sveitarfélög hækka verð fyrir skólamat og dagvistun

Mest hækkun hjá Akraneskaupstað Verðlagseftirlit ASÍ hefur tekið saman upplýsingar um verðbreytingar á þjónustu sem grunnskólabörn fá í skólum í fimmtán stærstu sveitarfélögunum. Þar kemur m.a. fram að mestar hækkanir hafa orðið milli ára hjá Akraneskaupstað, Seltjarnarnesbæ, Reykjanesbæ og Borgarbyggð. „Ef öll grunnskólagjöld eru skoðuð, þ.e. gjöld fyrir skóladagvistun, síðdegishressingu og skólamat, má sjá að…Lesa meira

true

Trúnaði létt af raforkusamningi Norðuráls og OR

Norðurál og Orkuveita Reykjavíkur hafa náð samkomulagi um að aflétta trúnaði um rafmagnssölusamning fyrirtækjanna frá árinu 2008. Samningurinn, sem upphaflega var gerður vegna fyrirhugaðs álvers Norðuráls í Helguvík, er sá fyrsti af slíkum samningum sem er birtur opinberlega. Rafmagnið hefur verið notað í álveri Norðuráls á Grundartanga. OR fór þess á leit við Norðurál árið…Lesa meira